Bæjarins besta


Bæjarins besta - 18.12.2008, Blaðsíða 24

Bæjarins besta - 18.12.2008, Blaðsíða 24
FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 200824 vel tækjum búnir, erum t.d. með tölvuskurðarvélar og sér- staka klefa til að yfirborðs- meðhöndla stálið.” Þið hafið kvartað nokkuð undan aðstöðumun, sérstak- lega út af samgöngumálunum sem hafa verið erfið, sérstak- lega að vetri til? „Það er vissulega ákveðin hindrun fólgin í því að vera með fyrirtækið staðsett þar sem það er. Hins vegar eru margir aðrir þættir sem vega upp þá galla. Við lítum svo á að meðan gallarnir eru ekki fleiri en kostirnir þá sé engin ástæða til að fara. Það er mjög margt gott í umhverfinu sem við getum nefnt. Til dæmis samstarfið við sjávarútvegs- fyrirtækin. Við eigum gríðar- lega verðmætt samstarf við fyrirtæki eins og Bakkavík, HG, Fiskverkun Jakobs Val- geirs, Vísi, Íslandssögu og fleiri aðila sem er mjög ákjós- anlegt fyrir okkur í vöruþróun og nýsköpun. Þetta er bara eins og risastór tilraunastöð fyrir okkur. Eitt sinn kom for- stjóri Rannsóknarstofnunar Fiskiðnaðarins (RF) í heim- sókn. Hann hallaði sér aftur í stólnum á skrifstofunni hjá mér og spurði hvers vegna í ósköpunum við værum með fyrirtækið á Ísafirði. Ég spurði hann á móti hvor okkar væri með stærri rannsóknarstofu, hann á Skúlagötu í Reykjavík eða ég með Ísafjörð, Súðavík, Bolungarvík, Flateyri og Þingeyri. Hann horfði á mig þögull í smástund og svo átt- aði hann sig á því að aðstaðan sem við höfðum til að þróa okkar vöru var okkar sterkasta hlið. Við höfum ætíð notið návígisins við iðnaðinn og höfum átt farsælt samstarf við hann frá fyrstu tíð.” Þið eruð núna orðnir með stærri atvinnufyrirtækjum á Ísafirði? „Við teljumst eflaust til þess hóps. Það hefur kannski ekki komið til af góðu. Það voru mjög öflug fiskvinnslufyrir- tæki á Ísafirði sem nú eru horf- in á braut. Við höfum vaxið að sama skapi og erum á fimmtánda ári. Það má segja að við höfum vaxið hægt og örugglega.” Hversu mikið af ykkar tekj- um kemur erlendis frá í dag? „Það er að jafnaði 70 til 90 prósent. Fer svolítið eftir ár- ferði og hvernig krónan hefur það hverju sinni en við höfum lifað mörg mögur ár á meðan krónan var sterk, á meðan virkjunarframkvæmdirnar stóðu yfir fyrir austan. Ofan í kaupið fengum við niðurskurð á þorskkvóta sem var svakalegt áfall fyrir sjávarútveginn og þar með fyrir okkur sem áttum mikið undir innlendum mark- aði á þeim tíma þegar krónan var það sterk að við vorum ekki samkeppnishæfir í út- flutningi. Við erum búnir að ganga í gegnum harðindi und- anfarin ár og erum kannski að njóta augnabliksins núna. En þá er ástandið þannig að mað- ur veit ekki alveg hvort maður á að hlæja eða gráta.” Maður man eftir ykkur þremur í vinnugöllunum yfir- leitt saman. Hvernig var það fyrir þig að skipta út vélsmíða- gallanum fyrir skrifstofufötin? „Það var sérstakt svo ekki sé meira sagt. Mér hafði nú aldrei þótt það merkileg vinna að vera á skrifstofu. Satt að segja hélt ég að menn kæmu bara úthvíldir heim til sín eftir daginn. Þeir sætu við borð all- an daginn og töluðu í síma eða við hvern annan. Það er vissulega mjög ólíkt gamla starfinu þegar maður stóð við rennibekkinn tólf til fjórtán tíma á dag. Ég býst við því að það væri gott ef maður gæti gert sitt lítið af hvoru. Þetta er öðruvísi þreyta.” Það hafa sprotið upp fleiri lítil sprotafyrirtæki í kringum 3X Technology eins og Wish veiðihjólin? „Já, það var ákveðin til- raun.” Eigið þið eitthvað í þessu fyrirtæki? „Við eigum eitthvað örlítið í því en erum búnir að taka það út úr 3X. Það lifir alveg sjálfstæðu lífi. Við stofnuðum líka Rennex, renniverkstæði sem sinnti okkar framleiðslu. Það var til að lágmarka áhættu í rekstri 3X. Við keyptum mjög dýrar framleiðsluvélar og ætluðum okkur að ná í auk- in verkefni sem tengdist renni- smíði í gegnum það félag þannig að það þurfti annan kúltúr og annars konar mark- aðssetningu. Seinna meir var það síðan sameinað 3X.” Hann er mikill veiðimaður hann Steingrímur sem hann- aði Wish? Þú ert ekkert í því sjálfur, eða hvað? „Jú, ég hef mikinn áhuga á fluguveiði og mikla veiðiást- ríðu. Ég hef bara verið í vinn- unni síðastliðin ár og ekki verið duglegur að fara í veiði. Ég hef verið að byggja upp fyrirtækið. Þegar við héldum á fyrsta hjólinu fannst mér ég vera búinn að uppfylla þennan draum að búa til fyrsta ís- lenska veiðihjólið. Við Stein- grímur unnum saman í Stál- smiðjunni í gamla daga og þar kviknaði þessi draumur sem við létum rætast.” Hvað gerir þú annað en að vinna? „Ég er svona rétt að jafna mig núna eftir tveggja ára maraþon í námi og starfi. Það hafa orðið miklar breytingar á mínum högum síðan 2006 þegar við ákváðum að flytja frá Ísafirði. Ég fór í masters- nám í viðskiptafræði í Háskól- anum í Reykjavík sem ég var í meðfram starfi mínu hjá 3X. Á sama tímabili fór félagið í gegnum mjög erfitt tímabil í rekstri en 2007 reyndi mjög á okkur. Þannig að það hefur eiginlega ekkert verið gert annað en að sinna vinnunni sinni og klára þennan skóla sem ég gerði í vor. Síðan tók ég reyndar gott sumarfrí með fjölskyldunni. Við fórum öll fimm í Evrópureisu sem var ákaflega skemmtileg og verð- skuldað fyrir alla að fara að- eins í burtu saman. Það eru þónokkuð mörg ár síðan fjöl- skyldan hefur farið saman í ferðalag. Ég á þrjú börn, Rut er elst Útskrift Jóhanns úr (MBA) Mastersnámi í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík sl vor, frá vinstri eru tengdaforeldrarnir, Hörður og Fjóla, síðan koma Rut, Jóhann Atli, Sonja, Jóhann og Elín móðir Jóhanns. Jóhann á leið í markið í sínu fyrsta maraþoni árið 2006. Í lok hlaups- ins segist Jóhann hafa hlaupið meira af vilja en getu, allavegana síðustu metrana. Feðgarnir eru báir með netta mótorhjóladellu og eru á myndinni staddir á gömlu Þorskafjarðarheiðinni sl. sumar á leið sinni niður í fallegasta stað Vestfjarða, Langadal Í Ísafjarðardjúpi. Albert staddur í einni fullkomnustu risahumar- verksmiðju í heimi, að taka í notkun nýja verksmiðju sem 3X hannaði og byggði á mettíma (2003) Jóhann í sömu verksmiðju með einn sprellifandi risahumar. Jói og Sonja saman að veiða, Sonja með sinn fyrsta flugulax sem var landað hálftíma síðar.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.