Listin að lifa - 01.09.1996, Blaðsíða 3
Oflugt félag - hagur
okkar allra
I dag eru um 6000 manns í
Félagi eldri borgara í Reykjavík,
en yFir 20 þúsund 60 ára og eldri
á höfuðborgarsvæðinu.
Við viljum sjá fjölmennara félag
því að í allri hagsmunabarártu
liggur styrkurinn í fjöldanum á
bak við orð og kröfur. Stór hluti
af starfsemi félagsins er hagsmuna-
barátta enda kreppir nú mjög að
fjárhag og réttindum aldraðra.
FEB býður upp á kröftugt
félagslíf og félagsskírteini veitir
afslátt af vörum og þjónustu.
Fíægt er að fá ókeypis lögfræði-
aðstoð og ráðgjöf varðandi al-
mannatryggingar.
Gerist félagar! Hjálpið okkur
að gera FEB þróttmikið og fjöl-
mennt í þágu allra. Skráningar-
seðill fylgir blaðinu. Einnig má
skrá sig í gegnum síma. Arsgjald
er kr. 2.200 - og félagið gefur
nýjum félögum 1.200 kr. afslátt
fram til 1. desember nk. Réttindin
gilda til 15. mars á næsta ári.
Með bestu kveðju og von um
góðar undirtektir.
Félag eldri borgara í Reykjavík
og nágrenni, Hverfisgötu 105,
sími 552-8812 og 562-0612
Aprílgabbið
lifir enn
„Má ég ekki opna gluggann? Eg
þoli ekki að vera í loftlausu
herbergi.“ Með þessum orðum
geysist Erna inn á skrifstofu í
Risinu.
Léttur fótaburður og frískur
andblær fylgir göngugarpnum
Ernu Arngrímsdóttur. Steinunn
Finnbogadóttir var upphafs-
maður gönguklúbbsins, en Erna
er búin að stjórna gönguferðum
Göngu-Hrólfa frá árinu 1989.
Ekki svo lítið afrek, þegar litið er
á að gönguhópurinn sprettir úr
spori hvern einasta laugardag,
allan ársins hring. Ef allir laugar-
dagar (mínu,s tveir á ári) eru
taldir frá 1989 - hafa Erna og
Hrólfarnir farið í 372 göngu-
ferðir!
„Gangan gæti fallið niður
tvisvar á ári. Við göngum ekki, ef
jól eða nýársdag ber upp á laugar-
dag,“ segir Erna. Hvílíkir göngu-
garpar! Enda státa Göngu-Hrólf-
arnir sig af því að vera virkasti
hópurinn í félagsstarfinu hjá Fé-
lagi eldri borgara - sannkallaðir
FiAMINGJU-HRÓLFAR, en
nafnið Hrólfur merkir hamingja.
- Afhverju að leggja á sig alla þessa
göngu, Erna?
„Ég var ekki svo heppin að
fæðast heilbrigð. Um það leyti
sem Félag eldri borgara var stofn-
að, lá ég fárveik í rúminu. Þá hét
ég því að láta eitthvað gott af mér
leiða í sambandi við göngur, ef ég
kæmist á fætur aftur.“
Fyrsta apríl 1989 litu Göngu-
Hrólfar dagsins ljós. Fyrirhugaður
gönguklúbbur var þá auglýstur í
Morgunblaðinu. „Þeir sem lásu
auglýsinguna, tóku hana sem
aprílgabb,“ segir Erna og hlær.
„En gabbið lifir enn — er lifandi
fjörugt og kátt!“
Hugmyndajræðin í heilsuvakningu
Göngu-Hrólfanna:
„Hrólfarnir ganga ekki bara á
laugardögum, margir ganga á
hverjum degi og fara daglega í
sund. Heilsuvakningin smitar út
frá sér. Hrólfarnir eru meðvitaðir
um eigin heilsu, þegar þeir finna
hvað gangan gerir þeim gott.
Sumir hafa lést um 20 kg.
Algengt er að Hrólfarnir minnki
Göngugarpurinn Erna með aðal-
víkingnum í víkingaveislu með
Göngu-Hrólfum.
Frh. bls. 23