Víkurfréttir - 29.04.2010, Blaðsíða 13
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM Í ÞRJÁ ÁRATUGI! 13VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 29. APRÍL 2010
VOGAR
Lífrænt speltmjöl í baksturinn...
Þú færð Speltmjölið í Nettó, Reykjanesbæ
Helstu eiginleikar
speltkornsins
• mjög bragðmilt og
auðmeltanlegt.
• má nota í allar uppskriftir í
staðinn fyrir hveiti og heilhveiti.
Naan brauð
Fljótleg og ljúffeng uppskrift
Hrærið spelt, lyftiduft og ab-mjólk
saman þar til þykktin er á við hafragraut.
Gott er að byrja á að setja 3 dl spelt og
bæta svo við eftir þörfum. Hellið á plötu
með bökunarpappír og smyrjið út í eitt
stórt brauð eða nokkur lítil. Smyrjið
bræddu smjöri á. Setjið í vel heitan ofn,
220-225ºC, í um 10 mínútur. Takið út og
stráið sjávarsalti strax yfir.
Að sjálfsögðu er hægt að leika sér með
að bæta einhverju í brauðin og gera þau
að sínum, fræjum, kryddi eða öðru, allt
eftir smekk. Einstaklega ljúffengt
meðlæti með ýmsum réttum.
3-5 dl fínmalað spelt
2 tsk vínsteinslyftiduft
½ l ab mjólk
Smávegis íslenskt smjör, brætt
Smávegis sjávarsalt
Prófaðu lífrænt í baksturinn?
Lífrænt speltmjöl er malað með hýðinu og kjarnanum af speltkorninu ólíkt hefðbundnum
hveitimjölstegundum og er því næringarríkari afurð en hefðbundið hvítt hveiti. Það er ræktað
á heilnæman og náttúrulegan hátt. Speltmjöl er ekki glútenlaus afurð, en vegna þess hversu
heilnæmt það er þá eru margir sem þola það betur en annað hefðbundið mjöl.
U M A L L
T
LA
N
D
Keppt er um:
• Flesta þátttökudaga
• Flesta kílómetra
5.-25. maí
Vinnustaðakeppni
Skráning og nánari upplýsingar
á vefsíðunni: hjoladivinnuna.is
Nú látum við hjólin snúast
um allt land!
ÍS
LE
N
SK
A
/S
IA
.I
S
/Í
SÍ
4
98
33
0
3/
10
Samstarfsaðilar
Vertu með!
Ólympíufjölskyldan
Bæjarráð Voga hefur sam-þykkt að segja upp verk-
takasamningi við núverandi
rekstraraðila skólamötuneyt-
isins. Uppsögnin kemur í
kjölfar skýrslu um mötuneyt-
ið en í henni kemur fram að
matargerð verktakans hafi
ekki verið í samræmi við
verklýsingu og heilsustefnu
skólans. Verktakanum var
send skýrslan og óskað eftir
viðbrögðum en svör bárust
ekki, samkvæmt því er fram
kemur í fundargerð bæj-
arráðs.
„Skólastjórar og bæjarstjóri
hafa ítrekað gert athugasemdir
og óskað úrbóta á þeim þrem-
ur skólaárum sem samstarfið
hefur verið við verktakann.
Þykir þeim fullreynt að fá
hann til að fylgja verklýsing-
unni og leggja því til að samn-
ingnum verði sagt upp með
vísan til 18. liðar í Útboðs- og
verklýsingu vegna mötuneytis
frá maí 2007,“ segir bæjarráð í
fundargerð sinni.
Meirihluti bæjarráðs ítrekar
að uppsögn á samningum hafi
ekki áhrif á stefnu E-listans
varðandi áframhald á gjald-
frjálsum skólamáltíðum.
Verktaka skólamötu-
neytis sagt upp
Harmonikudagur 8. maí
Kosningaauglýsingar?
- auglýsingadeild Víkurfrétta er í síma 421 0001 / gunnar@vf.is
Harmonikudagur Félags harmonikuunnenda á Suðurnesj-um verður haldinn hátíðlegur þann 8. maí nk. Félags-
menn munu standa fyrir uppákomu í samstarfi við veitinga-
húsið Rána kl. 15-17 þann dag.
Þá verður haldinn harmonikudansleikur um kvöldið þar sem
félagar í Félagi harmonikuunnenda á Suðurnesjum leika fyrir
dansi. Nánar auglýst í næsta blaði.