Víkurfréttir


Víkurfréttir - 29.04.2010, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 29.04.2010, Blaðsíða 1
www.heklakef.is Sölu- og þjónustuumboð í Reykjanesbæ K.Steinarsson NÆSTUM NÝIR BÍLAR 17. tölublað • 31. árgangur • Fimmtudagurinn 29. apríl 2010 Víkurfréttir ehf. Grundarvegur 23 - 260 Reykjanesbær Sími 421 0000 - Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingadeild 421 0001 Fréttadeild 421 0002 Aðrar deildir 421 0000 998 kr/stk. Grillaður kjúklingur 2l coke fylgir frítt með Við erum að gera þetta út af ástandinu á Suður- nesjum og viljum halda skurðþjónustu á svæðinu,“ segir Adda Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri nýs félags sem mun heita Skurðstofur Suðurnesja ehf. Undirbún- ingur að stofnun félagsins er í fullum gangi. Tilgangurinn er að leigja skurðstofur af HSS og veita þar skurðstofuþjónustu. Eigend- ur og starfsmenn yrðu, ásamt öðrum, starfsmenn á skurð- stofum HSS sem sagt hefur verið upp störfum á HSS frá og með 1. maí næstkomandi. Félagið hyggst með starfsemi sinni halda skurðstofunum opnum í þágu fæðingardeildar HSS sem og fyrir önnur skurð- stofutengd verkefni sem leitað verður með til félagsins. Formleg beiðni hefur þegar farið til Framkvæmdarstjórnar Heilbrigðisstofnunar Suður- nesja og afrit sent til Heilbrigð- isráðuneytis. Stefnt er að gera þjónustusamning við HSS. Adda sagði að þetta gæti ver- ið góð leið og jafnframt ódýr- ari fyrir ríkið því það myndi eingöngu greiða fyrir hverja aðgerð og þyrfti ekki að hugsa um rekstur skurðstofanna. Þá fengi HSS leigutekjur. Aðspurð hvernig nýja félagið gæti rekið skurðstofur en ekki HSS sagði hún hugmyndina að fullnýta tíma sem væru ekki nýttir til að leigja stofurnar skurðlæknum sem gætu gert hinar ýmsu skurðaðgerðir, t.d. lýtaaðgerðir sem væru mun ódýrari á Íslandi en í öðrum löndum. „Félagið er stofnað til þess að koma í veg fyrir alvarleg áhrif á þjónustu fæðingardeild- arinnar og á þjónustu á skurð- stofum sem annars þarf að sækja út fyrir svæðið. Félagið vill auk þess hindra tap á mik- ilvægum heilbrigðisstörfum af svæðinu. Markmið þessa nýja félags verður að halda skurðstofum á Heilbrigðisstofnuninni opn- um og veita þannig nauðsyn- lega stuðningsþjónustu við fæðingardeildina sem þar er rekin. Þá er ætlunin að kynna fæðingardeildina á HSS og þá frábæru aðstöðu sem þar býðst fyrir foreldrum,“ segir í tilkynningu frá félaginu. -tilgangur að halda skurðþjónustu á Suðurnesjum SkurðStofurnar í einkarekStur Víkurfréttamynd: SölVi logaSon „ nærri 20.000 gestir á opnum Ásbrúardegi festa tapar 1,7 millj- arði kr. á falli Spkef ormabóndi með 4-5 milljónir maðka í Vogum - sjá myndir í blaðinu í dag!- sjá frétt í blaðinu í dag!- sjá viðtal í blaðinu í dag! Barnahátíð í reykjanesbæ þótti takast mjög vel og skemmtu þúsundir barna sér konunglega í fjölbreyttri dagskrá sem stóð frá sum- ardeginum fyrsta og fram á sunnudag. reykjanesbær iðaði af lífi á meðan á hátíð- inni stóð og margt áhugavert var í boði fyrir börn á öllum aldri. Einn liður í barnahátíð- inni var opnun á dýragarði við Víkingaheima þar sem land- námsdýr hafa fengið aðsetur í allt sumar. meðfylgjandi mynd var tekin í nýja dýragarðinum í reykjanesbæ um liðna helgi.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.