Frjáls verslun - 01.09.2013, Page 166
166 FRJÁLS VERSLUN 8-9. 2013
fóLk TexTi: sVaVa JónsdóTTir
Margrét Jónsdóttir, deildarstjóri á réttindasviði Tryggingastofnunar.
É
g starfa á réttindasviði
Tryggingastofnunar
þar sem starfsmanna
fjöldinn er tæplega
fjörutíu manns og í minni ein
ingu er þrettán manna sam
hentur hópur. Þar eru teknar
ákvarðanir um réttindi sem
lúta að greiðslum til lífeyris
þega, s.s. endurhæfingarlífeyri,
örorkulífeyri og ellilífeyri,“ segir
Margrét Jónsdóttir, deildarstjóri
á endurhæfingar og lífeyris
deild Tryggingastofnunar.
Ellilífeyrisþegar eru um
27.000 og endurhæfingar og
ör orkulífeyrisþegar um 16.700
manns. „Hlutverk okkar er að
veita góða þjónustu og sjá
um að umsækjendur fái réttar
greiðslur á réttum tíma.
Við höfum frá árinu 2010 unnið
markvissar en áður var gert
með fólki sem er í endurhæf
ingu. Fólk á vinnumarkaði
ávinnur sér rétt til greiðslna
úr sjúkrasjóðum verkalýðsfé
laga. Þegar þeim rétti lýkur og
fólk er enn óvinnufært tekur
Trygg ingastofnun við og greiðir
mánaðarlegar greiðslur til fólks
sem er þá í virkri endurhæfingu.
Með þessum hætti er leitast við
að fólk sem fer af vinnumarkaði
vegna veikinda komist þangað
aftur og fái starf við hæfi.“
Margrét útskrifaðist sem
fé lagsráðgjafi þegar hún
var um fertugt en hafði áður
lok ið BAprófi í uppeldis og
mennt unarfræðum. „Það voru
ákveðnar aðstæður í lífi mínu
sem gerðu það að verkum að
ég ákvað að mennta mig meira.
Fé lagsráðgjafamenntunin hefur
gefið mér mörg tækifæri. Ég hef
lengi haft áhuga á samskiptum
fólks og samskiptafærni og það
er ástæðan fyrir því að ég fór í
félagsráðgjöf og ég sé ekki eftir
því,“ segir Margrét, sem hefur
verið stundakennari við HÍ í
nokkur ár. „Ég vann á geðdeild
Landspítalans í nokkur ár eftir
útskrift þar sem áhugi minn
vakn aði á endurhæfingu.“
Margrét segist leggja mikla rækt við fjölskylduna og
lögð er áhersla á að hittast
reglulega og borða saman.
„Samvera og samkennd kemur
ekki af sjálfu sér en hlúa þarf
vel að þessum þáttum. Ef eitt
hvað bjátar á er það fjölskyldan
sem hjálpast að og þar eigum
við griðastað. Barnabörnin,
sem eru tvö, koma til okkar einn
dag í hverri viku eftir skóla. Við
gerum þá eitthvað saman og
ljúkum degin um með mat og
spjalli.“
Margrét leggur rækt við heils
una og hefur gaman af útivist.
„Ég er í gönguhópi sem nefnist
Rúsínurnar. Við erum sex í
hópnum og göngum einu sinni
í viku, aldrei styttra en 10 km
og stundum lengra. Við hjónin
göngum á fjöll og ferðumst á
jeppanum okkar um hálendi
Íslands. Í sumar fórum við um
Norðurland, Austurland, skoð
uðum Kárahnjúkasvæðið og
Hafrahvammagljúfur og það var
ólík sjón frá árinu 2006 þegar
við vorum þar síð ast. Áhugi á
hjólreiðum hefur vakn að hjá mér
síðustu ár og sá áhugi hefur leitt
okkur hjón in í hjólaferðir erlend
is. Við höf um hjólað á Ítalíu og
í sumar hjóluðum við í Frakk
landi. Þetta voru dásamlegar
ferðir. Við hjólum, borðum góðan
mat og skoðum áhugaverða
menn ingarstaði. Ferðin í sumar
var farin frá Toulouse og var
hjólað milli lítilla þorpa suð ur frá
borg inni og í átt að Mið jarðar
hafi nu, meðfram Canal du Midi í
SuðurFrakklandi.“
Margrét Jónsdóttir
– deildarstjóri á réttindasviði
Tryggingastofnunar
„Við höfum frá árinu 2010 unnið markvissar en áður var gert með fólki sem er í endur
hæfi ngu. Fólk á vinnumarkaði ávinnur sér rétt til greiðslna úr sjúkrasjóðum verka
lýðsfé laga.“
Nafn: Margrét Stefanía Jónsdóttir.
Fæðingarstaður: Akureyri, 10.
febrúar 1954.
Foreldrar: Guðrún Björnsdóttir og
Jón Stefánsson.
Maki: Kristján Þór Hálfdánarson.
Börn: Andri, 34 ára, og Jón Þór,
22 ára.
Menntun: BA-próf í uppeldis- og
menntunarfræðum frá Háskóla
Ís lands, félagsráðgjafi og diplóma í
mannauðsstjórnun frá
Endurmenntun HÍ.
FOLLOW YOUR NATURE
Marc O’Polo Store
Kringlan Shopping Center
Kringlan 4-12
103 Reykjavik
JEFF BRIDGES
W
W
W
.M
AR
C-
O-
PO
LO
.C
OM
180-3-361_AD_Island_Men02FW13_Unc_210x297#.indd 1 29.10.13 14:52