Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2013, Page 32

Frjáls verslun - 01.09.2013, Page 32
32 FRJÁLS VERSLUN 8-9. 2013 þetta tækifæri, að vera í stjórninni. Ég var að vísu fyrir í framkvæmdastjórn fyrir­ tækisins og er enn, en þarna fær maður tækifæri til að hafa meiri áhrif á stefnu ­ mörk unina innan fyrirtækisins. Þetta er auðvitað fjölmenn stjórn eða þrettán manns en innan hennar er samankomin mikil reynsla. Þarna er fólk sem er búið að vinna sumt hvað innan lyfjaiðnaðarins allt upp í fjörutíu ár og það er gaman að vinna innan slíks hóps. Stjórn fyrirtækis á borð við Actavis hefur líka ákveðnu eftirlitshlutverki að gegna í samræmi við lög og reglur þar að lútandi, en jafnframt á hún að styðja fyrirtækið til að vaxa inn í framtíðina. Félagið er nú þegar orðið óhemjustórt. Actavis er með veltu upp á rétt tæpa ellefu milljarða dollara og við erum orðin með stærri fyrir ­ tækj um í lyfjabransanum, sérstaklega á sviði samheitalyfja – vorum á fyrsta hluta ársins stærsta fyrirtækið á því sviði í Banda ­ ríkjunum hvað tekjur varðar og það þriðja stærsta í Evrópu. Þarna er því mikill vöxtur og eins og nærri má geta nóg að gera.“ En mun Sigurður Óli með einhverjum beinum hætti geta gætt hagsmuna Actavis á Íslandi betur með því að taka sæti í stjórninni? „Það er nú einu sinni þannig að Actavis hér á Íslandi stendur auðvitað mjög nærri hjarta mínu. Ég hóf minn feril hér hjá Omega Farma, litlu lyfjafyrirtæki sem rann inn í Delta og varð síðan Actavis. Hjart að slær því alltaf á Íslandi þótt ég hafi búið meira og minna erlendis frá því árið 1998. Actavis hér á Íslandi er á hinn bóginn að keppa við það að innan fyrir ­ tækisins í heild eru 35 verksmiðjur út um allan heim. Við framleiðum um það bil 44 milljarða taflna á hverju ári. Á sama tíma erum við alltaf að leitast við að fá sem mest gæði en jafnframt sem hagstæðast verð á því sem við framleiðum. Það sem hjálpar starfseminni hér á Íslandi er ekki bara hágæða verksmiðja, með reyndu starfsfólki, heldur erum við hér með öflugt þróunar­ og skráningarstarf. Húsið hér við hlið aðalstöðvanna í Dalshrauni er þróunarhús og við höfum náð til okkar miklu af góðu og vel menntuðu fólki, frá háskólunum á Íslandi og víðar að, þannig að þróunarstarfið á Íslandi er eitt það alfremsta í heiminum. Það hjálp ar verksmiðjunni á Íslandi meira en nokkuð annað að verksmiðjan og þróunin eru samtengd að vissu leyti þannig að þótt verk smiðjan sé einhver sú smæsta innan fyrirtækisins hefur hún enn mjög strate ­ gískt hlutverk. Alltént sjáum við ekki fram á það að henni verði lokað; það er ekkert slíkt í spilunum í dag.“ Actavis færir sig inn á einkaleyfis­ vernduð lyf með kaupum á Warner Chilcot Nýjasta vendingin hjá Actavis­samstæð ­ unni voru kaupin á írska lyfjafyrirtækinu Warner Chilcott og þar með fluttist fyrirtækið búferlum til Ír lands enda þótt stjórnstöðvarnar séu áfram í Bandaríkjunum. Með kaupunum færir Actavis sig inn á einka leyfisvernduð lyf. „Já, við keyptum írskt fyrirtæki sem heitir Warner Chilcott. Það var skráð á markaði í Bandaríkjunum þó að það sé írskt fyrir ­ tæki. Það voru einkum tvær ástæður fyrir kaupunum á Warner Chilcott. Í fyrsta lagi er fyrirtækið með einkaleyfisvernduð lyf, þannig að við erum að fara meira inn á þá braut. Þessi einkaleyfisvernduðu lyf eru fyrst og fremst í fjórum sjúkdómaþáttum, þ.e. í kvenlyfjum en Warner Chilcott er t.d. mikið í getnaðarvarnarlyfjum, þá í þvagfæralyfjum, í þriðja lagi í húðlyfjum og loks í meltingarfæralyfjum. Þessir fjórir flokkar fara ört vaxandi á markaðinum og þessi einkaleyfisvernduðu lyf eru seld aðallega í Bandaríkjunum en einnig út um allt í Evrópu. Strategískt erum við þannig að færa okkur meira yfir á einka ­leyfis verndaða markaðinn en við fengum einnig fram með kaup ­ un um á Warner Chilcott að við verðum írskt félag og fáum þannig með þessum samruna skattalegt hagræði. Á Írlandi eru skattar mjög lágir á fyrirtæki eða um 12,5% og það þýðir að meðalskattaprósenta Actavis lækkar úr um 28% fyrir sam run ­ ann í um 17% eftir samrunann með því að gerast írskt félag. Þetta var ekki aðal sjónar ­ miðið á bak við kaupin en gríðarlega góð viðbót við það að færa okkur yfir í þessi einkaleyfisvernduðu lyf.“ Sigurður Óli er þá minntur á grein í The Economist um samheitalyfjamarkaðinn fyrir nokkrum árum þar sem var rætt við hann um þróun sem þá var að taka á sig mynd, þ.e. að stóru einkaleyfislyfjarisarnir voru að færa sig meira yfir á samheita ­ lyfja markaðinn. Sigurður lýsti efasemdum um að þetta væri skynsamleg vegferð fyrir þessa risa en nú þegar Actavis er að færa sig yfir í einkaleyfisvernduðu lyfin hlýtur að mega spyrja hvort ekki sé einhver mótsögn í þessu fólgin? „Á þessum tíma sem greinin í The Economist birtist litu stóru frumlyfjafyrir ­ tækin, eins og Pfizer o.fl., samheitalyfja ­ mark aðinn mjög hýru auga. Ástæðan fyrir því þá var að þau vildu verða eins konar stórmarkaður með lyf við öllu. Ég sagði á þessum tíma að upprunalega hug myndin hjá frumlyfjafyrirtækjunum virkaði ekki á samheitalyfjamarkaðinum vegna þess að lyfin eru seld á annan hátt. Við í samheitalyfjunum þurfum að huga sérstaklega að kostnaðinum og meðalframlegðin í slíkum lyfjum er miklu minni en í frumlyfjum. Við seljum lyfin með öðrum hætti, erum með færri sölu menn á bak við markaðinn. Ég hélt því fram að frumlyfjafyrirtækin myndu aldrei getað aðlagað sig þessu nýja dæmi. Á hinn bóginn, þegar þú ert að færa þig úr samheitalyfjageiranum yfir í einka ­ leyfisvernduð lyf, þá notarðu eftir sem áður þau tól og tæki sem þú ert með í sam ­ heitalyfjunum í dag og það hefur reynst miklu betur. Í þróun á einkaleyfisvernduðum lyfjum hjá okkur komum við til að mynda þar inn á mun síðari stigum en frumlyfjafyrirtækin. Þau eru að finna nýjar frumur og nýja verkun meðan við tökum kannski mólikúl eða efni sem þegar er þekkt, setjum það t.d. í plástur frekar en töflur og fáum einkaleyfi á því. Þetta er þannig eilítið öðruvísi módel sem verið er að vinna við í dag í þessum einkaleyfisvernduðu lyfjum. Þau eru að verja miklu meira tíma og fjármunum í rannsóknir, meðan við erum meira að skoða þróunina, og ég er enn á því að sam ­ heitalyfjamarkaðurinn henti ekki frum ­ lyfjafyrirtækjunum. Kannski má segja að staðfesting á því hafi fengist þegar Pfizer­frumlyfjarisinn réð til sín nýjan forstjóra fljótlega eftir að ég lét þessi orð falla, því þá var það með fyrstu verkum hans að draga úr þessum áherslum Pfizer á samheitalyfin. Ég er ekki endilega að segja að hann hafi hlustað á mig heldur komst hann að sömu niðurstöðu.“ sigurður óLi óLafsson „Við fjárfestum hlut­ fallslega meira í lyfja­ þróun en keppi naut ar okkar. Mönnum þykir kannski súrt að fjárfesta með þess um hætti allan arð inn af félaginu, en þetta hefur borgað sig margfalt.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.