Læknablaðið : fylgirit - 01.04.2012, Side 19

Læknablaðið : fylgirit - 01.04.2012, Side 19
VISINDI A VORDOGUM FYLGIRIT 70 29 Hópstarf til að bæta félagslega færni fólks í geðrænum vanda Sveinbjörg Júlía Svavarsdóttir1'2, Kristín V. Ólafsdóttir', Elva Sturludóttir1, Sigrún Júlíusdóttir2 ’Geðsviði Landspítala, :félagsráðgjafardeild HÍ sveinbsv@landspitali.is Bakgrunnur: Ritrýnd grein sem hefur verði birt í vísindatímariti byggir á sögu, hugmynda-fræði og kenningum um hópstarf ásamt niðurstöðum rannsóknarinnar. Markmið rannsóknarinnar var að athuga, með eigindlegum viðtölum við þátttakendur í hópstarfi hvort þeir teldu að þau markmið sem þeir settu sér varðandi félagsfærni, hefðu náðst. Þeir sem veikjast af alvar- legum geðsjúkdómi eiga oft erfitt með að mynda tengsl og verða oft félagslega einangraðir. Aðferðafræði í hópstarfinu byggir á kenningum um gagnkvæman stuðning í raun (Gitterman, 2004) sem á rætur að rekja til kenninga William Schwartz (1961) og eru almennt þekktar sem gæðastaðall í hópstarfi (Steinberg, 2010). Þýðið var átta einstaklingar sem tóku þátt í hópstarfi á einni endurhæfingardeild geðsviðs. Rannsóknarspurningin var: Hvemig þjónar hópstarf þeim sem eiga í geðrænum vanda best og hvaða þættir hópstarfsins koma þeim sem best að notum? Fjögur megin þemu voru skilgreind úr viðtölunum: (1) samskipti ogfélagsleg tengsl, (2) stuðningur og sjálfsefling, (3) samkennd og traust, (4) Hagnýt ráð og leiðsögn Niðurstöður: Gagnsemi hópstarfsins var fyrst og fremst fólgin í félags- legum og tilfinningalegum stuðningi, sem hefur mikið meðferðarlegt gildi. Að hitta aðra í sambærilegri stöðu kemur af stað flæði óskilgreindra krafta innan hópsins. Fyrstu þrjú þemun endurspegla vel það sem þátt- takendur töldu sig helst fá út úr hópstarfinu. Sett markmið varðandi félagsfærni og sjálfstraust náðust og nýttust í daglegu lífi þáttakendanna. Ályktun: Rannsóknin styður kenningu um að viðurkenning og stuðn- ingur sem þátttakendur fá í hópstarfi séu gríðarlega mikilvægir þættir í endurhæfingu þeirra og geti hjálpað verulega í sálfélagslegri vinnu. Skoða þarf þær aðferðir sem beitt er til að gera starfið enn markvissara. Greinina má nálgast á: http://dx.doi.org/10.1080/01609513.2011.602221 30 Tal um dauðann. Tal um eigin yfirvofandi dauða - kynjamunur Bragi Skúlason, Ásgeir R. Helgason Landspítala og Karolinska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi bragi@landspi tal i. is Inngangur: Óbirt forkönnun á Landspítalanum á 14 körlum og 10 konum, sem voru annaðhvort í líknarmeðferð eða með skráð í sjúkraskrá að ekki ætti að endurlífga þau. Markmið: Markmið könnunarinnar var að meta hvort greinanlegur munur væri á því hvort karlar annars vegar og konur hins vegar opni á umræðu um eigin yfirvofandi dauða. Aðferðir: Allir sjúklingar sem óskuðu viðtals við sjúkrahúsprest (BS) á 10 vikna tímabili voru hluti af eigindlegri athugun. Niðurstöður: Af 14 karlmönnum áttu 4 (29%) frumkvæði að umræðu um eigin yfirvofandi dauða, innan tímaramma 30 mínútna viðtals. Af 10 konum áttu 6 frumkvæði að umræðu um eigin yfirvofandi dauða. Byggt á þessum niðurstöðum var hafinn undirbúningur að stærri könnun, sem stendur nú yfir. Fyrstu niðurstöður staðfesta niðurstöður forkönnunar. Ályktun: Niðurstöður þessarar forkönnunar gefa til kynna mun á opnun á umræðu um eigin yfirvofandi dauða á milli karla og kvenna. Tal um dauðann. Forkönnun Karlar % (N=14) Konur % (N=10) Fyrsta viðtal Frumkvæði að umræðu af hálfu sjúklinga 29(4/14) 60 (6/10) Engin umræða um dauðann 71 (10/14) 40(4/10) Annað viðtal Þeir sem ekki töluðu um eiginn dauða í fyrsta viðtali N=10 N=4 Óskuðu ekki eftir öðru viðtali 64 (9/14) 71 (8/10) Óskuðu eftir öðru viðtali n=5 n=2 Engin umræða um dauðann 100 (5/5) 100(2/2) 31 Dánarhlutfall íslenskra ekkla og samanburðarhóps: 6-9 ára skoðun Bragi Skúlason1-'■*, Lilja Sigrún Jónsdóttir3, Valgerður Sigurdardóttir1, Ásgeir R. Helgason2-5 'Háskóla íslands, Landspítala, 'I-Iáskótanum í Reykjavík, 3landlæknisembættinu, 4líknardeild Landspítala, 5Karolinska Institutet, Stokkhólmui bragi@landspitali. is Inngangur: Kannanir hafa sýnt að ekklar virðast hafa hærri tíðni ótíma- bærs dauða en aðrir karlar og líka hærra hlutfall en ekkjur. Nokkrar rann- sóknir sýndu mesta hættu á fyrsta hálfa árinu eftir missi, en aðrar hafa sýnt hættu mun lengur, oft tengt tilteknum dánarorsökum. Markmið: Markmið þessarar könnunar var að meta hvort íslenskir ekklar séu með hækkað dánarhlutfall samanborið við karla á sama aldri og sams konar búsetu í 6-9 ár eftir missi. Aðferðir: Ekklarnir voru fæddir á árunum 1924-1969 og eigin- konur þeirra létust á árunum 1999-2001.Vísindasiðanefnd, Persónu- vernd og Hagstofa fslands veittu leyfi fyrir þessari rannsókn. 31. desember 2001 voru fengin nöfn íslenskra ekkla, sem voru búsettir á íslandi og höfðu misst eiginkonur sínar á árunum 1999-2001. Ennfremur voru fengin nöfn samanburðarhóps kvæntra karla. 14 ekklar sem höfðu misst eiginkonu á tímabilinu voru þegar látnir. 357 ekklum og 357 kvæntum körlum var fylgt eftir á árunum 2002-2007. Dánarhlutfall allra karla á íslandi fæddra 1924-1969 var ennfremur skoðað. Dánarorsakir ekklaima og eiginkvenna þeirra voru skoðaðar til að kanna hugsanleg tengsl þar á milli. Þegar dánarorsakir voru kaimaðir hjá samanburðar- hópi og eiginkonum þeirra kom í ljós að þar voru engin hjón látin, hendur einungis annar aðilinn. Niðurstöður: Tölfræðilega marktækur munur fannst á milli ekkla og samanburðarhóps. Ekki var hægt að útiloka að lífsstílstengdir áhrifa- þættir stuðluðu að hækkuðu dánarhlutfalli í ekklahópnum. Ályktun: Að vera ekkill tengdist aukinni áhættu um dauða í a.m.k. 9 ár eftir makamissi. 32 Nýrnastarfsemi hjá eldra fólki eftir 12 vikna styrktarþjálfun og próteindrykki Alfons Ramel', Atli Amarson1, Ólöf Guðný Geirsdóttir'ÁKristín Briem2 Pálmi V jónsson11, Inga Þórsdóttir1 ’Rannsóknarstofu í næringarfreeði, Landspítala, heilbrigðisvísindasvii, matvæla- og næringarfræðideild, HÍ, 2námsbraut í sjúkraþjálfun HÍ, 3öldrunarsviði Landspítala og læknadeild HÍ/rannsóknarstofu HÍ og Landspítala í öldrunarfræðu. alfons@landspitali. is Inngangur: Til að viðhalda fitulausum massa eftir miðjan aldur eru styrktaræfingar og næg próteinneysla mikilvægir þættir. Hinsvegar hafa bæði styrktaræfingar og mikil próteinneysla verið tengd neikvæðum LÆKNAblaðið 2012/98 19

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.