Læknablaðið : fylgirit - 01.04.2012, Síða 17

Læknablaðið : fylgirit - 01.04.2012, Síða 17
VÍSINPl Á VORDÖGUM FYLGIRIT 70 Rannsóknirnar eru þær fyrstu sem vitað er um að gerðar hafi verið til að byggja upp mælikvarða á víðtækum taugaeinkeimum sem draga úr framkvæmd við iðju. Brýnt er að halda þessum rannsóknum áfram og bæta meðal annars við gögnum frá einstaklingum með aðrar sjúkdóms- greiningar þannig að matstækið megi nýta á eins fjölbreyttan hátt og kostur er. 23 Önnur skynjun - ólík veröld: lífið á einhverfurófi Jarþrúður ÞórhaUsdóttir1, Hanna Björg Sigurjónsdóttir2 Landspítala, sjúkraþjálfun á Landakoti 2Háskóla íslands, fötlunarfræði jtll8@lli.is Inngangur: Fólk á einhverfurófi hefur ekki átt sterka rödd í samfélagi okkar og þegar fjallað er um líf þess og aðstæður er algengast að leitað sé til annarra en þess sjálfs. Rannsóknin sem hér er kynnt var unnin í meistaranámi í fötlunarfræðum í félags- og mannvísindadeild við Háskóla íslands undir handleiðslu dr. Hönnu Bjargar Sigurjónsdóttur á árunum 2007- 2010. Um eigindlega viðtalsrannsókn er að ræða. Markmið: Markmið rannsóknarinnar var að afla þekkingar og skilnings á því hvernig það er að vera á einhverfurófi út frá sjónarhóli þeirra sem hafa þá reynslu. Megináhersla var lögð á að öðlast a) þekkingu og skilning á skynjun/skynúrvinnslu þátttakenda og áhrifum hennar á daglegt líf og b) þekkingu á þýðingu greiningar inn á einhverfuróf fyrir þátttakendur svo og reynslu þeirra af skólagöngu. Aðferðir Rannsóknin byggir á 21 viðtali við átta fullorðna einstaklinga, þrjár konur og fimm karla sem höfðu fengið greiningu inn á einhverfuróf. Niðurstöður: Einkum er greint frá þeim niðurstöðum rannsóknarinnar sem Iúta að skynjun og skynúrvinnslu þátttakenda en í ljós kom að allir hafa þeir óvenjulega skynúrvinnslu sem hafði margvísleg áhrif á daglegt líf. Þeir þurfa að úthugsa margt af því sem gerist sjálfvirkt hjá öðrum í gegn um skynjunina. Þeim reynist því erfitt að vinna úr mörgum áreitum á sama tíma og bregðast við á viðeigandi hátt. Allt sem kemur óvænt er þátttakendum afar erfitt. Auk þess geta margvísleg áreiti í um- hverfinu verið yfirþyrmandi og sársaukafull og komið þeim úr jafnvægi. Þátttakendum fannst mikilvægt að sérstök skynúrvinnsla þeirra væri útskýrð því það auðveldaði þeim sjálfsskilning og öðrum skilning á ein- hverfu. Fjallað er um á hvern hátt skynjun þeirra er sérstök með orðum höfundar og þátttakenda sjálfra. Ályktanir: Niðurstöðumar, sem em samhljóma fjölmörgum ævisögum fólks á einhverfurófi og öðrum rannsóknum á þessu sviði, gefa til- efni til stóraukinnar áherslu á fræðslu um skynjun til þeirra sem em á einhverfurófi, aðstandenda og stuðningsfólks. 24 Ftannsókn á líðan og færni einstaklinga sem misst hafa fót (fætur) og komu til endurhæfingar á endurhæfingardeild Landspítala á Grensási 2000-2009 Þórunn Ragnarsdóttir og Sigrún Knútsdóttir Endurhæfingardeild Landspítala thorunnr%landspitali.is Inngangur: Flestir sem hafa misst fætur, bæði eftir slys eða sjúkdóma og farið í aðgerð á Landspítala hafa komið á Grensásdeildina til endurhæf- ingar. Engar rannsóknir hafa áður verið gerðar hjá þessum sjúklingahópi á íslandi. Markmið: Að kanna færni, göngugetu, verki, sár og lífsgæði og þar með hversu vel endurhæfingin hefur nýst. Einnig var ánægja með þjónustuna í sjúkraþjálfun metin og hvort eitthvað og þá hvað megi bæta. Aðferðir: Upplýsingar um sjúklingana voru fengnar úr sjúkraskrám Grensásdeildarinnar að fengnum tilskyldum leyfum. Alls höfðu 88 manns verið í endurhæfingu á Grensási eftir aflimun á fæti árin 2000-2009. Þrjátíu og fimm voru látnir en 6 vom annaðhvort erlendir ríkisborgarar eða höfðu ekki fengið gervifót. Fjömtíu og sjö fengu sendan spumingalista þar sem m.a. var spurt um aldur, kyn, ástæðu aflimunar, verki, sár, lífsgæði, reglulega hreyfingu og færni við ákveðnar athafnir. Við mat á færni var notaður kanadískur fæmikvarði, Locomotor Capability Index (LCI). Lífsgæði voru metin með 5 spum- ingum úr spurningalistanum um Heilsutengd lífsgæði eftir Kristinn Tómasson og fél. Einnig var spurt um mat á þjónustu sjúkraþjálfunar. Niðurstöður: Sjötíu og tvö prósent svömðu (N: 34), 74% karlar (N: 25) og 26% konur (N:9). 91 % (N:31) nota gervifæturna og ganga á þeim. Vandamál em nokkuð algeng svo sem verkir í stúf, draugaverkir, sár/ blöðrur og verkir í heila fætinum. Gmnnfæmi er góð en flóknari verk- efni reyndust mörgum erfið samkvæmt LCI. 68% þátttakenda (N:24) hreyfa sig reglulega, flestir 1-2 sinnum í viku. Lífsgæði eru í meðallagi hjá flestum á kvarðanum 1-10 samkvæmt spumingunum úr Heilsutengdum lífsgæðum Ályktun: Niðurstöðurnar gáfu vísbendingar um að þörf er á að bæta þjónustu við þennan sjúklingahóp, t.d. með því að koma af stað reglu- legri eftirfylgni í framhaldi af endurhæfingu á deildimii og slík þjónusta hóst í janúar 2012. 25 Hlutlægt og huglægt mat á Nuss-aðgerð vegna holbringu - bráðabirgðaniðurstöður María Ragnarsdóttir1, Bjami Torfasoiv, Helga Bogadóttir3, Steinunn Unnsteinsdóttir3, Gunnar Viktorsson* ’Sjúkraþjálfun Landspítala Hringbraut, 2skurðlækningasviði Landspítala, 3Barnaspítala Hringsins, 4Sjúkraþjálfaranum Hafnarfirði nmriara@Iandspitali. is, Inngangur: Tíðni holbringu er sögð frá 1 af 800 til 1 af 300 fæðingum. Einkenni eru þreyta, óþægindi fyrir brjósti, aukin hjartsláttur og lítið líkamlegt úthald. Auk þess upplifa sjúklingar oft sálrænt álag og nei- kvæða líkamsmynd. Markmið: Meta áhrif Nuss-tækni við holbringu á lungnastarfsemi, líkamsþol og öndunarhreyfingar ásamt að meta álit sjúklings á útliti brjótskassa síns. Aðferðir: Þátttakendur verða 20 10 - 24 ára drengir með Haller index > 3.2 sem fara í Nuss aðgerð. Lungnarýmd, öndunarhreyfingar, líkamsþol og mat sjúklings á útliti brjóstkassa síns verður metið fyrir skurðaðgerð, ári eftir aðgerð og 6 mánuðum eftir að spöng er fjarlægð. Niðurstöður: Átján þátttakendur hafa samþykkt þátttöku, þar af hafa 11 verið mældir fyrir skurðaðgerð og ári síðar. Niðurstöður þeirra 11 verða birtar nú. Meðal aldur var 18±3 ár, meðal líkamsþyngdarstuðull 21,50±4,37 kg/m2, 7 stunduðu líkamsrækt. Hámarks lungnarýmd var undir viðmiðunarmörkum hjá 3 sem ekki stunduðu neina líkamsrækt. Þessir sömu drengir voru einnig undir viðmiðunarmörkum í hámarks útöndunarflæði. Aðeins einn var undir miðmiðunargildi í FEV,%. Ári eftir skurðaðgerð var 1 undir viðmiðunarmörkum í hámarks lungna- rýmd, 3 í hámarks útöndunarflæði en enginn í FEV,%. Meðal þoltala fyrir skurðaðgerð var 37,09±9,60 ml/kg/mín en 44,02±9,74 ml/kg/ mín ári eftir skurðaðgerð. Heildar aftur-fram öndunarhreyfingar voru 11,46±0,21 cm fyrir skurðaðgerð og 14,88±0,29 cm ári þar á eftir. Ánægja með útlit án fata metin á skalanum 0-10 var að meðaltali 2,7+2,81 fyrir skurðaðgerð en 9,3±1,14 eftir skurðaðgerð. Ánægja með skurðaðgerðina var að meðalatali 9,7±0,48 af 10. LÆKNAblaðið 2012/98 17

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.