Frjáls verslun - 01.09.2013, Page 29
FRJÁLS VERSLUN 8-9. 2013 29
hafa unnið saman í mörg ár
aðilar og einstaklingar með mis
munandi þekkingu, reynslu og
sýn á hlutina, og þannig hefur
safnast saman mjög merkileg
sérþekking og innviðir kerfisins
hafa að sama skapi breikkað
og styrkst. Klasar hafa m.a.
þau áhrif á samkeppnis hæfni
viðkomandi fyrirtækja að þeir
auka framleiðni þeirra og stuðla
að aukinni nýsköpun innan klas
ans. Þessi klasi virðist líka vera
samkeppnishæfur á alþjóðleg
an mælikvarða eins og sést á
markaðssókn Valitors og fleiri
íslenskra fyrirtækja á síð ustu
misserum.“
Fjárfest fyrir milljarð í ný
sköp un
Valitor er með nýtt útgáfukerfi
á prjónunum. Hvað felur það í
sér?
„Við höfum fjárfest fyrir milljarð
króna í nýsköpun með íslensku
hugviti á undanförnum þremur
árum og það er einkar ánægju
legt að fagna 30 ára afmæli
Valitors með því að innleiða hér
á landi nýtt kortaútgáfukerfi sem
starfsfólk okkar hefur hannað
frá grunni fyrir banka og spari
sjóði. Hluti þessa hugbúnaðar
var innleiddur í kortaútgáfu
okkar í Bretlandi árið 2011 með
góðum árgangri og kerfið er
vel samkeppnishæft alþjóðlega
enda hefur það þegar unnið til
virtra alþjóðlegra verðlauna.
Hér á landi hefur kerfið nú
verið innleitt hjá öllum viðskipta
bönkum og er bylting fyrir útgef
endur og korthafa. Það býður
upp á klæðskerasaumaðar
lausnir, t.d. gjaldskrár, vaxta
töfl ur og gengistöflur niður á
hvert kort. Nýja kerfið rúmar
bæði núverandi og fyrirsjáan
legar tækninýjungar á þessu
sviði.“
Ávallt mörg járn í eldinum
Eru ný viðskiptatækifæri í sjón
máli?
„Við erum alltaf með mörg járn
í eldinum. Eitt viðamesta nýja
verkefnið er NFCtilraunaverk
efn ið sem verður ýtt úr vör inn
an tíðar í samstarfi við banka,
símafyrirtæki og aðra samstarfs
aðila. Nýjungin gengur út á að
Visakorthafar geti greitt fljótt
og örugglega fyrir vörur og
þjónustu með snjallsímum og
snertilausum kortum. Verkefnið
er kjörið fyrir þá seljendur sem
vilja bjóða korthöfum upp á
nútímalega afgreiðslutækni og
taka þátt í þeirri framþróun sem
nú er að hefjast. Ef tilraunin
heppnast vel hafa Íslendingar
möguleika á að verða fyrstir
þjóða til þess að bjóða þessa
tækninýjung á landsvísu.“
Bretland áherslumarkaður í
útgáfustarfsemi
Er fyrirtækið með einhver útgáfu
verkefni erlendis í smíðum – eða
í gangi nú þegar?
„Við höfum rennt nýjum stoð
um undir útgáfustarfsemi okkar
erlendis með opnun skrif stofu í
Bretlandi á þessu ári en fyrir var
skrifstofa félagsins í Dan mörku.
Bretland er okkar áherslu mark
að ur í útgáfustarfsemi, okkur
hef ur vegnað mjög vel á þeim
vettvangi og þar eru ný verkefni
í pípunum.“
Seðlalaust samfélag í sjónmáli
Hver er framtíðarsýn Valitors í
greiðslumiðlun?
„Seðlalaust samfélag þar sem
yfir 90% greiðslumiðlunar eru í
rafrænu formi. Notkun greiðslu
korta mun færast yfir í síma, en
því er spáð að árið 2020 fari um
50% allra kortafærslna í Bretlandi
fram með farsímum.
Í íslenska greiðslumiðlunar
kerfi nu felast þjóðhagsleg
verðmæti. Þegar við horfum
til framtíðar þurfum við að
varð veita þann árangur og þá
hag kvæmni sem náðst hefur.
Sér staklega er vert að minnast
á það öryggi sem hlýst af traust
um innviðum greiðslumiðlunar
eins og sannaðist rækilega í kjöl
far bankahrunsins.
Við stöndum á ákveðnum
tímamótum og nú er komið
að því að móta nýja stefnu til
fram tíðar. Ég legg áherslu á
nauðsyn þess að framtíðar um
hverfi samkeppnismála verði
mótað á faglegum, hlutlægum
og skynsamlegum forsendum
með íslenska hagsmuni að
leiðarljósi. Frumkvæði stefnu
mótunar þarf að koma frá
markaðsaðilum í samstarfi við
Samkeppniseftirlitið, Seðla
banka, Fjármálaeftirlit, neyt
enda samtök og kaupmanna
sam tök. Hagsmunaaðilar
eru í raun allir þátttakendur í
sam félaginu og við þurfum að
finna rétta jafnvægið milli sam
keppni, stærðarhagkvæmni og
al manna hagsmuna í þessu litla
hag kerfi.“
Framkvæmdastjórn Valitors: Sigurður Ingvar Ámundason, Sigurhans Vignir, Ástvaldur Jóhannsson,
Steinunn Sigurbjörnsdóttir, Viðar Þorkelsson, Ingibjörg Arnarsdóttir, Kristján Þór Harðarson og Berg -
s veinn Sampsted.
Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitors.
„Við höfum
fjárfest fyrir
mill jarð króna í
nýsköpun með
íslensku hugviti
á undan förnum
þremur ár um
og það er eink
ar ánægju legt
að fagna 30 ára
afmæli Valitors
með því að
inn leiða hér á
landi nýtt korta
útgáfu kerfi sem
starfs fólk okkar
hefur hannað
frá grunni.“