Listin að lifa - 01.09.1996, Blaðsíða 5
Söngfélag FEB. Kristín kórstjóri og undirleikararnir Hafliði Jónsson og Bragi
Hlíðberg eru fremst á myndinni.
Sönglistin
og sam-
einað afl
virkra
félaga
„Kórinn okkar er einn sá fyrsti
sem var stofnaður fyrir eldri
borgara og fagnaði tíu ára afmæli
í vor eins og félagið. Núna eru
16-17 svona kórar á landinu. A
kóramótinu 1994 samstilltu tólf
íslenskir kórar raddirnar og
kórfélagar nutu þess að syngja
saman. Fátt tengir fólk betur
saman en tónlistin. Hún er svo
gefandi og opnar nýja heima.“
Kristín Sæunn Pjetursdóttir
tónmenntakennari hefur stjórnað
kórnum síðastliðin níu ár. „Eg fór
seint í tónlistarskólann og langaði
alltaf til að vinna að tónlistar-
málum með eldra fólki.“ Kristín
er því á réttri hillu í lífinu og
hefur ekki orðið fyrir vonbrigðum
að vinna með þessum aldurshóp.
En hún er heitreið út í þjóðfélagið
fyrir hönd skjólstæðinga sinna.
„Ég leita með logandi ljósi að
yngra fólki í kórinn. Okkur vantar
raddir fólks á milli sextugs og
sjötugs, til að blanda saman við
eldri raddir. Meðalaldur í kórnum
er 77 ár. Yngra fólk hefur tæki-
færi til að vera virkt í félaginu, en
kemur ekki. - Hvers vegna?“
fmynd eldri borgara VERÐUR að
breytast
„Menningarstarfið er svo skemmti-
legt hjá Félagi eldri borgara, að
fólk sem er að eldast, ætti að geta
hlakkað til að ganga í félagið og
lifa þessu fjölbreytta lífi sem
félagsstarfið býður upp á. En
þjóðfélagið er endalaust að pota í
okkur, og fólki finnst það stimpill
að vera komið á ákveðinn aldur og
vera virkt í félagsstarfinu.
Við erum hrædd við að búa í
haginn fyrir okkur sjálf. Hrædd
Þarna syngur kórinn af mikilli
innlifun undir stjórn Kristínar í
Flateyrarkirkju árið 1992.
við þann stimpil að vera komin í
Félag eldri borgara. Og felum
okkur! I stað þess að ganga í
félagið, þegar við erum orðin
sextíu ára eins og boðið er upp á
og gera félagið nógu fjölmennt,
sterkt og öflugt þjóðfélagsafl til að
standa gegn þessari endalausu
skerðingu á kjörum eldri borgara.
Skilaboðin eru tvöfóld
Þjóðfélagið sendir tvöföld skila-
boð til eldri kynslóðarinnar: Vertu
ung! Kauptu öll yngingarsmyrsl!
Stundaðu alla heilsurækt! Þú mátt
ekki eldast! í nútíma þjóðfélagi
erum við ekki með á nótunum,
nema að halda okkur í góðu
formi.“
Kristín segist ekki þola, að
komið sé fram við eldra fólk,
annaðhvort með vorkunnsemi eða
lítilsvirðingu. Eins og þegar sagt
er: — Hefurðu kannski gaman af
þessu ennþá, vinan? Eða þegar
sagt er: - Ég ætla ekki að vera
með þessu gamla fólki!
„Við eigum að vera stolt af því að
vera komin á ákveðinn aldur og
standa sameinuð gegn þessari
vitleysu,“ segir Kristín. „Ég sjálf
myndi ekki vilja láta koma svona
fram við mig. Áhugamál mitt er -
að komið sé fram við eldra fólkið á
jafnréttisgrundvelli. Fólk sem er að