Víkurfréttir - 29.04.2010, Blaðsíða 12
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 17. TÖLUBLAÐ I 31. ÁRGANGUR12
Kjörstjórn
Sandgerðisbæjar
Auglýsing um sveitarstjórnarkosningar 2010
Almennar sveitarstjórnarkosningar fara fram 29. mai 2010
Frestur til að skila framboðslistum er til kl.12:00 á hádegi laugardaginn 8. mai 2010.
Kjörstjórn veitir framboðslistum móttöku þann dag frá kl.10.00 til kl. 12.00 á hádegi
í bæjarskrifstofum Sandgerðisbæjar í Vörðunni Miðnestorgi 3.
Kjörstjórn vill vekja séstaka athygli á 22.gr. laga no.5 /1998 en þar er kveðið á um
fjölda meðmælenda með framboðslistum sem skuli vera að lágmarki 20 og hámarki
40 í Sandgerðisbæ.
Sveitarstjórnarmenn sem hyggjast skorast undan endurkjöri skulu tilkynna þá
ákvörðun til yfirkjörstjórnar fyrir lok framboðsfrests.
Kjörstjórn Sandgerðisbæjar
Guðjón Þ. Kristjánsson.
Pétur Brynjarsson.
Kári Sæbjörnsson.
KYNNINGARFUNDUR UM LEIÐARLJÓS
SVÆÐISSKIPULAGS SUÐURNESJA
Sveitarfélögin á Suðurnesjum, Reykjanesbær,
Grindavíkurbær, Sandgerðisbær, Sveitarfélagið
Garður og Sveitarfélagið Vogar, skipulagsnefnd
Keflavíkurflugvallar og Varnarmálastofnun
Íslands vinna að nýju svæðisskipulagi Suðurnesja.
Fyrsti áfangi verksins var að skilgreina sameiginlega
hagsmuni, þau viðfangsefni sem svæðisskipulagið
þarf að fjalla um og þau leiðarljós og markmið sem
skipulagsvinnan skal fylgja.
Til að kynna fyrsta áfanga verkefnisins boðar
samvinnunefndin til opins kynningarfundar um:
Leiðarljós, markmið og áherslur fyrir vinnu
við Svæðisskipulag Suðurnesja
Niðurfellingu Svæðisskipulags: Reykjanesbær,
Sandgerðisbær, Gerðahreppur, Keflavíkur-
flugvöllur 1995-2015
Fundurinn verður haldinn mánudaginn 3. maí
kl. 17:30 til 18:30 í fyrirlestrarsal íþróttaakademí-
unnar við Krossmóa 58 í Reykjanesbæ.
Samvinnunefnd um svæðisskipulag Suðurnesja
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Suðurnes
Fuglavík 18.
Opið virka
daga kl. 8-18
Laugard. 10-14
MILAN blöndunartæki
3.490
VITRA S50 handlaug 60 cm
10.900
Panelofn 50x120 cm
15.490
EURO handklæðaofn 50x80 cm
15.490
Hágæða ofnar á
áður óþekktu verði
gott verð fyrir alla - alltaf!
MARGAR STÆRÐIR
MARGAR STÆRÐIR
Vegna auglýsingar rík-isstofnunarinnar Þró-
unarfélags Keflavíkurflug-
vallar á fyrirtæki með mikla
drauma í bílapartasölu, þá
er rétt að gera athugasemd-
ir. Það sem er að gerast er
veðsetning á fyrri eigum rík-
isins, eins og alþjóð þekkir
til. Viðskiptahugmyndin er
vegna ímyndar um endur-
vinnslu varahluta með ein-
hverjum nýjum hætti, sem
felst í einhverri gæðavottun,
skráningu og einhverjum
vinnuaðferðum, sem eiga
að vera nýrri og umhverf-
isvænni en áður. Þetta er
því miður bara vitleysa.
Gæðavottun á rifrildi bíla
er svipuð og ef menn teldu
að þörf væri á að blessa áður
en menn tækju til hendinni
á nákvæmlega sama hátt, og
væri ekki verra. Það fer eng-
um sögum af því, að bifvéla-
virkjar landsins leiti í nýja
bílarifsmusterið til að til-
einka sér fráhvarf villu sinn-
ar trúar og upplifa hvernig
eigi að gera hlutina.
Þetta mál fjallar um allt ann-
að. Þetta fjallar um að hafa
tekjur í kreppunni til að
greiða af eignum sem fengust
fyrir lítið hjá ríkinu og reyna
að eyða samkeppni til þess.
Í fyrsta lagi, þá detta bílar úr
ábyrgð ef ekki eru notaðir
nýir varahlutir. Og ábyrgð
á bílum er orðin mörg ár. Í
öðru lagi, þá þolir starfssemi
bílapartasölu ekki dýra skrán-
ingu og mikla lagermyndun,
til þess þarf óraunhæfar fjár-
festingar. Í þriðja lagi, þá
krefst þjóðfélagið þess, að
nær allir hafi bíl. En mikið af
fólki hefur litlar tekjur og get-
ur ekki átt dýra bíla. Þetta fólk
er fólkið, sem kaupir notaða
hluti og fær frændur og vini
til að redda gömlum bílum
sínum. Það kaupir hluti úr
gömlum bílum og vill fá eins
ódýrt og hægt er. Ef sett er
einokun á bílapartasölu með
stjórnvaldsaðgerðum sbr.
auglýsingu Ríkisstofnunar-
innar, þá verður að hækka
verðið á gömlum bílapörtum
gegn fátækum almenningi.
Það gerist ekki nema með
einokun, með því að aðrar
ríkisstofnanir banni aðra og
virki til þess að mjólka al-
menning.
Fyrirtæki á Suðurnesjum, sem
hafa verið með bílapartasölu
eru sniðgengin þegar nýja
draumafyrirtækið er kynnt
og aðför heilbrigðiseftirlits
er á þeim. Þessi draumur um
vottaða gæðabílapartasölu, er
bara eins og draumurinn um
fjármálaveldið á Íslandi, bara
vitleysa þegar að er gáð. Ekki
vantaði vottun á bankana.
Að halda veislu með veðsetn-
ingum eigna, sem fengust fyr-
ir lítið, án útboða, er arfavit-
laust fyrir þá sem fengu slík
kunningjahlunnindi.
Sverrir Örn Olsen
bílapartasali.
SVERRIR ÖRN OLSEN SKRIFAR
Draumapartasala