Víkurfréttir - 29.04.2010, Blaðsíða 20
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 17. TÖLUBLAÐ I 31. ÁRGANGUR20
Þú hefur verið að mennta
þig og vinna í þínu fagi í
fjölda ára. Hvernig stendur
á því að þú hefur ekki látið
verða af því fyrr að opna
vinnustofu og koma þér og
verkum þínum á framfæri?
Ég hef nú reyndar verið með
vinnustofu alla tíð heima
hjá mér, sem ég hef sprengt
utan af mér frá því að vera
eitt pínulítið herbergi inni
á heimilinu þar sem ég hef
dreift úr mér. Seinna meir tók
ég gamla bílskúrinn undir
mig og var svo farin að færa
mig upp á skaftið og komin
með hluta í nýja bílskúrinn.
Þá sá ég að nú væri kannski
kominn tími til þess að færa
mig um set og gera mig sýni-
lega í bæjarfélaginu. Vinir og
vandamenn hafa verið dug-
legir við að hvetja mig til þess
að leyfa öðrum að sjá hvað ég
er að fást við, svo að nú var
bara að hrökkva eða stökkva.
Þú hefur menntað þig mjög
mikið í ýmsu tengdu þínu
fagi, svo sem þæfingu, korta-
gerð, bókagerð og japanskri
pappírsgerð - er endalaust
hægt að læra meira og bæta
við sig þekkingu á þessu sviði?
Já, það er alltaf hægt að bæta
við sig þekkingu, annað hvort
til þess að bæta við þá þekk-
ingu sem maður hefur eða
til þess að verða enn færari í
þeirri grein sem maður er að
vinna í, svo ekki sé nú talað
um að tileinka sér nýjungar,
því að það er alltaf eitthvað
að breytast og nýtt að koma.
Ég hugsa líka alltaf einhvern
veginn út frá kennslunni þ.e.
hvað get ég boðið þeim upp
á eða hvað vilja nemendur
mínir fá nýtt í faginu. Svo
hef ég bara svo óstjórnlega
gaman af öllu sem við kemur
fallegri hönnun og handverki.
Annars finnst mér þetta allt
svo skemmtilegt að það er erf-
itt að gera upp á milli hvort
það er saumur eða prjón,
bókagerð eða smíðar. Það er
bara það verkefni sem ég er
að vinna að hverju sinni.
Hvað af verkum þínum finnst
þér skemmtilegast að vinna?
Það er nú mjög erfitt að gera
upp á milli, þetta er allt svo
spennandi og skemmtilegt.
Ég hef nú haft áhuga á sauma-
skap síðan ég var um 8 ára
gömul. Ég byrjaði þá á því að
sauma og prjóna á dúkkurnar
mínar. Þegar ég var 10 ára
gömul saumaði ég svo fyrstu
buxurnar á sjálfa mig og upp
frá því hef ég verið óstöðv-
andi. Mér finnst líka papp-
írinn mjög heillandi, hvort
sem það er að gera pappírinn
sjálfan frá grunni eða vinna
úr honum kort eða bækur. Ef
ég byggi t.d. í Japan þá held
ég að ég hefði orðið pappírs-
gerðarkona. Það er svo gaman
að vinna með trefjarnar og
allt sem tilheyrir pappírnum.
Veistu, það tekur góðan papp-
írsgerðarmann í Japan 7 ár
að verða útlærður. Þæfingin
er líka endalaus uppspretta
hugmynda og fullt af mögu-
leikum í henni. Ég hef líka
alla tíð haft mikinn áhuga á
alls konar endurvinnslu, sem
hefur nýst mér í pappírnum,
endurnýtingu fatnaðar o.fl.
Að endurnýta t.d. gömul föt
og efni og gera úr því nýja
flík eða fylgihluti finnst mér
rosalega skemmtilegt. Þar eru
endalausar hugmyndir. Út-
stillingahönnunin er einnig
mjög gefandi og skapandi
form sem er mjög vannýtt.
Hvað er það sem fólk fær
að sjá hjá þér núna, ef
það kíkir í heimsókn?
Það nýjasta sem ég hef verið
að vinna að sem fólk fær að
sjá hjá mér er tengt höfði
og hálsi. Það kom til þegar
ég keypti mjög skemmtilegt
garn úti á Spáni og prjón-
aði úr því trefil. Þegar heim
kom sá ég að ógrynni af garni
hafði safnast upp hjá mér. Ég
ákvað því að grynnka á því
og sjá hvað kæmi út úr þessu
öllu. Útkoman varð húfur og
hálstau af ýmsum gerðum,
bæði á fullorðna og börn auk
þess að nánast engin húfa
er eins. Svo slæðist eitt og
annað með af öðrum toga.
Hvar er hægt að nálg-
ast vörurnar þínar?
Það er hægt að nálgast þær
með því að hafa samband beint
við mig (896 1994 eða magda-
lena@magdalenasirry.is) en
við erum einnig að skoða
núna mögulega söluaðila og
það verður auglýst á vefnum,
www.magdalenasirry.is,
þegar það kemst á hreint.
Sömuleiðis, ef einhver
hefur áhuga á að selja vör-
urnar, þá er um að gera að
hafa samband við mig.
Magdalena er þó ekki ein-
göngu að opna vinnustofu,
heldur er kominn í loftið
vefur sem sýnir verk hennar,
www.magdalenasirry.is, og
Magdalena Sirrý Design má
einnig finna á Facebook.
✝
Guðlaug Bergmann Júlíusdóttir
Reykjanesvegi 12, Njarðvík
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, fimmtudaginn 22. apríl.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, föstudaginn 30. apríl kl. 13:00
Valgeir Ólafur Helgason
Júlíus H. Valgeirsson, Ásgerður Þorgeirsdóttir,
Guðrún Bergmann Valgeirsdóttir, Sigfús R. Eysteinsson,
Jóhanna Valgeirsdóttir, Leifur Gunnlaugsson,
Erla Valgeirsdóttir, Guðni Grétarsson,
Einar Valgeirsson, Unnur M. Magnadóttir,
Susan Anna Wilson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
✝
Magnús M. Jónsson
Aðalgötu 5, Keflavík
Lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 25. apríl.
Jarðarförin auglýst síðar.
Einhildur Pálmadóttir,
Þór Pálmi Magnússon, Hulda Guðmundsdóttir,
Oddný Magnúsdóttir, Þórhallur Steinarsson,
Jón Kr. Magnússon, Linda Gunnarsdóttir,
Halldóra Magnúsdóttir, Ívar Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi
Magdalena Sirrý deSign opnar vinnuStofu og SýningarrýMi í fiScherShúSi
Magdalena Sirrý Þórisdóttir, hönnuður hefur opnað
vinnustofu og sýningarrými í Fischershúsi í Keflavík,
undir merkjum Magdalena Sirrý Design.
Magdalena er textílkenn-ari frá Kennaraskóla
Íslands auk þess að hafa
lokið námi í hönnun og út-
stillingahönnun frá Iðnskól-
anum í Hafnarfirði. Hún hef-
ur bæði kennt textílmennt
og tengdar greinar víðsvegar,
m.a. í Myllubakkaskóla og
í forfallakennslu við Holta-
skóla og Fjölbrautaskóla
Suðurnesja, auk fjölda nám-
skeiða. Magdalena hefur
hannað og gert fatnað fyrir
ýmsa aðila, séð um útstill-
ingar m.a. fyrir verslanirnar
Persónu, Stapafell, Optical
Studio og Samkaup hér í
Reykjanesbæ. Hún hefur
einnig haldið einkasýningar
á verkum sínum og tekið
þátt í samsýningu á vegum
Handverks og hönnunar, í
Norræna húsinu og verið
með sýningu á Ljósanótt.
Þar að auki hefur Magdalena
sífellt verið að bæta við sig
þekkingu tengda fagi sínu,
svo sem í þæfingu, kortagerð,
pappírsgerð, bókagerð o.fl.
Listin í Fischerhúsi