Bæjarins besta - 31.01.2008, Blaðsíða 18
FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 200818
Kórarnir sameinuðust í söng á sólarfagnaðinum. Myndir: Þorsteinn J. Tómasson.
Nýtt lag frumflutt á sólarfagnaði
Sameiginlegur sólarfagnað-
ur Sunnukórsins og Karla-
kórsins Ernis fór fram í Edin-
borgarhúsinu á Ísafirði á laug-
ardagskvöld. Ballið var að
vanda vel sótt og töldu gest-
irnir hátt í 200. Fagnaðurinn
fór fram með glæsibrag en
sem endranær var vegleg dag-
skrá í boði þar sem tónlist var
í hávegum höfð. Matreiðslu-
meistarar frá veitingastaðnum
Við Pollinn töfruðu fram snitt-
ur og hinar ómissandi Sunnu-
kórspönnukökur.
Dagskráin hófst á stórsveit-
artónum Lúðrasveitar Tónlist-
arskóla en því næst stigu á
stokk kórarnir tveir og var há-
punktur kvöldsins er nýtt lag
Baldurs Geirmundssonar var
frumflutt við texta Ólínu Þor-
varðardóttur. „Þetta heppn-
aðist mjög vel, nýbreytnin var
sú að við héldum þetta í sam-
starfi við Karlakórinn og á
nýjum stað. Ég held að allir
hafi verið mjög ánægðir og
fullur vilji sé fyrir því að halda
samstarfinu áfram“, segir
Guðfinna Hreiðarsdóttir, tals-
maður skemmtinefndar.
Að loknu borðhaldi var
borðum rutt frá og stiginn dans
fram á rauða nótt við undirleik
hljómsveitarinnar Húsið á
sléttunni. Fyrsti sólarfagnað-
urinn var haldinn árið 1935
og hefur nánast verið árlega
síðan og er hefðin er orðin
mjög löng fyrir þessum við-
burði. – thelma@bb.is