Víkurfréttir - 29.04.2010, Blaðsíða 31
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM Í ÞRJÁ ÁRATUGI! 31VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 29. APRÍL 2010
Við gerum tilboð í pakka fyrir veislur í mat og eða drykk
Frítt í pool,
frítt í pílu, tilboð á
mat
og drykkjum
Nýjasti og flottasti staðurinn
Blues Lounge í samstarfi við
skemmtistaðinni Manhattan á
Hafnargötu 30.
j ti fl tt ti t i
l í t fi i
ti t i i tt
f t .Keflavík - Snæfell
Kal
dur
á 2
00 k
r.
til m
iðn
ætt
is
ef v
ið v
inn
um
á fim
mtu
dag
inn
Eftirpartý á Manhattan
á fimmtudagskvöldið
Upplýsingar í 822 3858 / 691 8078
http://www.facebook.com/manhattan.keflavik
tt
fi t l i
lýsi r í / 1 7
tt :// .f c k.c / tt .k fl vik
Forsala miða á leik Keflavíkur og Snæfells verður í íþróttahúsinu
við Sunnubraut og verður hún milli 17 og 19. Gengið er inn um aðal
inngang (þeim megin sem húsverðirnir sitja). Miðaverð fyrir full-
orðna er 1500 kr. og 12-16 ára 1000 kr. Einnig eru til sölu VIP miðar
sem gilda í stuðningsmannastúkuna niðri, en því fylgja einnig veit-
ingar. Verðið á þeim miðum er 2500kr.
„Við viljum vekja athygli á því að það er gríðarleg eftirvænting og
spenna í bæjarbúum fyrir þessum leik og klárt mál að húsið verður
þétt setið. Til að auðvelda mikla teppu í miðasölunni á leiknum, ásamt
þægindum fyrir áhorfendur að geta gengið bara beint inn með miða,
þá er gríðarlega skynsamlegt að tryggja sér miða í forsölu.
Við vonum að Keflvíkingar fjölmenni og styðji við bakið á strák-
unum,“ segir í tilkynningu frá körfuknattleiksdeildinni.
Jonni mætir með tíu
spor úr hólminum
Keflavík-Snæfell - úrslitaleikur um Ís-
landsmeistaratitilinn í körfu í kvöld:
Jonni í baráttunni í vörn-
inni og Siggi Þorsteins að
skora í þriðja leiknum.
„Þetta var nú óviljaverk og ger-
ist bara í hörku og hraða leiks-
ins. Ég verð klár í úrslitaleik-
inn eins og allt liðið,“ sagði Jón
Norðdal Hafsteinsson, fyrirliði
Keflvíkinga sem mæta Snæfelli
í hreinum úrslitaleik í Toyota
höllinni í Keflavík í kvöld.
Jón þurfti að fara af leikvelli í
hita leiksins þegar hann fékk
olnbogaskot frá einum leik-
manna Hólmara eftir að hafa
verið í sjö mínútur inni á vell-
inum. Hann fór með lækni á
sjúkrahús sem er þarna nálægt
og var saumaður, fékk tíu spor
í andlitið. „Nefið slapp, það var
gott. Ég var aðeins vankaður
á eftir en að öðru leyti í lagi,“
sagði Jonni eins og fyrirliðinn
er kallaður.
Hann segir alla tilbúna í þenn-
an stóra leik. Keflavík sé lið
sem hafi hefð fyrir því að spila
úrslitaleiki. „Það eru allir vel
stemmdir. Þetta verður auð-
vitað sama dæmið. Vörn vinn-
ur titla og við lékum hana vel í
síðasta leik og í fyrsta leiknm,
ekki eins í hinum tveimur. Við
prófuðum svæðisvörn í byrjun
síðasta leiks en það var ekki að
virka og fórum aftur í maður á
mann eins og við gerum best.
Barátta og einbeiting verða
lykilorðin í þessum lokaleik.“
Og þið treystið náttúrulega á að
stuðningsmenn Keflavíkur fylli
Toyota höllina?
„Algerlega. Við skildum það
vel þó svo það hafi ekki verið
fjölmennt í Hólminn eftir tvo
slaka leiki en við björguðum
fimmta leiknum og vonum að
við fáum fullt hús.“
Svona leikir eru draumaleikir
allra körfuknattleiksmanna er
það ekki?
„Jú, þetta er það sem mað-
ur dreymir um og vinnur að
allan veturinn. Sumir ná því
aldrei að spila svona leiki svo
það er eins gott að njóta þess
og leggja sig allan fram,“ sagði
Jón Norðdal.