Bæjarins besta - 18.12.2008, Blaðsíða 33
FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 2008 33
„Það var með Apparat Org-
ankvartett í síðasta Evróputúr
þeirra. Þá enduðum við í Belg-
íu á afmælishátíð í Gent. Hún
heitir Vorut og þar voru um
tíu þúsund manns saman-
komnir í miðbæ borgarinnar
að hlýða á tónlistarmenn há-
tíðarinnar. Vinnan við þá tón-
leika var rosalega skemmtileg
og hljóðkerfin voru einhver
þau stærstu sem ég hef unnið
með.“
– Hvernig er að róta og
hljóðprufa Apparat Organ-
kvartett sem er með hrikalega
stór og mikil hljóðfæri, ýmist
Hammondorgel eða risastóra
hljóðgervla?
„Þetta eru svaka hlunkar
sem þeir nota. Tæplega sex
hundruð kíló af hljóðfærum.
En ég var fyrst og fremst að
vinna fyrir þá sem hljóðmaður
en ekki sem rótari. Ég var
miklu meira í því að halda
orgelum þeirra á lífi því þau
eru komin til ára sinna. Þar
kom reynsla mín sem iðnmað-
ur að góðum notum.“
– Varstu ekki að vinna við
tónleika Deep Purple og Uriah
Heep í Laugardalshöllinni?
„Jú, þar vann ég sem organ-
tæknir fyrir hljómsveitirnar.
Þar stendur upp úr að hafa
unnið með Jon Lord, orgel-
leikara Deep Purple. Hann var
sérlega kröfuharður maður og
sleitulaus vinna að koma tækj-
unum í það horf sem hann
vildi. Hann var samt sem áður
aldrei almennilega ánægður
með ástand þeirra. Bergur
Geirsson, bassaleikari í Buff,
átti orgelið sjálft en Þórir Bald-
ursson átti Lesley hátalara-
boxin sem voru notuð við þau.
Jon Lord er algjörlega heyrn-
arlaus og var tóm steik öll
hljóðvinnsla í kringum hann.
Ég held ég hafi mælt hávaðann
á sviðshátölurum hans upp á
112 desibel.“
– Ég frétti að þú starfar sem
hönnuður.
„Jú, ég fór í Listaháskóla
Íslands 2001. Komst þar inn á
slembilukku. Ég nam vöru-
og iðnhönnun þar og á öðru
ári mínu var ég farinn að vinna
sem afleysingakennari. Síðan
hef ég hef starfað sem hönn-
uður í fjögur ár. Mestmegnis
fyrir aðra en mig sjálfan en
hef ávallt hægri höndina í mín-
um eigin verkefnum. Ég sýndi
verk mín á stórri sýningu í
Hafnarfirði í sumar sem hét
8+8 og fékk góðar viðtökur.
Þar sýndi ég bæði halogen og
flúorljós sem voru framleidd
með nýstárlegri aðferð. Þau
voru meðal annars framleidd
með haglabyssum og sprengi-
efnum. Tilgangur verkefn-
anna var að fá ófyrirsjáanlega
útkomu. Ég sýndi einnig á
stórri hönnunarsýningu á
Kjarvalsstöðum í fyrra sem
hét Kvika. Þetta eru fyrstu
stærstu verkefnin til þessa.
Það var frekar erfitt að byrja
nýjan starfsferil eftir að ég
dró úr hljóðmennskunni.“
– Er ekki góður tími að byrja
á svona nýsköpunarverk-
efnum á tímum sem þessum?
„Jú, það er mjög skemmti-
legt að vinna í nýsköpun í
kreppunni. Það er bara góður
mórall í nýsköpunarbransan-
um í kreppunni. Ég mun því
halda áfram kennarastarfi
mínu og skapa mér feril í hönn-
uninni.“ – birgir@bb.is