Bæjarins besta


Bæjarins besta - 18.12.2008, Blaðsíða 37

Bæjarins besta - 18.12.2008, Blaðsíða 37
FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 2008 37 mikil viðbrigði fyrir þá þar sem þeir fara með skólabíln- um yfir á Ísafjörð í skólann á hverjum degi, auk þess sem skólinn þar er töluvert stærri en skólinn á Skagaströnd sem taldi 110 nemendur. En það vill þeim til happs að þeir eru báðir í Kaupfélagshúsinu og eru því frekar afmarkaðir, og svo hafa þeir auðvitað stuðn- ing hvor af öðrum og eiga frændsystkini í skólanum. Þeir bera sig mjög vel þrátt fyrir að það sé ekki auðvelt að byrja í skóla svona á miðjum vetri.“ „Lífið er annars óðum að komast í fastar skorður. Ég hugsa að eftir nokkra daga eigi manni eftir að líða eins og við höfum alltaf verið hérna“, segir Fjölnir. „Það er líka nýtt fyrir okkur að búa úti í sveit. Okkur líst mjög vel á það. Við höfum líka búið á fámennum stöðum áður, eins og t.d. á Tálknafirði, og þar leið okkur mjög vel“, segir Heiðrún. „Segja má að Tálknafjörður eigi sérstakan stað í hjarta okkar, þó svo að okkur hafi liðið vel á öllum þeim stöðum sem við höfum búið á“, bætir Fjölnir við. „Já, alls staðar er gott að vera“, segir Heiðrún. „En þetta hefur í för með sér að jóla- kortalistinn er orðinn endalaus og maður hefur lent í því að hitta einhvern í Kringlunni sem maður þekkir en muna ómögulega hvaðan á landinu hann er.“ „Við getum orðið sagt að við „þekkjum“ mörg þúsund manns“, skýtur Fjölnir að. „En hingað erum við komin til að vera og erum hætt öllu þessu flakki“, segir Heiðrún. Alltaf breytingar með nýjum mönnum – Má búast við einhverjum nýjum áherslum í prestsstarf- inu eftir að þú tekur við, séra Fjölnir? „Það eru alltaf einhverjar breytingar með nýjum mönn- um en ég vona að ég geti starf- að í samlyndi við alla og verið til gagns. Fólk hér er mjög jákvætt og skemmtilegt svo maður finnur það á sér að hlut- irnir eigi eftir að ganga vel. Allavega leggst þetta vel í mig. Ég er náttúrlega búinn að kynnast kirkjustarfi víða á landinu og hef þannig náð að safna í sarpinn. Ég sé því ýmsa möguleika framundan. Og svo eins og Heiðrún sagði áðan, þá höfum við aldrei prófað að búa í sveit áður. Það verður spennandi að sjá þegar vorar þá mögu- leika sem fylgja því að eiga heima á bújörð yfir bjargræð- istímann.“ – Ertu ekki að taka við starf- inu á mjög annasömum tíma fyrir presta? „Jú, jólahelgihald er alltaf mikilvægt og verður að vera með ákveðnu sniði, svo ég verð að koma mér ansi hratt inn í hlutina. Svo fylgir jólun- um margt ósýnilegt sem mað- ur þarf að huga að. Margir eiga um sárt að binda, hafa kannski misst ástvini og þá geta hátíðirnar verið erfiður tími. Þó svo að þetta sé mikil fjölskylduhátíð og flestir gleðjist, þá má ekki gleyma hinum.“ „Þetta eru líka sérstök jól að því leyti“, bætir Heiðrún við, „að þetta eru fyrstu jólin í þeim efnahagsþrengingum sem landinn stendur nú frammi fyrir, þó svo maður viti ekki ennþá nákvæmlega hvaða áhrif þessar þrengingar eiga eftir að hafa.“ „Já, þetta eru jól í kvíða hjá mörgum. Og ekki er ólíklegt að flestir sýni hófsemi við jólahaldið, en það er ekki þar með sagt að jólin verði neitt verri fyrir vikið. Kannski að þau verði látlausari, en þegar maður er í faðmi fjölskyld- unnar á það ekki að skipta máli“, segir Fjölnir. Fall er fararheill Það gekk ekki áfallalaust fyrir prestshjónin að flytja vestur og blaðamaður vonar að hér eigi við máltækið fall er fararheill. „Daginn sem Fjölnir fór í starfsviðtalið fór bankinn okk- ar á hausinn. Óneitanlega hugsaði maður með sér að það væri nú eflaust ekki það snið- ugasta í heimi að leggja í bú- ferlaflutninga þegar svona stæði á. En við ákváðum að kostirnir væru svo margir að það væri vel þess virði“, segir Heiðrún. „Segja má að þetta hafi verið mjög stressþrunginn tími, bæði vegna ástandsins í þjóðfélaginu og svo hvort maður fengi brautargengi hér vestra. Það tæmdist ört af raf- geyminum“, segir Fjölnir og hlær. – Og eflaust ekki auðvelt að flytja þvert yfir landið með ungbarn. „Nei, það er nú ekki það þægilegasta í heimi að pakka búslóð með kornabarn á hand- leggnum. Og svo þegar ég var að taka síðustu spýtuna úr gámnum fyrir utan nýja heim- ilið fékk ég svo svakalegt þursa- bit, að Heiðrún þurfti að aka mér á sjúkrahús. Ég hef aldrei fengið svona bit áður og vissi hreinlega ekki hvað var að gerast. Ég var nýbúinn að vera að burðast með píanóið og svo fór þessi litla spýta svona með mig. En ég var nú fljótur að ná mér aftur á strik“, segir Fjölnir. „Við höfum sem sagt flutt með okkur píanó á alla þá staði þar sem við höfum búið. Það er heimamundurinn og því ómissandi. En fall er farar- heill. Og við trúum því að það sé kraftur í fjöllunum og fólk- inu og mannlífið hér eigi sér bjarta framtíð. Okkur finnst gott að vera komin heim.“ Óskum starfsfólki okkar, viðskiptavinum og Vestfirðingum öllum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða Óskum starfsfólki okkar, viðskiptavinum og Vestfirðingum öllum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða Óskum starfsfólki okkar, viðskiptavinum og Vestfirðingum öllum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða Súðavíkurhreppur Krabbameinsfélagið Sigurvon á Ísafirði sendir félagsmönnum, velunnurum og öðrum Vestfirðingum bestu óskir um gleðileg jól og heillaríka framtíð. Þökkum stuðninginn á líðandi ári. Vestfirðingar, ferðafólk! Hugheilar jóla- og nýárskveðjur frá Reykjanesi. Innilegar þakkir fyrir samstarf og viðskiptin á árinu sem er að líða. Ferðaþjónustan Reykjanesi við Ísafjarðardjúp, sími 456 4844. Óskum starfsfólki okkar, viðskiptavinum og Vestfirðingum öllum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða Sendum okkar bestu óskir um gleðilega jóla- og nýárshátíð og þökkum árið sem er að líða Sendum okkar bestu óskir um gleðilega jóla- og nýárshátíð og þökkum árið sem er að líða Sendum okkar bestu óskir um gleðilega jóla- og nýárshátíð og þökkum árið sem er að líða

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.