Listin að lifa - 01.09.1996, Síða 6

Listin að lifa - 01.09.1996, Síða 6
eldast, getur átt á hættu að fá skerta sjálfsmynd.“ Og Kristín veltir fyrir sér, hvernig núverandi yngri kynslóð komi til með að líða á efri árum — hverjar væntingar hennar séu? Kristín Sæunn Pjetursdóttir, kórstjóri. Söngleikir og ný viðhorf Kristín segist vera full af hug- myndum og langar til að kórinn geri nýja hluti. „Við megum ekki vera of föst í kórforminu. Menn- ingargeirar FEB ættu að vinna meira saman,“ segir hún. „Núna eru eldri hljóðfæraieikarar að koma inn í félagið. Leikfélagið og kórinn ættu að sameinast í að setja upp söngleik „brot úr ýmsum söngleikjum“ með aðstoð eldri hlj óðfæraleikara. “ Kristín sér líka fyrir sér lítið kaffileikhús miðsvæðis, sem marga félagsmenn dreymir um. „Það væri svo margt hægt að gera, ef félagið væri öflugra.“ Kórinn ætlar að vera með konsert í haust. „Við eigum svo mikla efnis- skrá,“ segir Kristín, „kórinn vinnur af metnaði og hefur góða undirleikara, þá Hafliða Jónsson píanóleikara og einnig síðastliðinn vetur, Braga Hlíðberg.“ Tal og tónar Kristín er með kvöldvökur, sem hún nefnir Tal og tóna. „Þá kynni ég tónlist og spila af geisladiskum, reyni að vera með tónlist sem er ekki alltof mikið í gangi. Prenta ljóð á blöð sem allir fá, hvet til samanburðar á ljóði og lagi, einnig er alltaf gaman að spreyta sig á að þekkja höfunda. Ljóðið er svo skylt tónlistinni, hrynjandi og fallegur stíll, ef það er vel flutt. Þess vegna er svo mikilvægt að kórfélagar læri góða framsögn og raddbeitingu. Við syngjum ekki upp úr símaskránni,“ segir Kristín. O. Sv. B. JiTVTJTfr’ IV •] Jalive-; Vetrarparadís í Karíbahafi fyrir eldri borgara Heimsklúbbur Ingólfi skipuleggur tvær ferðir Heimsklúbbur Ingólfs, sem er orðlagður fyrir framúrskarandi ferðir, hefur skipulagt tvær ferðir á hlýjar og sólríkar strendur Karíba- hafsins, sérstaldega ætlaðar fólki yfir sextugt og seldar á tilboðs- verði, þar sem innifalið er flugfar, flutningur á landi, gisting á fimm stjörnu hótelum, tvær máltíðir á dag og þjónusta fararstjóra/- hjúkrunarfræðings. Miðað við al- mennan ferðakostnað er verð þessara ferða undir hálfvirði, t.d. 22 daga ferð 3. nóvember kr. 148.900.- en viðbótarvika kr. 28.400.- Önnur ferð er undirbúin 9. mars og stendur fram yfir páska, þ.e. til 31. mars eða 7. apríl. Eyjar Karíbahafs hafa lengi verið einna efstar á óskalista ferðamanna, vegna náttúru- fegurðar og veðursældar. Eyjan Dóminíkana, upphaflega nefnd Hispaníóla, hefur allt frá fundi Nýja heimsins fyrir 500 árum, þótt perlan í þessum eyjaklasa og strendur hennar þær fegurstu í heimi, en verðlag þar er allt að helmingi lægra en á öðrum nærliggjandi eyjum. Hótelið Fiesta Bavaro stendur við hina orðlögðu Bavaro strönd þar sem sjálfsánir kókóspálmar vaxa niður í flæðarmál. Gisting er í vönduðum 6-8 eininga húsum í fegursta aldingarði, með göngubrautum, sundlaugum, veitingastöðum og verslunum. Aðeins 30 manns komast í hvora ferð, og hafa margir þegar látið skrá sig. Karíbahafs ferðirnar verða kynntar nánar í Risinu fimmtu- daginn 3. október nk., þar sem fulltrúi Heimsklúbbsins mun lýsa Dóminíkana og tilhögun ferðar- innar og sýna litskyggnur. Tekið er við pöntunum í síma 562-0400.

x

Listin að lifa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.