Listin að lifa - 01.09.1996, Page 11

Listin að lifa - 01.09.1996, Page 11
Mímisbrunnur I Mímisbrunn sóttu guðirniryngingardrykkinn. Drykkur úr Mímisbrunni hreinsaði burt hverskonar ólyfjan úr líkama og sál. Efþú átt einhver heilrœði um líkamsheilsu og sálarheill fólgin í handraðanum, þá eru þau velþegin í „Mímisbrunn Utanáskriftin er: Listin að lifa, Mímisbrunnur, Hverfisgata 105, 101 Reykjavík Hæfileg hreyfing og rétt fæði Hæfileg hreyfing og fæðuinntaka í réttu jafnvægi, næringar- og bætiefni - stuðla að góðri heilsu. Kyrrseta, vannæring eða ofneysla á fæðu geta leitt af sér sjúkdóma, segir Pálmi V. Jónsson, læknir. Mataræði hefur áhrif - dregur úr eða eykur líkur á ýmsum sjúkdómum. Fæðan getur haft áhrif á ónæmiskerfi líkamans, aukið líkur á krabbameini, hjarta- og æðasjúkdómum, sykursýki og beinþynningu. Betra er að fyrir- byggja sjúkdóma en lækna þá. Því er mikilvægt að huga vel að fæðu sinni og hreyfingu. Hreyfing leyfir aukna fæðuinntöku, sem byggir upp vöðvamassa og eykur styrk. Rösk ganga og sund eru dæmi um góða hreyfingu. Takmarkað salt stuðlar að lækkun blóðþrýstings. Kalkinn- taka ætti að vera 800-1500 milligrömm til að viðhalda bein- um. Því þarf fæðan að innihalda nóg kalk, sem aðallega fæst úr osti, skyri, undanrennu og léttmjólk auk fjörmjólkur. Líklegt er að margir þurfi að taka kalktöflur, þótt magrar mjólkurafurðir séu nýttar. Kalktöflur gefa frá sér mismikið af fríu kalki. Kalsíum karbonatis töflurnar eru kalkríkar og best að taka þær með mat eða strax á eftir. D vítamín þarf að vera 400 til 800 alþjóðlegar einingar á dag til að hjálpa til að viðhalda beinum. Lýsi er mikilvægur D vítamíngjafi, einkum fyrir þá sem ekki njóta sólar langtímum saman. E og C vítamín eru hagstæð fyrir ónæmissvörun og æðakerfi og hin ýmsu B vítamín fyrir taugavef. Forðast ber stóra skammta af vítamínum, en 1-2 fjölvítamín- töflur með steinefnum gagnast flestum. B 12 vítamín er lífs- nauðsynlegt efni sem marga skortir á efri árum. Það má mæla í blóði og ýmsir þurfa B 12 innspýtingu í vöðva ævilangt. Grunnflokkar fæðunnar eru 5: mjólkurvörur, kjöt og fiskvörur, ávextir, grænmeti og korn. Víta- mín og steinefni þurfa að fylgja með. Fjölbreytt fæði næst með því að nýta alla 5 grunnflokkana. Æskileg fæða er rík af grænmeti, ávöxtum og kornvörum, trefjarík, saltsnauð og sykurlítil. Mikilvægt er að halda kjörþyngd. Sá sem gætir þess getur stundum leyft sér að taka þátt í dýrðlegum veislum - með góðri samvisku. rBf f Gagnrýni Mbl: „...frábær kvöldstund í Skemmtihúsinu sem ég hvet flesta til að fá að njóta." j j.»% dÉaíitnM ri Súsanna Svavarsdóttir AðalstöSinni: „Ein besta leiksýning sem ég hef séð í háa herrans tíð" 0RMSTUNGA ELDRIBORGARAR Leikstjóri: Peter Engkvist Leikarar: Benedikt Erlingsson, Halldóra GeirharSsdóttir 20% AFSLÁTTUR GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS FÉLAGS ELDRI BORGARA / SÍMSVARI ALLAN SÓLARHRINGINN SKEMMTIHUSIÐ LAUFÁSVEGI 22 SÍMI 552 2075 HAALEITIS APÓTEK Austurveri Sími 581 2101 Fax 581 2540 10% afsláttur fyrir elli- og örorkulífeyrisþega Frf heimsendingarþjónusta í hverfinu

x

Listin að lifa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.