Bæjarins besta - 18.12.2008, Síða 6
FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 20086
Hin sanna gjöf
Ritstjórnargrein
Keypti áfengi sem
handhafi forsetavalds
Á þessum degi fyrir 20 árum
Útgefandi: H-prent ehf., kt. 600690-1169, Sólgötu 9, 400 Ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564
Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892 5362, bb@bb.is · Blaðamenn: Thelma Hjaltadóttir, símar 456 4693
og 849 8699, thelma@bb.is · Birgir Olgeirsson, símar 456 4560 og 867 7802, birgir@bb.is
· Ritstjóri netútgáfu bb.is: Sigurjón J. Sigurðsson · Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125,
halldor@bb.is. Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Sveinbjörnsson · Lausasöluverð er kr. 400
eintakið með vsk. Veittur er afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti. ·
Önnur útgáfa: Ferðablaðið Á ferð um Vestfirði. · ISSN 1670 - 021X
,,Að gefa af eigum sínum er lítil gjöf. Hin sanna gjöf er að
gefa af sjálfum sér. Því að hvað eru eigur þínar annað en hlutir,
sem þú geymir og gætir af ótta við að þarfnast þeirra á morg-
un?“
Í okkar annars ágæta landi hefur ætíð verið til staðar fólk
sem kviðið hefur fyrir jólunum. Næsta víst er að nú er sá hópur
stærri en áður. Ekki að undra þá horft er til þess ástands sem nú
ríkir. Og nú gerir kvíðinn vart við sig af fleiri orsökum en áður
og með áhrifameiri hætti. Þúsundir fyrirvinna heimila horfast
í augu við atvinnuleysi. Allri þeirri djúpstæðu óvissu er því
fylgir verður ekki með orðum lýst. Það skynja þeir einir sem
á brennur.
,,Hin sanna gjöf er að gefa af sjálfum sér.“ Á þessum jólum
er meiri ástæða en fyrr að huga að umfangi og verðgildi gjafa.
Fátt er svo smátt að ekki færi gleði þar sem tómið eitt er fyrir.
,,Er ekki óttinn við þorsta, þegar brunnur þinn er fullur, sá
þorsti, sem ekkert fær svalað?“ Allra tíma áreitin og þörf
spurning!
,,Jörðin gefur ykkur ávöxt sinn, og ykkur mun ekkert skorta,
ef þið kunnið að taka á móti gjöfum hennar. – Með því að deila
rétt gjöfum jarðarinnar, fáið þið auð og allsnægtir. – En ef þið
deilið ekki af kærleika og réttsýni, verða sumir ágjarnir og
aðrir svangir.“ Kemur þetta ekki eitthvað kunnuglega fyrir
sjónir?
,,Þó allt sé dimmt og dapurt
og daufleg vetrarsól
þá bera oss ætíð blessun
og birtu hin helgu jól.“
Vetrarsólstöður eru á næsta leyti; daginn tekur að lengja.
Tímamót fyrir okkur, sem fáum ekki notið vetrarsólarinnar á
þessum árstíma. Vestfirsku fjöllin koma þó ekki í veg fyrir að
við fáum notið birtu hinna helgu jóla til jafns við aðra. Það er
mikil blessun. Jólahelgina verður að varðveita. Með henni
lifir vonin um framtíðina, kynslóðirnar sem á eftir koma. Og
þótt nú syrti í álinn vitum við að öll él birtir upp um síðir. For-
feðurnir skiluðu okkur betra búi en þeir tóku við. Verðum við
föðurbetrungar?
Bæjarins besta sendir velunnurum sínum, nær og fjær,
bestu óskir um gleðileg jól og farsæld á komandi ári, með
kærri þökk fyrir samstarf og viðskipti á árinu, sem senn kveð-
ur. s.h.
(Tilvísanir: Kahlil Gibran: Spámaðurinn Guðrún Jóhannsdóttir: Tilfinningar)
Safnað fyrir nýju orgeli í Hólskirkju
Búið er að stofna orgelsjóð til þess að kaupa nýtt orgel fyrir Hólskirkju. Orgelið sem kom í kirkjuna árið 1960 er
orðið þreytt og hefur reynst erfitt að halda því í stillingu. Það hefur reynst vel en nú er tíminn þess að líða sem
aðalhljóðfæris kirkjunnar. Á aldarafmæli Hólskirkju bárust fjölmargar gjafir í sjóðinn. Daði Guðmundsson gaf
1.000.000 kr. til minningar um eiginkonu sína Fríðu Dagmar Snorradóttur. Kristný Pálmadóttir og Valdimar
Lúðvík Gíslason gáfu 500.000 kr. til minningar um foreldra sína þau Jónínu Jóelsdóttur og Pálma Árna Karvels-
son, Margréti Magnúsdóttur og Gísla Valdemarsson og til minningar um systkini sín þau Sigríði Lovísu Pálma-
dóttur og Gest Pálmason, Lárusar Guðmundar Gíslason og óskírðrar Gísladóttur, sem og annarra skyldmenna.
Eiríkur Finnur ráðinn fram-
kvæmdastjóri Trésmiðjunnar
Eiríkur Finnur Greipsson,
fyrrum aðstoðarsparisjóðs-
stjóri Sparisjóðs Vestfirðinga,
hefur verið ráðinn framkvæm-
dastjóri Trésmiðjunnar í Hnífs-
dal frá áramótum. Steinþór
Kristjánsson, einn af eigend-
um Trésmiðjunnar, segist hafa
gengið frá ráðningu Eiríks
Finns í síðustu viku og er ætl-
unin hjá fyrirtækinu að blása í
herlúðra á erfiðum tímum og
hefja mikla sókn á öllum víg-
stöðum og eru allir vopnfærir
menn á dekki kallaðir til.
„Það er margt nýtt í bígerð
hjá fyrirtækinu sem Eiríkur
Finnur kemur til með að leiða.
Hann sér um nýtt gæðastjórn-
unarkerfi hjá fyrirtækinu og
hönnun á nýrri innréttingar-
línu fyrir skrifstofur og heim-
ili. Hann sér um þátttöku á
tilboðum í evrópska efnahags-
svæðinu og við verðum með
nýbreytni á vestfirska mark-
aðnum þar sem við komum til
með að veita fólki ráðagjöf
og teikningar varðandi inn-
réttingar og innihurðir í eldri
húsum en það verður kynnt
nánar eftir áramót,“ segir Stei-
nþór.
Hann segir fyrirtækið vera
í nokkrum verkefnum þessa
stundina en töluvert hefur
dregið úr verkefnum sem snúa
að opinbera geiranum. „Við
erum því að leita nýrra leiða
til að skjóta sterkari stoðum
undir fyrirtækið. Af verkefn-
um sem við höfum verið að
sinna má nefna að við vorum
að klára innréttingar fyrir
Heilsugæslustöðina í Árbæ og
núna erum við að smíða inn-
réttingar fyrir leikskóla í Búð-
ardal. Þetta eru stærri verk-
efnin sem við höfum verið að
sinna svo eru ýmisleg smærri
verkefni sem við höfum sinnt,“
segir Steinþór. – birgir@bb.is
Jólastemmning var á tón-
leikum í Ísafjarðarkirkju í síð-
ustu viku þar sem kórsöngur
og hörpuhljómar spiluðu
stærsta hlutverkið. Flutt voru
ljúf jólalög og leikið undir á
hörpu en hápunktur tónleik-
anna var kórverkið „A Cere-
mony of Carols“ eftir Benja-
min Britten sem stúlknakór
Tónlistarskóla Ísafjarðar og
Vestfirsku valkyrjurnar sam-
einuðust um að syngja.
Verkið er skrifað fyrir þrjár
raddir og hörpu og inniheldur
11 lög, sem segja m.a. frá fæð-
ingu frelsarans, boðun Maríu
og freistingu Adams, en er
fyrst og síðast lofgjörð til Guðs.
Britten var eitt af höfuðtón-
skáldum Breta á 20. öld. Eftir
hann liggja ótal verk, stór og
smá, en hann samdi talsvert
af tónlist sérstaklega fyrir börn,
m.a. verkið „A Ceremony of
Carols“.
Flytjendur á tónleikunum
voru Sophie Schoonjans á
hörpu, Barnakór Tónlistar-
skóla Ísafjarðar, Stúlknakór
Tónlistarskóla Ísafjarðar, Val-
kyrjurnar, Helga Margrét Mar-
zellíusardóttir sópran, Arna
Björk Sæmundsdóttir alt.
Meðleikarar auk Sophie eru
Hulda Bragadóttir, píanó/org-
el og Jónas Tómasson, flauta.
Stjórnandi er Bjarney Ingi-
björg Gunnlaugsdóttir.
– thelma@bb.is
Jólastemmning í Ísafjarðarkirkju
Frá tónleikunum.
FORSETI Íslands mun að öllum líkindum ákveða í dag
hvort hún samþykkir tillögu dómsmálaráðherra um að víkja
Magnúsi Thoroddsen úr embætti hæstaréttardómara um stund-
arsakir, vegna kaupa hans sem handhafa forsetavalds á áfengi
á kostnaðarverði. Ráðherra ákvað á þriðjudag að leggja það
til, en höfða síðan mál á hendur Magnúsi. Ekki er unnt að víkja
dómara úr embætti nema með dómi. Ekki hefur verið ákveðið
hvort höfðað verður einkamál til embættismissis, eða opinbert
refsimál, fari forseti að tilmælum ráðherra. […]
Í framhaldi af mali Magnúsar Thoroddsens óskaði Ólafur
Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra, eftir því að fá skýrslu frá
Áfengisversluninní um kaup handhafa forsetavalds undanfarin
ár á áfengi á kostnaðarverði. Ólafur sagði í gærkvöldi að hann
hefði fengið þessa skýrslu í hendur, en ekki haft tíma til að
kynna sér hana. Hann sagði þó að sér sýndist kaupin ekki nálg-
ast magn það sem forseti Hæstaréttar keypti.
Fjármálaráðherra ætlar að kynna sér hvort einhver dæmi
séu þess að handhafar forsetavalds hafi notið sömu kjara og
forseti Íslands, t.d. hvað varðar endurgreiðslu söluskatts, en
tók fram að hann þekkti engin dæmi þess.