Bæjarins besta - 18.12.2008, Blaðsíða 2
FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 20082
Samgönguráðuneytið, sem
fer með yfirstjórn sveitar-
stjórnarmála í landinu, hefur
sent sveitarstjórn Súðavíkur-
hrepps bréf þar sem athygli
sveitarstjórnarinnar er vakin
á þeirri meginreglu stjórn-
sýsluréttarins að hver sá sem
ber upp skriflegt erindi við
stjórnvöld eigi almennt rétt á
því að fá skriflegt svar, sé
þess óskað. Þá bendir ráðu-
neytið sveitarstjórninni einnig
á almenna málshraðareglu
stjórnsýsluréttar sem kveður
á um það, að ef fyrirsjáanlegt
sé að afgreiðsla máls muni
tefjast, þá beri að skýra aðila
máls frá því og upplýsa um
ástæður tafanna og hvenær af-
greiðslu málsins sé að vænta.
Ástæður þess að ráðuneytið
sendir sveitarstjórn Súðavík-
urhrepps þetta bréf er bréf
Björns Jóhannessonar, hrl.
fyrir hönd umbjóðenda sinna,
til ráðuneytisins þar sem vakin
er athygli á því að erindum
sem send séu byggingaryfir-
völdum í Súðavíkurhreppi,
þ.m.t. sveitarstjórn, sé ekki
svarað. Erindin varða ágrein-
ingsmál varðandi byggingu
vélageymslu að Birnustöðum.
Bygging vélageymslunnar var
á sínum tíma kærð til úrskurð-
arnefndar skipulags- og bygg-
ingarmála sem felldi úr gildi
það byggingarleyfi sem bygg-
ingaryfirvöld í Súðavíkur-
hreppi höfðu gefið út vegna
byggingarinnar.
Tæpir sex mánuðir eru nú
liðir frá því að úrskurðar-
nefndin kvað upp úrskurð í
málinu og virðist lítið hafa
gerst í málunum eftir það. Í
56. gr. skipulags- og bygging-
arlaga kemur fram að hafi
mannvirki verið byggt án til-
skilins leyfis skuli það fjar-
lægð og láti viðkomandi sveit-
arstjórn hjá líða innan sex
mánaða að fjarlægja mann-
virkið frá því að henni er
kunnugt um málið skuli Skipu-
lagsstofnun láta fjarlægja
mannvirkið á kostnað við-
komandi sveitarfélags.
– bb@bb.is
Erindum
ekki svarað
Landsbankahúsið á Ísafirði 50 ára
Sögusýning opnaði í útibúi
Landsbankans á Ísafirði á
mánudag í tilefni af því að
húsið er orðið 50 ára gamalt.
Sýningin verður opin fram yfir
áramót og söguannáll Lands-
bankans liggur frammi, öllum
að kostnaðarlausu á meðan
birgðir endast. „Hér er alltaf
heitt á könnunni og eitthvað
góðgæti með því á meðan á
sýningunni stendur“, segir
Inga Á Karlsdóttir, útibústjóri.
Landsbankinn hefur starfað á
Ísafirði í yfir hundrað ár.
Bankinn opnaði útibú á staðn-
um 15. maí 1904 og var það
annað útibú Landsbankans
utan Reykjavíkur. Hið fyrsta
opnaði á Akureyri tveimur ár-
um áður. Útibúið flutti í nýtt
og glæsilegt hús í Pólgötu í
desember 1958.
Útibúið flutti úr gömlu og
ófullnægjandi verslunarhús-
næði en það hafði þá flutt
fimm sinnum síðan það var
stofnað. Ljóst var að nýja stór-
hýsið var framtíðarhúsnæði
bankans. Nýbyggða húsið var
tvær hæðir og ris og var afar
vel búið að starfsfólki og við-
skiptavinum. Sérstaka athygli
vakti hversu vel tækjum búin
öll starfsemin var á þessum
tíma. Í gjaldkera- og bókhalds-
deild voru nýtísku bókhalds-
vélar og var Ísafjarðarútibúið
tæknilega fullkomnasta banka-
afgreiðsla sinnar tíðar. Ein slík
bókhaldsvél er til sýnis í úti-
búinu en þetta tæki var einmitt
notað á Ísafirði í mörg ár.
Bankahúsið á Ísafirði var
hið síðasta af þremur sem
Landsbankinn byggði yfir úti-
bú sín í þessum stíl á sjötta
áratugnum. Hin tvö voru tekin
í notkun árið 1953 á Selfossi
og 1954 á Akureyri. Bárður
Ísleifsson er arkitekt hússins. Landsbankahúsið á Ísafirði er orðið 50 ára gamalt.
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar fer
ekki eftir áliti bæjarlögmanns
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar
hafnaði í síðustu viku beiðni
Kristjáns Ólafssonar um end-
urskoðun á álagningu fast-
eignagjalda á fasteignina
Kirkjuból 4 í Engidal. Tildrög
málsins eru þau að allt frá því
að Kristján flutti sauðfjárbú-
skap sinn frá Neðri-Tungu að
Kirkjubóli 4 á árið 1999 og
fram til ársins 2007 var fast-
eignaskattur af eigninni reikn-
aður með sama hætti og útihús
eða önnur mannvirki á bú-
jörðum sem tengjast landbún-
aði. Á árinu 2007 ákváðu bæj-
aryfirvöld að breyta álagning-
unni og flokkuðu fasteignina
í annan flokk, þ.e. undir flokk-
inn aðrar fasteignir, s.s. iðn-
aðar-, skrifstofu- og verslunar-
húsnæði.
Lögmaður Kristjáns, Björn
Jóhannesson, hrl., óskaði í maí
s.l. eftir endurskoðun á ákvörð-
un bæjaryfirvalda auk þess
sem óskað var eftir rökstuðn-
ingi fyrir breytingunni. Taldi
Björn ljóst að breytingin ætti
sér ekki lagastoð, m.a. þar sem
Bæjarráð ákvað á fundi sínum
2. júní s.l. að leita álits bæjar-
lögmanns á erindi Björns.
Á fundi bæjarráðs 3. des-
ember s.l. var lagt fram álit
bæjarlögmanns, Andra Árna-
sonar, hrl., þar sem m.a. kom
fram að þar sem ekki væri um
frístundabúskap að ræða á
Kirkjubóli 4, yrði að telja að
skattlagning ætti að vera með
sama hætti og útihús í sveit-
um. Bæjarráð ákvað hins veg-
ar að fara ekki eftir áliti bæj-
arlögmanns. – bb@bb.is
fasteignin væri eingöngu nýtt
sem fjárhús og ekki væri um
frístundabúskap að ræða og
óeðlilegt væri að álagning
fasteignagjalda á viðkomandi
eign væri með öðrum hætti en
sambærileg útihús í sveitum.
Verslun í Bjarna-
búð í áttatíu ár
Friða á húsið Bjarnabúð í
Bolungarvík samkvæmt til-
lögu að deiliskipulagi sem
umhverfismálaráð hefur
lagt til að verði samþykkt,
en þar hefur verið rekin
verslun í 80 ár. „Það leggst
bara ágætlega í okkur að
það eigi að friða húsið. Hér
mun áfram vera verslun og
við höldum bara áfram
okkar striki“, segir Stefanía
Birgisdóttir sem rekur búð-
ina ásamt eiginmanni sínum
Olgeiri Hávarðarsyni.
Bjarnabúð var byggð árið
1919 úr timbri frá Noregi
en það var byggt af samein-
aða verslunarfélaginu. Bjarni
Eiríksson byrjaði svo með
Verslun Bjarna Eiríkssonar
1927. Sonur hans, Benedikt
Bjarnason, tók svo við versl-
unarrekstrinum af Bjarna-
búð 1958 og Stefanía Birg-
isdóttir hefur rekið versl-
unina s.l. 12 ár.
Að sögn Stefaníu er nóg
að gera í Bjarnabúð um
þessar mundir. „Jólatraff-
íkin er svipuð undanfarin
ár.“ – thelma@bb.is