Bæjarins besta


Bæjarins besta - 31.01.2008, Page 4

Bæjarins besta - 31.01.2008, Page 4
FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 20084 Þorrablót í gangamunna Bolvíkingar blótuðu þorra á fyrsta laugardegi í Þorra og að þessu sinni var blótið hald- ið í íþróttamiðstöðinni Árbæ, því nýhafnar eru miklar fram- kvæmdir við félagsheimilið Víkurbæ en þar hefur blótið verið haldið undanfarin ár. Að sögn Rögnu Jóhönnu Magn- úsdóttir formanns þorrablóts- nefndar var mikið var lagt í að gera umgjörð alla sem glæsi- legasta og þótti sviðsmyndin einkar vel heppnuð því eigin- menn nefndarkvenna höfðu lagt mikla vinnu í að smíða gangamunna yfir sviðið, til að minna fólk á hvað væri í vændum. Um tvö hundruð manns, allt sambýlisfólk eða hjón, lögðu leið sína í íþróttahúsið og að vanda voru konurnar klæddar í íslenska þjóðbúninga. Einar Kristinn Guðfinnsson, sjávar- útvegs- og landbúnaðarráð- herra flutti minni kvenna og Benedikt Sigurðsson stýrði fjöldasöng. Skemmtinefndin hafði úr miklu að moða þegar sýna átti spéspegil af mannlífi Bolvíkinga síðasta árið og fengu margir að finna fyrir beittum húmor nefndar- kvenna. Eitthvað bar útvarpsstöðin Lífæðin á góma, bæjarstjórinn átti í miklu basli við að hafa stjórn á gangstéttarvinnuhópi og sjálf Þuríður sundafyllir mætti á svæðið og fór að skipta sér af hellulögninni. Vinnuflokkurinn Bormenn Bolungarvíkur ætlaði að bora sér leið út í Vík en endaði í Skálavík. Baldur og Margrét héldu svo uppi fjörinu að skemmtiatriðum loknum og vakti athygli að Margrét hafði tekið klæðakóða þorrablótsins alvarlegan og söng í upphlut. – sigridur@bb.is

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.