Frjáls verslun - 01.09.2013, Qupperneq 50
50 FRJÁLS VERSLUN 8-9. 2013
G
unnlaugur Kristjáns
son er stjórnarfor
maður BM Vallár og
forstjóri Björgunar.
Frjáls verslun innti hann eftir því
hvernig staðan væri í byggingar
geiranum um þessar mundir.
Hverjir eru að byggja; eru það
gamlir, sterkir aðilar eða eru yngri
menn að koma á markað – jafn
vel með fjármagn að utan?
„Bygg ingargeirinn er aðeins að
rétta úr kútnum eftir mörg mögur
ár. Það sem stendur undir bat
anum er fyrst og fremst fólgið í
framkvæmdum við íbúðarbygg
ingar en einnig er töluvert um
framkvæmdir tengdar ferða þjón
ustu. Fjárfesting í skrifstofu og
verslunarhúsnæði er hins vegar
svo til engin og ekki horfur á
að það breytist á næstunni.
Viðskipta vinir okkar eru bæði
fyrirtæki með langa sögu að baki
og nýir aðilar á markaði. Þá er
nokkuð um fjárfesta sem ekki
hafa verið áberandi áður á
bygg ingar markaðnum fyrr en nú
síðustu misseri.“
Brothættur bati
Ýmis merki eru um að einhver
kraftur sé að færast í bygging
ariðnaðinn; getum við túlkað það
sem svo að efnahagslífið sé á
uppleið?
„Já, það má ábyggilega
túlka það svo að ástandið fari
batnandi en það gerist hægt
og batinn er brothættur. Það er
áhyggjuefni að enn er lítið byggt
af minni, ódýrari íbúðum sem
gætu hentað yngra fólki sem er
að kaupa sína fyrstu íbúð.“
Mikil reynsla af gangagerð
BM Vallá er með mjög stórt
verk efni úti á landi; Norðfjarðar
göngin. Slík verkefni hljóta að
krefjast sérkunnáttu sem fyrir
tækið býr yfir. „BM Vallá hefur
töluverða reynslu af samskonar
verkefnum og Norð fjarðar
göng in eru og má nefna í því
sambandi að við framleiddum
steypu bæði í Óshlíðar göngin
og Héðinsfjarðar göngin, en þar
var að verki sami aðal verk taki
og í Norðfjarðargöng unum,
tékkneska fyrirtækið Metro
stav. Starfsmenn okkar hafa því
mikla reynslu af sambærileg
um verkefnum og búa yfir
þeirri sérfræð i þekkingu sem
nauðsynleg er.“
Betri framleiðsla
Hvað er helst framundan hjá
fyrirtækinu?
„Við reiknum ekki með miklum
breytingum hjá okkur á næstu
misserum að öðru leyti en þeim
sem hafa í för með sér aukið
steypumagn. Við höfum ný lega
keypt Plastiðjuna Yl ehf. sem
rekur steypustöðvar á Egils
stöð um og Reyðarfirði og
ætlum okkur að þjóna Aust
fjarða markaðnum vel – auk
þess sem megnið af steypunni í
Norð fjarðargöngin verður fram
leitt í steypustöðinni á Reyðar
firði, Norðfjarðarmegin. Þá má
nefna að um þessar mundir
erum við að ljúka við miklar
breytingar á múrverksmiðju fé
lagsins sem hafa það að mark
miði að bæta vinnuaðstöðu og
auka gæði framleiðslunnar.“
BM Vallá hefur um langt árabil verið í fararbroddi íslenskra iðnfyrirtækja og gegnt forrystuhlutverki í
framleiðslu fyrir íslenskan byggingarvörumarkað. Þar er komin saman áratuga þekking og reynsla á
framleiðslu og lausnum fyrir íslenska byggingaraðila.
Hægur bati í
byggingargeiranum
TexTi: Hrund HauksdóTTir / Mynd: Geir ólafsson
„Við reiknum
ekki með mikl
um breyting
um hjá okkur
á næstu miss
erum að öðru
leyti en þeim
sem hafa í för
með sér aukið
steypumagn.“
Pétur Hans Pétursson, framkvæmdastjóri eininga- og múrframleiðslu; inn- og útflutningsvörum, Lárus
Dagur Pálsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, Einar Einarsson, framkvæmdastjóri steypufram-
leiðslu, Gunnlaugur Kristjánsson, formaður stjórnar, og Gunnar Þór Ólafsson, forstöðumaður sölu-
og markaðssviðs.
BM Vallá