Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2013, Síða 48

Frjáls verslun - 01.09.2013, Síða 48
48 FRJÁLS VERSLUN 8-9. 2013 Niðurstöður launakönnunar viðskipta­ og hagfræð­inga sýna fram á að meiri­ hluti þeirra er með heildarlauna­ samning en þó virðist fjórðungur hópsins fá greidda yfirvinnu. Ásta Bjarnadóttir segir ýmsa kosti fylgja því að greiða heildar­ laun. „Heildarlaunafyrirkomulagið gefur til kynna að framleiðni og afurðir vinnunnar skipti meira máli en tími á vinnustað og menn losna við „stimpilklukkustemn inguna“. Ef hægt er að hafa heildarlaun fyrir alla á vinnustaðnum eykur það jafnræði og minnkar stétta­ skiptingu. Traust milli stjórnenda og starfsmanna er oft meira þar sem heildarlaun eru ríkjandi.“ Ásta segir ókostinn við heildar­ laun vera að upp geti komið sú staða að starfsfólk fari ómeðvitað að endurskilgreina hvað sé inni­ falið í þeim, til dæmis ef langur tími hef ur liðið þar sem ekki hefur verið þörf á lengri vinnudegi. „Stjórnendur geta lent í vanda ef sú hefð kemst á að ekki þurfi að vinna umframvinnu og ef starfsmenn gleyma að slík vinna var í upphafi innifalin í launasamn ingnum.“ Ásta telur æskilegt að nota aðrar leiðir en vinnutímamælingar til að meta framlag starfsmanna. Þannig verði til heilbrigðir hvatar til að leggja sig fram og gera meira en lágmarkið og áherslan færist á afurðir og árangur. „Sú staðreynd er umhugsunar ­ verð að fólk sem er á heildar­ launum vinnur almennt meira en þeir sem fá greidda yfirvinnu; það bendir mögulega til þess að mörgum vinnuveitendum hafi tekist að gera árangur og afurðir sýnileg með öðrum hætti en að mæla vinnutíma. Kostir og ókostir heildarlauna DR. ÁSTA bJARNADÓTTIR – ráðgjafi hjá Capacent MANNAUÐS- STJÓRNUN skoðun Jón Gnarr boðaði endalok síns pólitíska ferils í út­varpsþættinum Tvíhöfða. Það var e.t.v. viðeigandi því eins og hann útskýrði þar hafði hugmyndin um stofnun flokks einmitt kviknað í sama þætti haustið 2009. Hafði hann haft á orði við Sigurjón, félaga sinn, Kjartansson að óþolandi væri að RÚV hefði aldrei tekið vel í hugmyndir þeirra um þáttagerð. Sigurjón á þá að hafa útskýrt að það væri vegna þess að þeir væru ekki í flokki. Taldi Jón þá ráðið að stofna eigin flokk, fá fylgi til að verða menntamála­ ráðherra, skipa Sigurjón sem útvarpsstjóra sem svo fengi Jón til að gera þátt fyrir RÚV. Hins vegar mætti búast við að ráðningarnar kölluðu á ásakanir um spillingu og því myndu menntamálaráðherrann og út varpsstjórinn neyðast til að segja af sér. Jón Gnarr héldi hins vegar þættinum og byði Sigurjóni til samstarfs! Þetta var m.ö.o. kveikjan að stofnun Besta flokksins. Það var þó ekki fyrr en hugmyndin var komin vel af stað að Jón Gnarr áttaði sig á því að kosningarnar 2010 væru sveitarstjórnarkosn­ ingar en ekki þingkosningar. Hafði hann að eigin sögn eng an greinarmun gert á þessu tvennu. Hvort sem sagan er sönn eða tilbúningur gerðist hið ótrúlega. Besti flokkurinn fékk stuðning ríflega þriðjungs kjósenda í Reykjavík og Jón Gnarr varð borgarstjóri með stuðningi Samfylkingarinnar. Nú, fjórum árum síðar, hefur Jón Gnarr lagt niður Besta flokk inn sem hann segir hafa verið hugarástand en ekki flokk því engir hafi félagarnir verið og stefnan bull. Það virðist þó litlu hafa skipt því 37% kjósenda ráðgerðu að kjósa Besta flokk ­ inn næsta vor skv. nýjustu skoð ­ anakönnun.“ Hugarástand DR. STEFANÍA ÓSKARSDÓTTIR – lektor við HÍ STJÓRNMÁL Beðið eftir ... ÁRNI ÞÓR ÁRNASON – stjórnarformaður Oxymap ehf. FYRIRTÆKJA- REKSTUR Ný stjórn tók við í Japan í fyrra og þeir drifu sig í verkin; spara ríkisútgjöld, minnka skrifræði og draga úr eyðslu á almannafé. Smátt og smátt hafa atvinnulífið og fyrirtækin verið að taka við sér og nú horfa menn fram á betri tíð í Japan. Þeir fengu líka kjarn orkuslys í hausinn, sem ekki hjálpar. Þeir hafa hvorki fengið aukinn straum af ferðamönnum út á það né makríl til að hjálpa með gjaldeyrisöflun.“ Árni Þór Árnason veltir því fyrir sér hvernig samanburðurinn sé við Ísland. „Við fengum líka nýja ríkis­ stjórn og bíðum ennþá eftir að kommúnistasköttunum og skrif­ ræðinu sem henni fylgdi verði öllu sópað burt. Nýi iðnaðar­ og viðskiptaráðherrann hefur áhuga og vill gera endurbætur en það er spurning hvort hún kemst í gegnum fjármálaráðuneytið. Er það enn gegnumsýrt af „nei ráðherra“? Þarf einhverja snillinga til að búa til einföld lög sem gefa ein staklingum tækifæri til að fjár­ festa í nýsköpun og þróun fyrir fimm milljónir króna á ári og njóta skattfrelsis? Þetta þarf að klára fyrir næstu áramót. Er stærsta vandamálið að það er fjármálaráðuneytið sem leiðir vinnuna?“ Árni Þór segir að með slíkum gulrótum geti menn siglt fram hjá stöðnuðu bankakerfi og lífeyris sjóðsdraugum. „Þeir vilja peninga landsmanna en það er bara hægt að fjárfesta í fasteign­ um og fasteignabréfum. Búa til nýja bólu, kanski ennþá stærri en þá síðustu. Síðan verður að afnema sem fyrst refsiskattinn; „trygginga­ gjald“ sem refsar þeim sem skapa atvinnu og hækkar verð­ lag og kostnað fyrirtækja.“ Árni Þór segir að mörg fyrirtæki á Íslandi geti skapað verðmætan gjaldeyri. „Hvernig væri að setja þau í forgang? Það er gjaldeyris­ sköpun sem ætti að vera mál númer eitt, tvö og þrjú.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.