Bæjarins besta - 18.12.2008, Blaðsíða 10
FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 200810
Egill um borð í B757 á leið frá Argentínu til Kúbu 2006. Þar áskotnaðist honum þessi forláta kúrekahattur og þótti honum tilvalið að skella honum upp eftir flugtak frá Buenos Aires.
Veit ekki hvað pappírsdýrin í
Brüssel segðu við svona flugi í dag
– segir Egill Ibsen Óskarsson flugstjóri
frá Suðureyri þegar hann lítur til baka
„Þá var bílum stillt upp við sinn hvorn brautar-
endann með bremsuljósin upp í vindinn. Þegar maður
svo flaug yfir bílinn við nærendann dró maður af
og beið, enda brautin kolsvört og ómögulegt að ná
mjúkri lendingu við svona aðstæður. Ég veit ekki
hvað pappírsdýrin í Brüssel segðu við svona flugi í
dag, en þetta var bara pjúra „bushflying“ og sjálfsagt
„ekki hægt að gera svona“, en þá gleyma menn
staðháttaþekkingunni.“
„Stundum var mikið að gera
í sjúkrafluginu. Mér er minn-
isstætt atvik þegar ég var á
bakvakt og fékk hringingu um
„akút“ flug til Grundarfjarðar
vegna hjartaáfalls. Ég rauk af
stað út á völl og mér til furðu
var þar þegar kominn Gunnar
Örn Hauksson starfsbróðir
minn, nú flugstjóri hjá Ice-
landair, og var að draga út vél-
ina. Þetta var fyrir tíma gems-
anna. Ég spurði einskis, taldi
að læknirinn hefði hringt í
okkur báða til öryggis. Við
fórum í loftið en Gunnar setti
stefnuna til Patreksfjarðar mér
til undrunar og ég kváði við.
Kom þá í ljós að hann var að
fara í annað sjúkraflug þangað
en það hafði verið hringt út á
sama tíma. Við lentum í snar-
hasti og ég rauk af stað til
Grundarfjarðar á annarri vél.
Úr þessu varð um fimmtán
mínútna töf sem kom þó ekki
að sök.
Líka er mér minnisstætt póst-
flug til Patreksfjarðar ásamt
Bjartmari Erni Arnarsyni, sem
nú er líka flugstjóri hjá Ice-
landair. Þar sem við sátum í
kaffi hjá Magnúsi heitnum
Guðmundssyni á Patreksfirði
var hringt út í sjúkraflug til
Hólmavíkur. Þar var hins veg-
ar svartaþoka, þannig að ég
ákvað að senda sjúkrabílinn
til Arngerðareyrar í Ísafjarð-
ardjúpi. Þar átti að vera heið-
skírt og gott veður, en þegar
til kom lá þar allt í þoku. Við
flugum því lágflug „út fyrir“
eins og það var kallað, þ.e.
fórum út fyrir alla firðina og
inn Djúpið. Stundum þurftum
við að fljúga ansi lágt en þar
kom staðháttaþekkingin í góð-
ar þarfir. Við gerðum aðflug
að Arngerðareyri úr lítilli hæð
og lentum þó að við sæjum
aðeins inn á hálfa braut. Kom
svo í ljós að fáum augnablik-
um áður voru starfsmenn
Flugmálastjórnar við vinnu á
vellinum og höfðu rétt áður
farið með bíl sinn af brautinni.
Þeim hafði ekki dottið í hug
að lendandi væri. Úr lofti lítur
þetta hins vegar allt öðruvísi
út og tókst lendingin vel.“
Þannig segir Egill Ibsen Ósk-
arsson flugmaður og flugstjóri
frá Suðureyri við Súganda-
fjörð frá tveimur af mörgum
eftirminnilegum atvikum þeg-
ar hann var í sjúkra- og póst-
fluginu hjá Flugfélaginu Erni
á Ísafirði. Hjá Herði flug-
manni. Frá þeim tíma er mikið
vatn runnið til sjávar, eins og
sagt er. Núna er Egill búsettur
í Madríd á Spáni ásamt fjöl-
skyldu sinni. Flugtúrarnir eru
allmiklu lengri en fyrrum og
farkostirnir öllu stærri.
Egill er fæddur á Eyrargötu
2 á Suðureyri við Súganda-
fjörð 2. apríl 1966 – í kolvit-
lausu veðri, eins og hann segir.
Móðir hans er Guðrún Sigríð-
ur Egilsdóttir, vestfirsk að
uppruna. Faðir hans var Ár-
mann Óskar Karlsson, ættaður
úr Þykkvabæ og Reykjavík.
Foreldrarnir skildu þegar Egill
var tveggja ára. Óskar faðir
hans lést árið 1992 eftir erfið
veikindi.
Hér á eftir segir Egill frá
sjálfum sér fyrr og nú. Þrátt
fyrir fjarveru frá æskustöðv-
unum eru þær honum hug-
leiknar – og kannski einmitt
þess vegna.
Undirritaður blekbóndi leyf-
ir sér að skjóta því hér inn, að
Egill var meðal nemenda hans
við Menntaskólann á Ísafirði
fyrsta veturinn sem hann
kenndi þar. Einn í þeim glæsi-
lega og góða og minnisstæða
hópi sem lauk stúdentsprófi
frá MÍ vorið 1986. Egill var
góður og samviskusamur náms-
maður þó að undirritaður
muni ekki neinar einkunnir
lengur. Hitt er enn í fersku
minni hversu viðfelldinn og
ljúfur þessi piltur var – þó að
hann hafi sosum ekki skorið
sig neitt úr hópnum hvað það
snerti! Sú var þó tíðin, að Egill
þótti miður góður nemandi ...
Sparisjóðurinn
hafði trú á piltinum
„Ég gekk í barnaskólann á
Súgandafirði og þótti afar
slakur nemandi“, segir hann.
„Ólafur heitinn Þórðarson
skólastjóri kallaði móður
mína eitt sinn á sinn fund og
tjáði henni að það yrði aldrei
neitt úr þessum pilti, því hann
gæti ekki lært. Ég náði þó að
hanga og var síðan sendur í
Héraðsskólann í Reykholti í
Borgarfirði, en þar var ég í
tvo vetur. Þaðan fór ég í
Menntaskólann á Ísafirði þar
sem Björn Teitsson réð ríkjum
og kláraði stúdentinn á réttum
tíma 1986.
Sumarið 1986 opnaði Flug-
skólinn á Akureyri starfsstöð
á Ísafirði og hóf ég þá flugnám
ásamt meðal annarra Samúel
Samúelssyni lækni, Herði Ing-
ólfssyni, Guðmundi Harðar-
syni og fleiri góðum mönnum.
Veturinn 1987 hóf ég atvinnu-
flugmannsnám hjá Fjölbrauta-
skóla Suðurlands, en námið
var þá starfrækt í Reykjavík í
fyrsta sinn og vorum við í
talsverðu húsnæðishraki allan
veturinn. Einnig stundaði ég
bóklegt flugkennaranám sam-
hliða atvinnuflugmannsnám-
inu. Það var í fyrsta skipti