Frjáls verslun - 01.09.2013, Page 101
FRJÁLS VERSLUN 8-9. 2013 101
Hvað ertu ánægðust með í ís
lensku atvinnulífi um þessar
mundir?
Meginstoðirnar í atvinnu
lífi nu; sjávarútvegur, ferða
manna iðnaður og áliðnaður,
hafa staðið fyrir sínu og skilað
miklum verðmætum inn í
þjóðar búið. Þessir þrír grunn
atvinnuvegir hafa komið okkur
af stað upp úr krepp unni.
Gjaldeyrisskapandi greinar
eru afar mikilvægar og á árinu
2012 námu útflutningstekjur af
áliðnaði 225 milljörðum króna
og skildu 100 milljarða eftir í
landinu. Frá Fjarðaáli hljóðuðu
útflutningstekjur upp á um 99
milljarða króna.
Almennt þykir mér Ísland
vera að vakna eftir kreppuna.
Iðnaðarmenn á öllu landinu
eru aftur komnir með vinnu
og hér fyrir austan finnum við
fyrir skorti á góðum iðnaðar
mönnum.
Þá finnst mér einnig að þessi
fyrstu ár eftir kreppuna séu
tími til að gera betur. Fyrirtæki
eru alls staðar að leita tækifæra
og finna nýjar leiðir til að
tryggja arðsemi. Þegar fyrirtæki
eru neydd í slíka naflaskoðun
verða þau sterkari fyrir vikið og
munu þannig styðja við vöxt
inn og endurreisn landsins með
mun betri hætti.
2. Ríkisútgjöld í fjárlaga frum
varpinu fyrir árið 2014 eru
áætluð þau sömu og á þessu
ári. Ertu sátt við þá niðurstöðu?
Við gerum öll ríka kröfu um
velferðarsamfélag og innviði,
til dæmis í samgöngum og
heilbrigðismálum. Til að standa
undir ríkisútgjöldum og kröfum
um velferðarsamfélag þarf ríkið
fyrst og fremst að finna leiðir
til að skapa aukin verðmæti
– alveg eins og atvinnulífið.
Mikilvægt er að fá sem mest
fyrir fjármagnið sem er fyrir
hendi. Það þarf alls staðar að
tryggja arðsemi, hjá ríkinu
útleggst það þannig að tryggja
betri þjónustu fyrir sama eða
minna fjármagn.
3. Núna eru fimm ár liðin frá
hruninu. Hvaða væntingar
hefur þú til næstu tveggja ára?
Ég hef væntingar um að
erlend fjárfesting verði auk in
á Íslandi. Við þurfum að skapa
aukin verðmæti. „Nafla skoð
un“ fyrirtækja eftir hrunið er að
ljúka og nú er tími til að horfa
fram á veginn. Einhvern tíma
þurfum við að hætta að kryfja
fortíðina og fara að vinna fyrir
framtíðina.
4. Áttu von á auknum fjárfest
ingum í íslensku atvinnulífi á
næstunni?
Já, mikil þörf er fyrir aukna
fjárfestingu í íslensku atvinnu
lífi. Fjölmörg fyrirtæki hafa lítið
sem ekkert fjárfest á síðustu
árum en sem betur fer eru önn
ur sem hafa haft meira
svi g rúm. Við hjá Alcoa Fjarðaáli
fjárfestum fyrir 2,9 milljarða
árið 2012 og áliðnaðurinn í
heild hefur staðið undir stærstu
fjárfestingunum í íslensku
atvinnulífi undanfarin ár. Erlend
fjárfesting leitar þangað sem
hún er arðsömust og íslensk
stjórnvöld þurfa að endurreisa
traust og skapa umhverfi til
að laða erlenda fjárfestingu til
landsins.
5. Hver verða forgangsverkefni
þíns fyrirtækis á næstu sex
mánuðum?
Þar sem álverð er lágt eins
og stendur er brýnt að tryggja
arðsemi og leita nýrra tækifæra.
6. Skuldavandinn hefur tekið
mestan tíma frá stjórnendum
síðustu árin en hver eru helstu
verkefni stjórnenda núna?
Þróun og þátttaka
starfsmanna í að tryggja arð
semi og leita tækifæra fyrir
fyrirtæki til að vaxa og þróast.
Tækifærin eru fyrir hendi í
fyrirtækjunum okkar og það
eru engir sem þekkja fyrirtækin
betur en starfsmennirnir.
Við þurfum að virkja þessa
þekkingu og vera opin fyrir
því að þróa fyrirtækin áfram.
Á sama tíma skapast ákveðin
menning innan fyrirtækisins
og það má ekki gleyma að
rækta það svo fyrirtækið verði
skemmtilegur staður til að
vinna á. Starfsmönnum þarf að
þykja vænt um vinnustaðinn
sinn og það má ekki gleyma
að hlúa að þessum mannlegu
þáttum.
7. Ertu með eitt gott ráð handa
stjórnvöldum?
Tryggja að Ísland verði aftur
eftirsóttur staður til að byggja
upp og þróa fyrirtæki. Til þess
þarf að fá aukna fjárfestingu
inn í landið og styrkja stoðir
samfélagsins.
JannE SiguRðSSon, foRSTJóRi alcoa
Auka fjárfestingu
Janne Sigurðsson.
„Við hjá Alcoa Fjarða
áli fjárfestum fyrir 2,9
milljarða árið 2012
og áliðnaðurinn í
heild hefur staðið
undir stærstu fjár
fest ingunum í ís
lensku atvinnulífi.“