Víkurfréttir - 29.04.2010, Blaðsíða 30
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 17. TÖLUBLAÐ I 31. ÁRGANGUR30
Félagar Verkalýðsfélags
Grindavíkur munið 1. maí kaffið
í húsi félagsins frá kl. 14:30 - 17:00
Stjórn Verkalýðsfélags
Grindavíkur.
Ekki hefur verið hægt að skera
grasið sem leggja á vegna
þess að mikið frost og bleyta
hefur verið á svæðinu þaðan
sem grasið er tekið, að sögn
Guðlaugs H. Sigurjónssonar,
framkvæmdastjóra umhverfis-
og skipulagssviðs Reykjanes-
bæjar.
„Afar slæmar aðstæður, auð
jörð og mikið frost, varð til
þess að frostið fór niður á um
40 cm dýpi. Sem verður til
þess að þegar byrjar að þiðna
og rigna þá liggur vatnið ofan
á frostinu og kemst ekki niður.
Því þiðnar það afar hægt og
er mjög lengi að þorna. Við
höfum verið í sambandi við þá
aðila sem rækta og selja gras
sem hentar á þetta en það er
sama vandamálið hjá þeim
öllum. Af þeim sökum hefur
ekki verið hægt að fá gras frá
því snemma í desember,“ sagði
Guðlaugur í samtali við VF.
Guðlaugur segir næstu daga
hafa mikil áhrif á vöxt rót-
arkerfisins og framvindan
ráðist nokkuð af því. Það gras
sem náðist að leggja um miðj-
an desember hafi ekki enn náð
rótarfestu.
Miklar kröfur eru gerðar um
Ekki verður hægt að spila á nýja grasinu á knatt-
spyrnuvellinum í Keflavík
fyrr en um mitt sumar en
veðurfarslegar aðstæður hafa
ráðið því að ekki hefur verið
hægt að ráðast í graslagningu
fyrr en nú. Keflvíkingar munu
því hefja keppnistímabilið á
Njarðvíkurvelli. Fyrir helgi
var hafist handa við lagningu
grassins.
lagningu grass á keppnisvelli
og segir Guðlaugur verkið
því taka lengri tíma heldur
en venjuleg lagning. Notaðar
verða þrjár lagningavélar og
má reikna með að verkið taki
fimm til sex daga. Það fer svo
alveg eftir aðstæðum og um-
hirðu hvenær hægt verður að
spila á vellinum, segir Guð-
laugur.
„Sé kalt í veðri, eins og er núna,
getur upphitunin hjálpað til
við að koma grasinu af stað.
Þetta er þó afar vandmeðfarið
þar sem skapast getur ójafn-
vægi í grasinu, t.d. ef lofthiti
er mínus fimm gráður á nótt-
inni og jarðvegshiti 6-7 gráður,
sem getur verið varasamt. En
vissulega getur hitinn hjálpað
til við að ná upp jarðvegshit-
anum og flýtt grasvextinum
en aðstæður spila samt mikið
þar inní þegar hætta á miklu
næturfrosti er liðin hjá,“ segir
Guðlaugur. Að hans sögn er
reynt að flýta fyrir vexti rót-
anna með góðum áburði sem
settur er undir grasið.
Búast má við að völlurinn
verði afar laus og viðkvæmur
fyrst um sinn eða allt þar til
rótakerfið hefur náð upp góð-
um styrk, að sögn Guðlaugs.
Afar erfitt sé að segja hvenær
völlurinn verður tilbúinn til
notkunar.
„Best væri auðvitað að hann
fengi sem lengstan tíma til að
ná sér en gangi allt að óskum
þá tel ég að við ættum að taka
stöðuna í lok júní en það fer
allt eftir veðri og umhirðu.
Miðað við stöðuna núna ætti
gras að óbreyttu að vera kom-
ið á í lok næstu viku. Því má
reikna með að frágangur taki
eina til tvær vikur. Verkinu
ætti þá að ljúka um miðjan
maí,“ sagði Guðlaugur í sam-
tali við Víkurfréttir.
Ekki hægt að spila á Keflavíkurvelli fyrr en um mitt sumar