Listin að lifa - 01.09.1996, Síða 12

Listin að lifa - 01.09.1996, Síða 12
Félags- og tómstundastarf aldraðra á vegum Reykjavíkurborgar Á vegum Reykjavíkurborgar er nú starfrækt opið félagsstarf aldraðra á fjórtán stöðum í borginni, ýmist í félagsmiðstöðvum eða félags- og þjónustumiðstöðvum. Starfið er opið öllum Reykvíkingum 67 ára og eldri, óháð því hvar í borginni þeir búa. Starfsemin er mismikil að umfangi og fjölbreytilegt félags- og tómstundastarf er rekið á flestum stöðvunum en þær eru opnar virka daga frá kl. 09:00 - 17:00. Auk þess eru sérstaklega auglýstar kvöldvökur, leikhús- ferðir, sýningar og ferðalög utan venjulegrar dagskrár. Sem dæmi um það sem í boði er, má nefna námskeið í leir- vinnu, bókbandi, útskurði, leður- vinnu, silki- og postulínsmálun. Einnig er í boði hefðbundin handavinna, danskennsla, tungu- málakennsla, líkamsþjálfun og klúbbastarf af ýmsu tagi svo sem kórastarf, leiklistarhópar, göngu- hópar, golf, bridds, boccia o.fl. Fólki er bent á að afla sér upp- lýsinga á stöðvunum um hvað í boði er á hverjum stað því að það getur verið mismunandi eftir stöðvum. Allar upplýsingar liggja frammi á stöðvunum s.s. dagskrár í félags- og tómstundastarfi og aðrar upplýsingar um þjónustu. Hægt er að fá keyptan hádegisverð alla virka daga vikunnar og verður að panta hann fyrirfram, einnig eru kaffiveitingar seldar á opnunartíma, en allir staðirnir bjóða upp á góða aðstöðu í borðsal þar sem hægt er að njóta matarins í heimilislegu umhverfi og góðum félagsskap. Athygli er vakin á að hádegisverður er seldur alla svokallaða „rauða daga“ þ.e. hátíðisdaga sem ekki ber upp á laugardaga eða sunnudaga. Einnig er boðið upp á ýmsa persónulega þjónustu svo sem aðstoð við böðun. Þá er full- komin sturtuaðstaða svo að þeir sem vilja geti farið í sturtu og notið öryggis og eftirlits starfs- manns. Einnig eru fótaaðgerð- arstofur og hársnyrtistofur einka- reknar á stöðvunum þar sem aldraðir geta keypt þá þjónustu á hóflegu verði.

x

Listin að lifa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.