Frjáls verslun - 01.09.2013, Page 44
44 FRJÁLS VERSLUN 8-9. 2013
Ingibjörg Þórðardóttir segir að haustið hafi verið ágætt hvað varðar fasteignaviðskipti og
samningum hafi fjölgað jafnt og
þétt. Fasteignaverð hefur verið á
svipuðu róli síðustu vikur.
„Það ríkir aukin bjartsýni á
mark aðnum þar sem verð er
orðið tiltölulega stöðugt þannig
að við eigum ekki von á miklum
hækkunum. Nokkuð virðist um
að fólk sé í biðstöðu hvað varðar
fasteignaviðskipti og vilji sjá
hvað gerist varðandi leiðréttingu
á húsnæðislánum. Fyrir liggur
að fyrirhugaðar eru breytingar
á stimpilgjöldum skuldabréfa,
en þær breytingar kunna að
vera jákvæðar fyrir markaðinn
því fólk getur þá keypt fasteign
eða endurfjármagnað eldri lán
án þess að það leiði til óheyri
legs kostnaðar. Markaðurinn er
líflegur enda orðin gríðarleg upp
söfnuð þörf á kaupum og sölu
húsnæðis. Fasteignasalar eru
almennt bjartsýnir og jákvæðir á
fasteignamarkaðinn.“
Bjartsýnir og jákvæðir
INGIbJÖRG ÞÓRðARDÓTTIR
– formaður Félags fasteignasala
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
Flestar framtíðarspár eiga það sameiginlegt að standast ekki. Við getum
þó reiknað með því að hröðun
tækniþróunar verði enn meiri og
fari langt fram úr getu manns
ins til að skynja og vinna úr
sí vaxandi áreitinu. Tölvutæknin
og stöðugt nýir samskiptamiðlar
breyta vinnulagi einstakl inga,
hópa og fyrirtækja. Alþjóða
væð ingin og „outsourcing“
verk efna leiðir til meiri skörunar
ólíkra menningarheima, þar sem
samskipti fara fram í gegnum
tölvur, vídeófundi, skype og aðra
netmiðla.“
Högni Óskarsson segir að
af þessum sökum verði því æ
minna um að mál leysist með
sam ræðum augliti til auglitis.
Skilvirkni muni aukast en líka sé
hætta á erfiðum árekstrum.
„Það er nefnilega munur á því
að hafa alist upp í íslenskum, ind
verskum eða kínverskum smábæ.
Staðbundnar samskipta hefðir,
viðhorf og menning skapa ólíkt
vinnulag og væntingar. Ólíkt því
sem er og var, að vinnufélagar
kynnist yfir kaffibolla og leysi
mál, þá er engu slíku til að dreifa
í alþjóðavæðingunni.
Tækniþróunin kallar því á
skarp ari félagsgreind eða hæfi
leikann til að setja sig í spor
og skilja samstarfsfólk annarra
menn ingarheima. Þjóðríki hafa
leyst þetta með því að stofna
sendiráð í öðrum ríkjum þar sem
reynt er að leysa mál í viðræðum
sem geta teygst yfir langan
tíma. Eðli viðskipta og vísinda
krefst hins vegar miklu meiri
hraða sem leysist ekki alfarið
með ferðalögum milli landa og
heimsálfa.
Grunnskólarnir okkar reyna
að taka á þessu þegar kemur
að innflytjendum. Hvað með
háskólana? Þjálfa þeir nemend
ur í félagsgreind á sama hátt
og með tilfinningagreind? Eða
leysir tæknin þetta bara með
sýndarveruleikakaffipásum?“
HÖGNI ÓSKARSSON
– geðlæknir og stjórnendaþjálfari
SKIPULAGIÐ í
VINNUNNI
skoðun
Vinnustaðir framtíðar
– árekstrar menn -
ingar heima
INGRID KUHLMAN
– framkvæmda stjóri Þekkingarmiðlunar
HOLLRÁÐ í
STJÓRNUN
Stjórnendur þurfa að tak ast á við ýmiss konar starfsmannamál og segir
Ingrid Kuhlman að mikilvægt sé
að greina málin fyrst með tilliti
til orsaka og aðgerða og finna
síðan lausnir á þeim þar sem
oft er strax lögð áhersla á laus
nina í stað þess að kryfja málin
fyrst. „Þegar tekist er t.d. á við
slaka frammistöðu starfsmanna
skiptir miklu máli að skoða í
fyrsta lagi atriði sem varða
einstaklinginn sjálfan eins og
kunnáttu, áhuga og persónu
leika. Í öðru lagi þarf að skoða
atriði sem varða hópinn og
tengjast t.d. menningunni á
vinnustað, starfsandanum og
samskiptamynstrum. Í þriðja
lagi þarf að skoða atriði sem
varða skipulag og stjórnun á
vinnu staðnum svo sem verklags
reglur, skipulag, stjórnun og atriði
eins og aðstæður, húsnæði, tæki
og tól.“
Ingrid tekur dæmi um nei
kvæðan starfsmann. Hugsan
legar ástæður gætu verið
óöryggi eða áhugaleysi hans,
slæm ur mórall, starfsleiði,
skort ur á sjálf strausti, skortur á
hrósi, neikvæður yfirmaður eða
það að stjórnandinn taki ekki á
málum.
„Hægt er að finna ýmsar
gagn legar lausnir eins og að
ræða við starfsmanninn og
láta hann svara fyrir það sem
óánægjan snýst um, greina
málið og gera kröfu um að
hlutirnir breytist. Þá getur líka
verið gagnlegt að ræða málin
í hópnum, huga að móralnum
og þjappa starfsliðinu saman,
passa að ekki sé tekið undir
neikvæðnina og jafnvel að
hrósa og ýta undir styrkleika
viðkomandi. Ef ekkert breytist er
uppsögn síðasta úrræðið.“
Greina málið og
finna síðan lausnina
A4
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
1
3-
28
92