Bæjarins besta


Bæjarins besta - 18.12.2008, Page 32

Bæjarins besta - 18.12.2008, Page 32
FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 200832 Sendum okkar bestu óskir um gleðilega jólahátíð og þökkum árið sem er að líða Sendum okkar bestu óskir um gleðilega jólahátíð og þökkum árið sem er að líða Sendum okkar bestu óskir um gleðilega jólahátíð og þökkum árið sem er að líða Sendum okkar bestu óskir um gleðilega jólahátíð og þökkum árið sem er að líða Aðalstræti 22 · Ísafirði Sendum okkar bestu óskir um gleðilega jólahátíð og þökkum árið sem er að líða Njarðarsundi 2 · Ísafirði Sendum okkar bestu óskir um gleðilega jólahátíð og þökkum árið sem er að líða Sindragötu 14 · Ísafirði www.bilaverid.is Sendum okkar bestu óskir um gleðilega jólahátíð og þökkum árið sem er að líða Suðurgötu 9 · Ísafirði Vélsmiðja Ísafjarðar Mjósundi 1 · Ísafirði Bílaverið Svæðisútvarp Vestfjarða Við óskum öllum Vestfirðingum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða. Sýslumaðurinn á Ísafirði Lögreglustjórinn á Vestfjörðum Sendum félagsmönnum okkar bestu óskir um gleðilega jólahátíð og þökkum árið sem er að líða Félag opinberra starfsmanna Vestfjörðum Sendum okkar bestu óskir um gleðilega jólahátíð og þökkum árið sem er að líða Sendum okkar bestu óskir um gleðilega jólahátíð og þökkum árið sem er að líða Sendum okkar bestu óskir um gleðilega jólahátíð og þökkum árið sem er að líða Sendum okkar bestu óskir um gleðilega jólahátíð og þökkum árið sem er að líða Sendum okkar bestu óskir um gleðilega jólahátíð og þökkum árið sem er að líða Sendum okkar bestu óskir um gleðilega jóla- hátíð og þökkum árið sem er að líða Sendum okkar bestu óskir um gleðilega jólahátíð og þökkum árið sem er að líða Sendum okkar bestu óskir um gleðilega jólahátíð og þökkum árið sem er að líða Aðalgötu 59 – Suðureyri Árnagata 2-4 · Ísafirði Klofningur ehf., Árnagata 2-4 · Ísafirði Matís Árnagata 2-4 · Ísafirði Árnagata 2-4 · Ísafirði Hamraborg Hafnarstræti 7 · Ísafirði Árnagata 2-4 · Ísafirði Sendum okkar bestu óskir um gleðilega jóla- hátíð og þökkum árið sem er að líða Kennari, hljóðmaður og hönnuður Páll Einarsson starfar sem kennari við hönnunardeild Listaháskóla Íslands og Iðn- skólans í Hafnarfirði ásamt því að starfa sem sjálfstæður hönnuður. Hann býr í Hlíð- unum í Reykjavík ásamt Berg- lindi Hálfdánsdóttur og börn- um þeirra. Hann á einnig far- sælan hljóðmannsferil að baki og vann með nokkrum af stærstu nöfnum íslenska tón- listarbransans. Páll ólst upp í Holtahverfinu á Ísafirði og mörkuðu áhugamál uppvaxt- arára hans fyrir vestan núver- andi starfsframa. Hann þótti liðtækur tónlistarmaður, fékkst við myndlist og þótti almennt séð uppátækjasamur þegar hann var yngri. – En hvað var það helsta sem hann hafði fyrir stafni þegar hann var yngri? „Ég þótti víst mjög uppá- tækjasamur. Ég veit nú ekki hvort sú árátta hafi verið eitt- hvað meiri en hjá öðrum. Það má kannski frekar segja að ég hafi verið mjög duglegur að finna mér eitthvað að gera.“ – Þú stundaðir myndlist á menntaskólaárunum, ekki satt? „Jú, og þótti sú listgrein mjög skemmtileg. Það var gaman að vera myndlistar- maður þegar ég var ekki háður neinu. Við fengum að mála í kompu í Menntaskólanum á Ísafirði og settu oft upp sýn- ingar þar sem myndirnar voru seldar.“ – Ég heyrði að þú hefðir oft selt myndir til að eiga fyrir mötuneytispening. Páll hlær. „Þetta var ekki stór bísniss hjá manni og ekki mikið að hafa upp úr þeirri sölu þegar markaðurinn var ekki mjög stór. En þetta var mjög skemmtilegt tímabil.“ – Svo varst þú í tónlist þegar þú varst yngri. Var tónlistin stórt áhugamál? „Já, ég myndi segja það. Ég stundaði hana mest af öllum áhugamálum þegar ég var yngri. Ég lék á bassa í hljóm- sveitinni KY. Þar voru þeir Venni, Eiríkur Sverrir og Jón Geir með mér í hljómsveit. Við sömdum eitthvað af lög- um en vorum aðallega í því að spila á dansleikjum á Sjall- anum sáluga. Þá spilaði maður fyrir smá vasapening sem kom svo í ljós að ég eignaðist al- drei.“ – Kláraðir þú eitthvert fram- haldsnám á Ísafirði? „Nei, ég flosnaði fljótlega upp úr náminu. Var fremur óstýrlátur og óþekkur. Ég fór því að vinna hjá Pols og 3xStál og kunni miklu betur við mig sem iðnaðarmaður heldur en að læra eitthvað sem ég hafði ekki áhuga fyrir. Á þessu tíma- bili var hljóðmennskuáhugi minn mikill og þá iðju stund- aði ég grimmt á helgum í Sjall- anum. Eftir að ég fluttist suður 1997, rúmlega tvítugur að aldri, hafði ég mikið að gera sem hljóðmaður og ekki leið á löngu áður en sú vinna varð eitt af mínum aðalstörfum.“ – Þú stundaðir eitthvert nám fyrir sunnan? „Ég kíkti við á Listnáms- braut í Iðnskólanum í Reykja- vík og kunni ágætlega við mig þar. Ég flosnaði upp úr því námi vegna peningaleysis. Listnám þótti ekki mjög „töff“ á þeim tíma og þessi braut var mjög lítil í Iðnskólanum þá. Námið var ekki metið til stúd- entsprófs og ég gat ekki fengið námslán út á það. Þá hellti ég mér út í hljóðmennskuna. Eitt af mínum fyrstu störfum sem hljóðmaður var hjá Quarashi þegar þeir voru að byrja. En síðan komst ég á mála hjá Bubba Morthens í gegnum auglýsingastofu sem ég vann hjá. Ég vann í tvö ár fyrir Bubba sem hljóðmaður.“ – Hvernig var að vinna fyrir „Kónginn“? „Það var erfitt,“ segir Páll og hlær. – Að hvaða leyti var það erfitt? „Heyrnin versnar smám saman í þessum bransa. Það vandamál hans gerði mér erfitt fyrir í hljóðmennskunni. Ég þurfti að setja upp jafn stórt hljóðkerfi á sviðið sem hann notar til að heyra í sjálfum sér líkt og fyrir áhorfendur í saln- um.“ – Kom eitthvað skemmti- legt upp á með honum? „Skemmtilegast við Bubba er vitleysan sem getur komið út úr honum þegar hann talar. Hann talar miklu hraðar en hann hugsar. Hann sagði t.d. „að sigla milli skers og bryggju“ á einum tónleikunum. Ég hætti svo hjá Bubba og fór þá að vinna fyrir Milljónamær- ingana og geri enn. Ég hef líka starfað fyrir Apparat Organkvartett og Trabant. En upp á síðkastið hef ég unnið dálítið með honum Valdimar Jóhannessyni og kærstu hans, Ernu Ómarsdóttur danshöf- undi. Ég hef að mestu leyti kúplað mig út úr hljóðmenn- skubransanum. Evróputúrun- um og „höstlinu“ í kringum hljóðmennskuna fylgdi mikið álag sem var farið að bitna á fjölskyldunni. Ef ég var ekki úti í löndum, þá var ég að vinna á nóttunni. Ég vildi heldur ekki brenna inni í þessu starfi því maður verður svo þreyttur á því til lengdar.“ – Hvert er stærsta eða besta „giggið“ þitt?

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.