Listin að lifa - 01.09.1996, Blaðsíða 17
Þarna æpir Sigrún upp yfir sig af
skelfingu, þegar „ósýnilegur draug-
ur" fer skyndilega að snúa stólnum
sem hún situr á.
baklás og segja sem svo: „Jesús
minn, ég get ekki leikið!“ Kon-
urnar vilja gjarnan lesa ljóð á
ljóðakvöldum, en karlmennirnir
eru þyngri.“
— Hvað viltu segja við petta fólk,
Sigrún?
„Þið vitið ekki af hverju þið
missið. Fólk á okkar aldri á að
prófa allt sem þjálfar og skemmtir.
Hver veit hvenær heilsan bilar? Ef
við látum mata okkur á öllu -
hættum að hafa frumkvæði - þá
verðum við fyrst gömul.“
Sigrún segir, að margir jafn-
aldrar hennar láti mata sig um
of á sjónvarpi og skemmtunum.
„Borgin býður upp á ókeypis
skemmtanir fyrir eldri borgara -
fær jafnvel skemmtikrafta inn í
þjónustumiðstöðvarnar, þannig að
fólk þarf ekki lengur að fara út
fyrir húsdyrnar.
Andleg hugarleikfimi er ekki
síður mikilvæg en líkamleg þjálfun.
— Það að læra hlutverk er geysileg
þjálfun fyrir heilasellurnar,“ segir
Sigrún.
Erfitt leikritaval - erfiður markaður!
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmiiSB:^::..... a
Sigrún hefur verið önnum kafm
við að lesa leikrit í sumar, er búin
að lesa 75 leikrit. „Geysilega erfitt
fyrir þennan aldurshóp að finna
leikrit við hæfi. Ýmist eru hlut-
v.erkin fyrir unglinga eða ungar
barnafjölskyldur." Sigrún hlær
þegar hún segir frá, hvað leik-
hópurinn hafi þurft að leika niður
fyrir sig í aldri. „Imyndaðu þér
þegar Brynhildur 72 ára þurfti að
leika 36 ára sálfræðing í stuttu
pilsi!“ Allt er þetta frábærlega
skemmtilegt.
Ollu erfiðara er að markaðssetja
leikhópinn.
„Á hverju ári hef ég farið um
allan bæ með kynningarplaköt og
hengt upp í allar þjónustu-
miðstöðvar eldri borgara.“ Sigrún
er mjög sár yfir því hve þessi
kynning hefur skilað sér lítið.
„Mikið yrði leikhópurinn glaður,
ef fólk úr þjónustumiðstöðvunum
tæki sig saman og kæmi á leik-
sýningar hjá okkur.“ Það er ekki
búið að velja leikrit fyrir veturinn,
en Sigrún segist vonast til þess að
eitthvað finnist.
Skilaboð Sigrúnar eru skýr:
„Gjörið svo vel, leikið með
okkur. Það vantar leikara!“
O. Sv. B.
|Það er margt á döfinni
- enda heimurinn stór og ferðahugurinn mikill!
Kæru vinir
Þaó er mér sérstök ánægja að vera komin aftur til starfa með Úrvals-fólki. Nýr og
glæsilegur vetrarbæklingur Úrvals-Útsýnar er fullur af spennandi ferðamöguleikum.
Þar kynnum við m.a. feróir Úrvals-fólks til Kanarieyja þar sem Skapti Ólafsson veróur
sérlegur gestgjafi þess. Það veróur því allt í fjöri alls staðar á Kanarí í vetur.
Við bytjum veturinn meó Haustfagnaðinum föstudaginn
4. október og siðan rekur hver feróin aðra - Edinborgarferð
ÚrvaLs-fólks 27. október, sigling um Karibahafið,
skíðaferð til Austurríkis... svo einhverjar séu nefndar.
Meira um spennandi ferðir og fréttamoLar af féLögunum í
FréttabLaói ÚrvaLs-fóLks.
Bestu kveójur,
Rebekka Kristjánsdóttir,
umsjónarmaóur ÚrvaLs-fóLks.
4 4
Lágmúla 4: stmi 569 9300,
Hafnarfirði: sími 565 2366, Keflavík: sími 421 1353,
Selfossi: sími 482 1666, Akureyri: sími 462 5000
- og hjá umboðsmönnum um land allt.