Listin að lifa - 01.09.1996, Blaðsíða 24
Að kunna að tapa
og sigra
- Briddsið kemur í staðinn fyrir
fótboltann,“ segir Bergur Þor-
valdsson. „I KR lærði ég hinn
sanna íþróttaanda. - Að kunna
að tapa og sigra - er eitt hið
mikilvægasta í lífinu. Mér
leiðist að sjá tapsára briddsara.
Fólk á að vera jafnglatt yfir góðu
spilakvöldi, hvort sem það tapar
eða vinnur.“
Bergur stjórnar briddsinu hjá
FEB, búinn að halda um
„spilataumana" í þrjú ár. „Þetta er
harðsnúið lið,“ segir Bergur,
„mjög góður félagsandi og gaman
að vinna með því. Fólk á það til
að mæta fárveikt, slíkur er
keppnisandinn.“ Fiér eru karl-
menn í meirihluta.
„Briddsið er eins og skákin. Þú
lærir aðeins, ef þú spilar við þér
sterkari menn. Fólk verður að
koma og reyna sig — ekki loka sig
af í rúbertubriddsi. Þetta er góð
skemmtun, dreifir tímanum og
styttir stundirnar.“
- Hvernig fer þetta fram?
^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmes^ ■ .
„Ég er með stigamót á fimmtu-
dögum, fimm daga keppni á
mánudögum. Eftir hverja keppni
eru veitt góð verðlaun. Nú spila
flestir eftir Standard kerfi. Vínar-
kerfið er minna notað. Skemmti-
legast er ef þátttakendur fara yfir
16 pör, þá er hægt að spila
„MitcheH“ í einum, jöfnum riðli.“
Bergur segir að mætingin sé
misjöfn - frá 12 upp í 20, jafnvel
28 pör. „Golf og bridds tengjast
mikið. Briddsarar eru gjarnan
golfarar, menn sem stunda bæði
sumar- og vetraríþróttir.“ Nú fer
fólk að koma úr sumarhúsunum
og golfið að hætta. Þá fara golfar-
ar sumarsins að stokka spilin hjá
Bergi.
— Hvenœr byrjaðirðu að spila?
mmmmmmmmimmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmst.
„Ég byrjaði hjá Barðstrendinga-
félaginu árið 1949 og spilaði með
þeim til 1958. Síðan byrjaði ég
aftur fyrir fjórum árum hérna í
Risinu.“
Briddsmeistarinn, Ingunn K. Bern-
burg, gleymir sér yfir briddsinu.
— Hvernig fléttast lífsstarfið inn í
spilamennskuna?
Bergur var verslunarmaður hjá
Sláturfélagi Suðurlands. „Ég var
Einbeitnina skortir ekki hjá Bergi
briddsstjóra, þegar gefið er út.
með þunga fjölskyldu og átti alltaf
að vera tilbúinn í aukavinnu sem
var lítið eða ekki metin í launum."
Bergur fór eina vertíð á sjóinn í
sumarfríinu, sem varð til þess að
hann hætti öllum verslunar-
störfum og stundaði sjóinn í 30
ár. „Þá fyrst sá ég peninga. Þetta
er hálfgerð þrælavinna hjá verslun-
argeiranum. Fólk á alltaf að vera
tilbúið í yfir- og helgarvinnu, sem
er afar illa launuð.“ Spilin eru oft
á borðum hjá sjómönnum milli
vakta.
— Ertu spilafikill?
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmBsm^- m -
„Það er hollt að vera með
spilafíkn, ef ekki er spilað um
peninga. Peningaspil gefa engum
sælu. Að spila með peninga getur
orðið hættuleg fíkn eins og
áfengisnautn. Sannur íþróttaandi
í spilamennskunni er hverjum
manni hollur. Ég ætla að spila
eins lengi og ég get,“ segir
fótboltamaðurinn og briddsarinn
Bergur......
O. Sv. B.