Bæjarins besta


Bæjarins besta - 31.01.2008, Qupperneq 20

Bæjarins besta - 31.01.2008, Qupperneq 20
FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 200820 Besta dægurlagið flutt og leyndarmáli upp- ljóstrað á Sólarkaffi Ísfirðingafélagsins Hátt í 500 manns skemmtu sér á sólarkaffi Ísfirðingafélagsins í Reykjavík sem haldið var í 63. sinn á Broadway á föstudagskvöld. Þar skemmtu sér saman um 550 manns sem á einn eða annan hátt tengjast Ísa- firði. Að sögn Jakobs Fals Garðarssonar, formanns Ísfirðingafélagsins lukk- aðist kvöldið í alla staði ágætlega og dagskráin heppnaðist alveg fádæma vel. „Ég held ég geti fullyrt fyrir hönd allra sem þarna voru að ræðumaður kvöldsins, Einar Hreins- son, átti kvöldið. Hann fór á þvílíkum kostum að það verður lengi í minnum haft. Gaman er að segja frá því að Einar tilkynnti í lok ræðunnar með bros á vör að það var hann sem málaði vatnsdæluhúsið á Ísafirði.“ Þá vakti það einnig gríðarlega lukku þegar besta ísfirska lagið, að mati lesenda bb.is, var flutt af Elínu Smáradóttur og hljómsveitinni Apollo. „Salurinn stóð allur upp og söng með, þetta var alveg stórkostlegt og Elín er bara Ingibjörg okkar tíma“, segir Jakob Falur. Að vanda voru ýmsar viðurkenningar veittar á Sólarkaffinu og þá má nefna Guðfinn Kjartans- son sem var heiðraður fyrir ómetanleg störf í þágu félagsins undanfarna áratugi. Hann var fjarver- andi en Erla Axelsdóttir, eiginkona hans, tók við blómvendi og sérsmíðuð- um ermahnöppum með gamla Ísafjarðarmerkinu sem Dýrfinna Torfadóttir, gullsmiður smíðaði. Að dagskrá tæmdri var dansað fram á rauða nótt en Ísfirðingurinn Bjarni Arason hélt uppi fjörinu í broddi Milljónamæringa- fylkingarinnar. Fleiri myndir munu birtast í svipmyndum á bb.is innan tíðar. Meðfylgjandi myndir frá hátíðinni tók Ólöf Dómhildur Jó- hannsdóttir. – thelma@bb.is

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.