Listin að lifa - 01.09.1996, Blaðsíða 15
síðustu árum, þó að margt fleira
mætti nefna. Með setningu laga
um almannatryggingar árið 1946
og þróun þeirra gegnum árin,
vorum við Islendingar búnir að
skipa okkur sess sem velferðar-
þjóðfélag.
En höfum við gengið til góðs
götuna fram eftir veg? Því miður
verður að svara þessu neitandi,
a.m.k. hvað varðar réttindi
aldraðra á síðustu árum.
FEB eru hagsmunasamtök eldri
borgara, sem hafa unnið ötullega
að þeirra málum. En betur má ef
duga skal.
Til að ná sem bestum árangri er
mikilsvert, að félagið verði sem
fjölmennast. Með sameinuðu
átaki getum við varið réttindi
okkar og aukið þau. Fyrst og
fremst þurfum við að fá lögfest, að
við sitjum við sama borð og aðrar
stéttir og sé ekki sífellt verið að
hringla með réttindi okkar, því að
ekkert fer ver með okkur en
öryggisleysið.
3. sept. 1996
Margrét Thoroddsen
Þjónustuíbúð
Til sölu í íbúðakjarnanum
Skúlagötu 40 þriggja her-
bergja íbúð 100 m2 á fjórðu
hæð, með þvottahúsi og
geymslu á hæðinni. Bílastæði
í bílageymslu. Skipti á minni
eign möguleg.
Verð 10.5 milljónir. (Tilboð)
Ahvílandi 7 milljónir í
húsbréfum.
Upplýsingar í síma: 562-
Lykla-Dísin
Pöntunar- og bréfasími: 5 616 488
Öryggislyklakippan Lykla-Dísin er I)
sem skilar lyklunum alltaf heim til þín aftur.
Á bakhlið kippunnar er
finnandi beðinn um að leggja Lykla-Dísina
í næsta póstkassa eða á lögreglustöð.
Lögreglan styður við bakið á Lykla-Dísinni.
Leyninúmer eiganda er skráð á bakhlið lyklakippunnar,
svo að hvergi kemur fram nafn hans og eru upplýsingar
ekki gefnar í síma.
Söluverð lyklakippunnar er kr. 850, en Lykla-Dísin er seld
á skrifstofu FEB á sérstöku verði til félagsmanna, kr. 760.
Snúður og Snælda í Risinu
Lífsgleði njóttu eins lengi og kostur er
Þegar undirrituð var beðin að
taka að sér ritstjórn þessa blaðs,
þekkti hún fáa félagsmenn.
Brynhildur Olgeirsdóttir var
meðal þeirra fyrstu sem rabbað
var við, yfir molasopa. Konan er
kímileit, með dillandi hlátur og
hefur greinilega gleðina að
leiðarljósi. Þess vegna var svo
tilvalið að spyrja hana - um lífið
og tilveruna.
— Eru þau skemmtilegþessi ár efiir
vinnulokin?
■■■■■■■■■——————11111 '
Brynhildur hélt það nú. „Það
er himneskt að lifa, ef heilsan er
góð.“
Hvað ertu búin að starfa lengi í
félaginu?
„Eg gekk í FEB skömmu eftir
stofnun þess og hef verið á kafi í
félagsstörfum þar síðan og skemmt
mér konunglega. Eg á sæti í
stjórninni, og hlusta á þá vísu
menn sem þar sitja og ráða ráðum
sfnum um að bæta hag aldraðra.
Sigríður Eyþórsdóttir var upp-
hafsmaður að stofnun leikfélagsins
SNÚÐUR OG SNÆLDA. Hún
fékk mig með sér til að koma því í
kring.
Barnið fæddist 20. janúar 1990.
Þá fékk ég að spreyta mig á svið-
inu,“ segir Brynhildur.
„Við höfum verið svo heppin að
vera með lærða leikstjóra, sem
þjálfa okkur vel í framsögn og
leiktjáningu: - lærum að láta
orðin svífa skýrt og létt á aftasta
bekk, - lærum að setja okkur inn í
sögupersónurnar og LEIKA. Við