Bæjarins besta - 31.01.2008, Blaðsíða 8
FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 20088
STAKKUR SKRIFAR
Lýðræði á villigötum
Stakkur hefur
ritað vikulega pistla í
Bæjarins besta í mörg
ár. Skoðanir hans á
mönnum og málefn-
um hafa oft verið
umdeildar og vakið
umræður. Þær þurfa
alls ekki að fara
saman við skoðanir
útgefenda blaðsins.
Þrátt fyrir það bera
ábyrgðarmenn
blaðsins ábyrgð á
skrifum Stakks á
meðan hann notar
dulnefni sitt.
Barnabók um ævintýri á Sléttu
Út er komin barnabókin Sumarfrí á Sléttu – amma segir frá. Slétta er eyðibýli í
Sléttuhreppi við mynni Jökulfjarða og er í friðlandi Hornstranda. Höfundur,
Birna Zophaníasdóttir og fjölskylda hennar dvelja þar oftast nokkrar vikur í senn
yfir sumartímann. Í umfjöllun um bókina aftan á kápu segir höfundur: „Mér
finnst yndislegt að hafa litlu barnabörnin mín með, skoða náttúruna með þeim,
upplifa og skapa ævintýri úr daglegu amstri. Eitt sumarið varð þessi saga til.“
Bókin er til sölu hjá dóttur Birnu, Árnýju Herbertsdóttur ljósmyndara í Myndási.
Aðeins nítján störf vestur
Aðeins var ráðið í tæplega 19 opinber störf af 28 sem til stóð að flytja eða stofna á
Vestfjörðum á síðasta ári. Samkvæmt tillögum Vestfjarðarnefndarinnar og samkomulagi
við ríkisstjórnina er gert ráð fyrir að fyrir árslok 2009 hafi 85 störf verið flutt vestur.
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og nefndarmaður í Vestfjarðarnefndinni,
segir að nefndin hafi komið saman í síðustu viku til að fara yfir hverjar efndirnar voru á
síðasta ári. Hann segir að samkvæmt fjárheimildum í fjárlögunum verði fjöldi opinberu
starfanna kominn í 46 í árlok sem þýði að á 2009 verði flutt eða stofnuð þar 39 störf.
Kosningaþátttaka meðal kvenna
meiri í NV-kjördæmi en hjá körlum
Kosningaþátttaka í Norð-
vesturkjördæmi í alþingis-
kosningunum síðastliðið vor
var 86% en alls voru 21.126
kjósendur á kjörskrá. Er það
töluvert minni þátttaka en í
kosningunum 2003 þegar
89,3% af 21.247 skráðum
kjósendum tók þátt. Þetta
kemur fram í Hagtíðindum
sem Hagstofa Íslands hefur
gefið út um kosningarnar.
Kosningaþátttaka var meiri
meðal kvenna en 86,8% eða
10.240 konur með kosninga-
rétt greiddu atkvæði sitt í vor
á móti 85,5% karla. Þetta vek-
ur athygli þegar litið er til þess
að árangur kvenna Norðvest-
urkjördæmi var arfaslakur en
engin kona var kjörin á þing í
kjördæminu. Kjördæmið var
það eina á landinu þar sem
konur hlutu ekki náð fyrir aug-
um kjósenda og flokksmask-
ínanna. Munur milli kynjanna
var einnig sýnilegur árið 2003
þegar kosningaþátttaka kvenna
var 90% á móti 88,7% karla.
Ef litið er til sveitarfélaga á
Vestfjörðum má sjá að í flest-
um tilfellum er kosningaþátt-
taka kvenna meiri. Í Bolungar-
vík greiddu 90,5 kosninga-
bærra karla atkvæði og 85,9%
kvenna í kosningunum í vor, í
Ísafjarðarbæ greiddu 87,5%
kvenna og 84,6% karla at-
kvæði, 84,3% karla í Reyk-
hólahreppi tóku þátt í kosn-
ingunum og 85,5%, í Tálkna-
fjarðarhreppi voru það 82,4%
kvenna og 79,4% karla, í Vest-
urbyggð 80,2% karla og 83,4%
kvenna, 88,2% kvenna og
80,5% karla í Súðavíkurhreppi,
76% karla og 87,5% kvenna í
Árneshreppi, 81% kvenna og
90,2% karla í Kaldrananes-
hreppi, 96,4% kvenna í Bæjar-
hreppi og 66,7% karla, og
87,6% karla og 90,2% kvenna
í Strandabyggð.
– thelma@bb.is
Vilja breyta aðalskipulagi Suðureyrar
Umhverfisnefnd Ísafjarðar-
bæjar hefur lagt til að breyt-
ingartillaga á aðalskipulagi
Suðureyrar 1983 - 2003 verði
samþykkt óbreytt enda komi
ekki fleiri athugasemdir við
breytingartillöguna. Ein at-
hugasemd barst við auglýsinga-
og athugasemdaferli vegna
breytinganna þar sem við-
komandi fannst rökin með til-
lögunni ekki nógu sannfær-
andi til að réttlæta breyting-
una. Rökstuddi hann mál sitt
með því að benda á að óupp-
fyllta svæðið fyrir innan Tún-
götu hafi verið skipulagt sem
íbúðarbyggð og ef breytingar
verða á íbúaþróun til fjölgunar
væri umrætt svæði mikilvægt
til byggingar með uppfyllingu
lónsins.
Einnig gerir hann athuga-
semd að vegur sem skilur
íþróttasvæðið frá íbúabyggð-
inni samkvæmt núverandi
skipulagi yrði lagður af myndi
það hefta aðkomu að blokk-
inni sem rýmir um 20 íbúðir.
Auk þess fannst viðkomandi
að breytingin hafi ekki verið
auglýst á fullnægjandi hátt.
Umrædd tillaga tekur til breyt-
inga á svæði austan við Tún-
götu og Sætúns. Umhverfis-
nefnd bendir á að svæðið inn-
an Túngötu er að stórum hluta
á hættusvæði vegna ofanflóða
og ekki heppilegt byggingar-
svæði fyrir íbúðabyggð, þó er
gert ráð fyrir íbúðarsvæði á
reit D sem er utan hættusvæð-
is. Af þessum ástæðum hefur
umhverfisnefnd verið að skoða
miðbæinn/hafnarsvæðið með
það að markmiði að koma fyr-
ir íbúðarsvæði á kostnað iðn-
aðarsvæðis/hafnarsvæðis. Nú-
verandi sparkvöllur er stað-
settur á svæði sem flokkast
undir opið svæði til sérstakra
nota, á íþróttasvæði Suður-
eyrar.
Þess má geta að umhverfis-
nefnd tók fyrir á fundi sínum
í ágúst staðsetningu sparkvall-
ar á Suðureyri og var þá bókað
að hann yrði staðsettur á nú-
verandi malarvelli samkvæmt
tillögu frá Teiknistofunni Eik
á Ísafirði.
– thelma@bb.is
Suðureyri.
Stjórnmálamenn eiga stærstan þátt í því að skapa sér virðingu í augum
kjósenda sinna. Missi þeir virðingu ættu þeir að líta í eigin barm. Fyrir viku
var fjallað um nýju fötin keisarans sem kostuðu tæpa milljón króna með af-
slætti. Þau dugðu ekki eins og reyndar var velt upp að kynni að verða
raunin. Óskiljanlegt er af hverju Björn Ingi Hrafnsson hætti, nema ef vera
skyldi fyrir það að eitthvað betri hafi beðið, þótt enn sé það ekki komið í
ljós. Björn Ingi Hrafnsson er frjáls að því að láta af pólitískum störfum sín-
um. En sá sem leitað hefur stuðnings almennings og verið kosinn skuldar
kjósendum öllum betri skýringu en þá að meintar árásir, sem fólgnar voru
í því að upplýsa fatakaup frambjóðenda, hafi knúið hann til brotthvarfs.
Það var satt að fötin voru keypt og það var líka satt að Björn neitaði að
kannast við þau kaup framan af. Óskiljanlegt er af hverju menn forðast
sannleikann. Hitt er líka satt að Tjarnarkvartettinn, sem byggir meðal ann-
ars á stuðningi Vestfirðingsins Margrétar Sverrisdóttur, átti stuðnings-
menninna sem sýndu af sér skrílslæti í Ráðhúsi Reykjavíkur við meirihluta-
skiptin. Þar var lýðræðið á villigötum og lítill sómi að þeirri hegðun.
Enn furðulegra er umtalið og árasirnar sem beinast að Ólafi F. Magnússyni
borgarstjóra vegna heilusfars hans. Rétt væri að fá heilsufarsvottorð allra
borgarfulltrúa svo bera mætti saman, vilji menn á annað borð fara þessa
ósmekklegu leið. Vel kann að vera að Ólafur sé ekki besti borgarstjórinn
sem margir geta hugsað sér, en hitt er víst að núverandi meirihluti, hversu
mikið sem hann kann að fara í taugarnar á mörgum, er með meirihluta
greiddra atkvæða kjósenda í kosningunum 2006 að baki sér. Hvað hafa
hinir óánægðu hugsað sér? Það er ekki ljóst. Dagur er horfinn og kannski
vilja þeir ekki bara að nótt taki við heldur svartnættið sjálft.
Öll sú undarlega uppákoma sem ítrekað verður í Reykjavík vekur upp
spurningar um það hvort borgarfulltrúar séu almennt vandanum vaxnir, að
annast málefni kjósenda sinna. Við höfum ekki betri aðferð, en lýðræðið
kallar á það að þeir sem leika á þeim vettvangi virði reglurnar. Auðvitað er
súrt að þurfa að láta af völdum, raunverulegum eða ímynduðum, en nú
blasir við að allir verstu gallarnir hafa birst á skömmum tíma og of margir
tapað yfirsýn og sjálfsstjórn. Á meðan þjóðin veltir sér upp úr borgarmálefn-
um af fullkomnu gagnsleysi gleymist hið mikilvæga hlutverk sem sveitar-
stjórnarmönnum er ætlað að leysa af hendi. Athyglin beinist frá því sem
gerist um allt land að skrílslátum og stóryrðum í Reykjavík meðan við
landsbyggðarmenn þurfum á því að halda að okkar eigin sveitarstjórnarmenn
gleymi ekki skyldum sínum við landsbyggð í vörn.
En flugvöllurinn fær frið í bili, landi og lýð til gagns. Fátt er svo með öllu
illt að ei boði nokkuð gott.