Bæjarins besta


Bæjarins besta - 31.01.2008, Side 19

Bæjarins besta - 31.01.2008, Side 19
FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2008 19 Vinna að úttekt fyrir umboðsmann barna Starfsmaður barnaverndarnefndarinnar á norðanverðum Vestfjörðum vinnur nú að því að taka saman upplýsingar um hversu mörg börn sem hafa verið í tímabundnu fóstri á vegum nefndarinnar á árunum 2005 til 2007 hefur verið synjað um skólagöngu í viðtökusveitarfélagi. Er það gert að beiðni umboðsmanns barna Ennfremur var óskað eftir upplýsingum um hvernig staðið er að vistun barna þar sem brýn þörf er á að fjarlægja barn af heimili vegna gruns um kynferðis- eða annars konar ofbeldi á heimili. Barnaverndarnefnd tók erindið fyrir á síðasta fundi sínum og fól starfsmanni að svara því. Úlfar ehf., bauð lægst í fráveituútrás Úlfar ehf., bauð lægst í í fráveituútrás við Fjarðarstræti á Ísafirði. Fimm tilboð bárust í verkið og bauð Úlfar 25.503.900 krónur. Önnur tilboð bárust frá Gröfu- þjónustu Bjarna ehf. sem hljóðaði upp á 34.138.585 krónur og frávikstilboð sama fyrirtækis nam 30.768.585 krónum. KNH ehf. bauð 40.568.882 krónur og kom með frávikstilboð upp á 38.241.221 krónur. Kostnaðaráætlun hönnuða hljóð- aði upp á 44.134.140 krónur. Á bæjarráðsfundi lagði bæjartæknifræðingur Ísa- fjarðarbæjar til að samið verði við lægstbjóðanda á grundvelli tilboðs fyrirtækisins. Umhverfisnefnd Ísafjarðar- bæjar hefur svarað þremur spurningum frá Tryggva Guð- mundsson bjargmanni og telur enga þörf á að fara með honum í bjargið. Spurningarnar tengj- ast bókun nefndarinnar frá 9. janúar. Í fyrsta lagi spurði Tryggvi hvort nefndin sé sam- mála því áliti umhverfisráðs að í ljósi þess að refurinn sé eina upprunalega landspen- dýrið á Íslandi eigi hann að fá að vera óáreittur og þar með að stjórna lífríkinu í kringum sig sem ráðandi lífvera næst á eftir mannskepnunni. Í svari umhverfisnefndar er ekki tek- in efnisleg afstaða til spurn- ingarinnar heldur bent á að skv. lögum nr. 64 frá árinu 1994 og reglugerð nr. 437 frá árinu 1995 m.s.b. er óheimilt að veiða refi í friðlandinu. Í öðru lagi spurði Tryggvi hvort nefndinni þyki ekki ástæða til að viðkvæm og þéttsetin varp- svæði margra fuglategunda eins og t.d. í björgunum þrem- ur, Æðey, Vigur og Mýrum í Dýrafirði, svo nokkur dæmis séu tekin, þurfi að vera sem mest friðuð af ágangi rándýra og hversvegna fuglabjörgin séu þarna undanskilin? Umhverfisnefnd vísar í svari sínu til 10. gr. laga nr. 64 frá árinu 1994 þar sem umhverfis- ráðherra getur aflétt tíma- bundið eða rift friðun að fullu gagnvart tiltekinni tegund að fenginni umsögn Umhverfis- stofnunar og Náttúrufræði- stofnunar Íslands. Umsagnir þeirra eru ekki á þann veg að rifta eigi friðun gagnvart ref á Hornströndum. Af þeim sök- um leggur umhverfisnefnd ekki til að fuglabjörgin á Horn- ströndum verði friðuð af ágangi refs. Í þriðja lagi spurði Tryggvi hvers vegna nefndin vilji ekki kanna hvort fullyrðingar hans sé réttar en Tryggvi hefur boð- ið nefndinni með sér í bjarg- ferð í vor til að líta á aðstæður. Hann spyr einnig hvort nefnd- inni þyki það ekki alvarleg þróun ef refurinn í Hornbjargi er valdur að hvarfi tugþúsunda varpfugla á umráðasvæði refs- ins. Umhverfisnefnd telur sig ekki geta tekið afstöðu til þess- ara fullyrðinga bréfritara með einni ferð í Hornbjarg. Þess vegna hafi nefndin leitað álits aðila sem hafa sérþekkingu. Umhverfisnefnd ætlar ekki í bjargið Hornbjarg. Ljósm: Mats. Olíuhreinsistöð: Erlendir sérfræðingar skoða aðstæður Stefnt er að því að erlendir verkfræðingar líti á aðstæður í Dýrafirði og Arnarfirði með byggingu olíuhreinsistöðvar í huga. Ólafur Egilsson, annar af forsvarsmönnum Íslensks hátækniiðnaðar, segir að verk- fræðingarnir séu með reynslu af byggingu olíuhreinsistöðva og von sé á þeim fljótlega. Aðspurður hvort Íslenskur há- tækniiðnaður hafi átt í ein- hverjum viðræðum við ríkis- valdið um mögulegar losunar- heimildir fyrir olíuhreinsun- arstöð segir Ólafur að fyrir- tækið hafi gert stjórnvöldum grein fyrir mögulegri losun frá stöðinni. Sú losun er á bil- inu 400 – 560 þús. lestir á ári. Hann tekur fram að stöðin muni ekki fara í gang fyrr en Kyoto-samkomulagið er runn- ið út, en það er árið 2012, og þurfi því ekki losunarheim- ildir fyrr. Ólafur segir að sam- starfsaðilar Íslensks hátækni- iðnaðar séu í framhaldsvið- ræðum við fjárfesta og þær viðræður gangi ágætlega. Skýrslur um mögulega stað- setningu voru gefnar út undir lok sl. árs og segir Ólafur þær vera mikilvægt innlegg í við- ræðurnar. Aðspurður hvaða frekari upplýsingar fyrirtækið þurfi til að gefa Vestfirðingum endanlegt svar hvort mögulegt sé að af þessu verði segir Ól- afur að það muni koma í ljós í framhaldsviðræðum við þau fyrirtæki sem í hlut eiga hvaða frekari upplýsingar þau þurfi. „Þetta er fjárfesting upp á meira en þrjá milljarða dollara og skiljanlegt að fjárfestarnir þurfi að skoða málið ofan í kjölinn“, segir Ólafur. Í skýrslu um valda samfé- lagsþætti á Vestfjörðum, sem unnin var af Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri, kemur fram að skýr- sluhöfundar telji að vinnu- markaður á Vestfjörðum sé of smár fyrir vinnustað sem þarfnast 500 manns. Skýrslu- höfundar líta á sunnanverða og norðanverða Vestfirði sem aðskilda vinnumarkaði þrátt fyrir tilkomu Dýrafjarðar- ganga. Ólafur segir að því fari fjarri að allir séu sammála skýrsluhöfundum að svæðin séu svo einangruð. „Það eru fleiri kostir í stöðunni til að bæta samgöngur milli svæð- anna, auk gangagerðarinnar milli Dýrafjarðar og Arnar- fjarðar sem þegar er ákveðin. Til dæmis hefur vaknað á ný umræða um ferjusiglingar yfir Arnarfjörðinn sem líka væri ávinningur fyrir ferðastarf- semina. Og vinnuafl leitar þangað sem vinnu er að fá.“ Verkalýðshreyfingin ósátt við Vísismenn Verkalýðshreyfingin er ósátt við hvernig staðið var að mál- um við fyrirætlaðar sumarlok- anir Vísis á Þingeyri og Húsa- vík og vill að tryggt verði að starfsmennirnir fái tekju- tengdar bætur. Málefni fisk- verkafólks á Þingeyri og Húsavík, sem missa vinnuna í sumar vegna fimm mánaða sumarlokana, voru rædd á samningafundum í Karphús- inu í gær en kjaraviðræður eru nú í fullum gangi, að því er segir á ruv.is. Eins og greint hefur verið frá ákváðu eigendur Vísis hf. í Grindavík að loka starfs- stöðvum sínum á Þingeyri og á Húsavík í fimm mánuði í sumar frá 1.maí til 1. október. Alls missa um 90 manns vinn- una á þessum tíma. Ástæðan er sögð vera skerðing á þorsk- vóta og að um fyrirsjáanlegan langtíma hráefnisskort sé að ræða. Starfsmönnum var ekki sagt upp því þeir halda ráðninga- samningum og geta sam- kvæmt því hafið störf aftur í haust. Þessi aðferð, að senda starfsfólkið í sumarfrí í einn mánuð og á atvinnuleysisbæt- ur virðist hafa komið verka- lýðshreyfingunni á óvart. Hún knúði fram fyrir jól lagabreyt- ingu sem fól í sér lengingu á þeim tíma sem gert er ráð fyrir að fiskverkafólk geti fengið 80 prósent af meðallaunum sínum, þegar um hráefnisskort er að ræða. Áður var kveðið á um 45 daga en nú 60 daga. Frá þessu er greint á ruv.is. – sigridur@bb.is Þingeyri.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.