Bæjarins besta


Bæjarins besta - 18.12.2008, Blaðsíða 27

Bæjarins besta - 18.12.2008, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 2008 27 Sköpun býr í hverjum manni Fallegir verslunargluggar hafa vakið athygli þeirra sem leið hafa átt um miðbæ Ísa- fjarðar að undanförnu, en þar er að verki útlitshönnuðurinn Valdís Ólafsdóttir. Hún er Hornfirðingur en hefur búið á Ísafirði til margra ára. Valdís er leikskólakennari og hefur starfað sem slíkur með hléum ásamt því að hafa átt og rekið með meðeiganda sínum blóma- verslunina Blómabúð Ísa- fjarðar, sem einu sinni var og hét. Í blómabúðarrekstrinum vaknaði áhugi hennar á vöru- framsetningu og sölutækni. Hún ákvað að breyta til, tók skrefið og fór í nám í Iðnskól- ann í Hafnarfirði í útstillingar- hönnun. Útstillingardeildin, sem er orðin 10 ára, er deild innan almennrar hönnunar- deildar skólans. Valdís er sjálfstætt starfandi útstilling- arhönnuður og aðstoðar nú verslunareigendur við að koma vörum sínum á framfæri og gleður bæjarbúa í leiðinni. – Hefurðu unnið lengi sem útlitshönnuður? „Nei, ég er nýlega útskrifuð. Ég fór í Iðnskólann í Hafnar- firði haustið 2005 á útstilling- arbraut. Hann er eini skólinn á landinu sem útskrifar útstill- ingarhönnuði/útlitshönnuði. Námið tekur tvö ár og er bæði bóklegt og verklegt. Margs konar hönnun er kennd ásamt sjónlistum, listum og menn- ingu, markaðsfræði og fleiru. Við sem höfum fengist við verslunarrekstur höfum kann- ski forskot í náminu, þar sem við þekkjum af eigin reynslu að vöruframsetning skiptir miklu máli. Það hjálpar því óneitanlega að hafa verið starfandi í verslunargeiranum þó vissulega snúist útlitshönn- un ekki eingöngu um verslanir og gluggaútstillingar. Hún getur verið margs konar og þarf ekki að kosta svo mikið. Hún getur verið í formi ráð- gjafar um framsetningu vöru og skipulag verslana, eða þá að við gætum komið að mál- um fyrirtækja nokkrum sinn- um á ári, hún getur snúist um uppsetningar á veislum og ráðstefnum, skipulag sýninga og margt fleira. Ég trúi því að það að hafa fagfólk með í ráðum skipti máli. Vittu til – vara sett fram á fallegan hátt eykur sölu.“ Fallega framsett vara kveikir í fólki – Þér hefur verið vel tekið af verslunareigendum og bæj- arbúum. „Já, mjög svo. Það hefur óneitanlega áhrif að fólk stoppar mann á götu til að láta ánægju sína í ljós. Það sem er kannski stóra málið er að mark- aðssetja sjálfan sig, í því er ég óreynd en samt hvergi smeyk. Ég gekk í fyrirtæki og kynnti mig bæði hér heima og á Reykjavíkursvæðinu, gerði mér ferilskrá og notaði tölvu- tæknina. Ég hef verið heppin að fá verkefni, en efnahags- ástandið í landinu snertir við þessari atvinnugrein eins og öðrum.“ – Hvað varð til þess að þú fórst út í þetta nám? „Ég áttaði mig á þessari sköpunarþörf þegar ég starfaði við blómabúðarreksturinn, þar sem við vorum að færa hluti fram og til baka, bæði fagurfræðilega og sölulega, sem varð til þess að varan seldist frekar. Maður gat svo- lítið ráðið því hvað seldist með góðri framsetningu og auð- vitað vandaðri sölutækni. Ég var líka alla tíð að færa til hluti heima hjá mér, heimilis- fólkið rataði orðið ekki um húsið því ég var alltaf að breyta“, segir Valdís og hlær. „Jú, blómabúðin var kveikjan að náminu.“ minn er mikið úti á sjó svo ég get haft hlutina svolítið eftir mínu höfði. Ég hef verið heppin að fá verkefni í minni heimabyggð en get hæglega tekið að mér verkefni hvar sem er á landinu. “ – Hvernig fer vinnan fram? „Starfið er svolítið einyrkja- starf, sérstaklega þegar maður er sjálfstætt starfandi, en mjög fjölbreytt. Vinnan fer þannig fram að ég hitti þá sem ráða mig til verka og fæ að vita og skynja óskir þeirra, þarfir og væntingar. Síðan tekur við hugmynda- og skissuvinna, svo efnisleit og undirbúningur og síðast framkvæmdin, sem er látin taka sem stystan tíma þar sem oft er um að ræða sölusterkustu svæði fyrirtækja og verslana.“ – Eitthvað að lokum? „Já, takk fyrir mig. Lífið er stutt og það er um að gera að njóta þess. Hugsum vel um okkur sjálf og hvert annað. Hugum sérstaklega að unga fólkinu, því það er framtíðin.“ sem lífið snýst um. Ég var kannski svona tilbúin að breyta til að mér fannst allt svo skemmtilegt, ekki síst að fylgjast með þeim nemendum sem gátu verið börnin mín. Þau tóku manni svo vel. Í skól- anum var ótrúlega frjótt ungt fólk sem ég hafði unun af að fylgjast með. Þetta var mjög skemmtilegur tími, mikil já- kvæðni í hópnum og mikið framkvæmt. Ég var ekki eini Ísfirðingurinn í hópnum, við vorum fimm og útskrifuðumst fjórar. Ein þeirra er búsett hér.“ Njótum lífsins – Ætlarðu í útrás eða verð- urðu bara á heimaslóðum? „Er ekki útrásin stórhættu- leg? Nei, bara grín. Ég hef verið að kynna mig á Reykja- víkursvæðinu eins og ég sagði, en það þýðir þó ekki að ég ætli að flytja héðan. Maður getur unnið hvar sem er, burt- séð frá búsetu, og ég á upp- komin börn og maðurinn Skemmtilegt í skólanum – Þú ert ekki eingöngu út- litshönnuður, er það? „Nei, ég er leikskólakennari að mennt og útskrifaðist 1978, það er gott og gefandi starf. Börn og ungt fólk hafa alltaf verið mér hugleikin. Ég hef unnið sem leikskólakennari með hléum síðan ég útskrif- aðist en hef þó mest unnið að sérkennslumálum seinni árin og var sérkennslustjóri við Sólborg í sjö ár. Einhvers stað- ar á þessari leið var ég svo viðriðin blómabúðarrekstur- inn. Þegar við seldum hann fór ég í leikskólann í nokkur ár en tók svo skrefið og skellti mér í námið. Ég sé ekki eftir því vegna þess að ég kynntist nýjum hlutum og áhugaverðu fólki og ekki síst frábærum skóla. Í Iðnskólanum í Hafnarfirði er blanda ungra og eldri nem- enda. Umburðarlyndi er það

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.