Listin að lifa - 01.09.1996, Qupperneq 19

Listin að lifa - 01.09.1996, Qupperneq 19
lánaðan fyrir skírnarveislur, ferm- ingar eða brúðkaup. — A hvaða aldursskeiði er æskilegt fyrir fólk aðflytja inn í svona íbúðir? „Yfirleitt dregur fólk það alltof lengi. Mikil streita getur fylgt því að búa í stóru húsi með steypu- viðgerðir og viðhald, garðvinnu og innanhússþrif. Sú spurning kemur oft upp, hvort fólk eigi að búa í stóra húsinu og varðveita öll gömlu húsgögnin, þegar viturlegra er að flytja í minna húsnæði og nota fjármunina frekar til að lifa, ferð- ast og leika sér. Um er að ræða 2ja og 3ja herb. íbúðir í stærðunum 59 fm og 88 fm nettó en þetta eru vinsælustu íbúðargerðirnar fyrir eldri borgara. Flest eldhúsin og borðkrókur eldhúsanna snúa út að sjónum og þaðan verður mikið og fallegt útsýni. Stofan snýr að garðinum og þar eru suðursvalir, en dæmi um grunnmynd íbúðar má sjá hér á síðunni. Tengigangur verður úr húsinu í þjónustu- og félagsmiðstöð á Lindargötu 59. Áætlað er að framkvæmdir við húsin hefjist nú í september 1996 og ljúki átján mánuðum síðar. Upplýsingar um húsið verða hjá Félagi eldri borgara í síma 562 1477 að Borgartúni 31, Reykjavík. Ég hef séð eldri hjón yngjast um tíu ár $Íj3lap flvtja úr itóijiji| eign í þjon oo hers , eldh 8 6 «|2 £b Cst u /"1 sjjónv j 1 W I E3D i' h ion 113m* 3 d Teikning af tveggja herbergja íbúð. Teikning af þriggja herbergja íbúð. viðhaldiiiúí ýSgj|£§§& að getajj %ai iþaOTimHieiSTvirtur. nágrannavinir ýmist fluttir eða dánir, erfiðir stigar og einangrun í umhverfi þar sem þau höfðu búið í 40 ár. Þau öðluðust nýtt líf í félagslegu umhverfi þjónustu- kjarnans. Ég segi oft, að lífið sé flæði, sem býður upp á stöðugar breytingar. Ef vinirnir eru horfnir í gamla umhverfinu, koma nýir á nýjum stað. Ég legg áherslu á, að fólk bíði ekki of lengi að minnka við sig, flutningar og umrót geta reynt á, mikilvægt að njóta nýs um- hverfis og þeirra möguleika sem það býður.“ - Hver er megintilgangur með vernduðum íbúðakjörnum fyrir eldri borgara? ——■wnn'1 ~■ „Það er best fyrir alla að fólk geti bjargað sér sem lengst í eigin fbúð. Þjónustumiðstöðin stuðlar að líkamlegri heilsu með hreyf- ingu og ráðgjöf um rétt mataræði. Andleg vellíðan er ekki síður mikilvæg. Það eru gömul sann- indf að fólk. þríÉi ekki nema í samneyti með öðrum.TGleðin yfir í áð y^ra til, sprettur upo úr því 3 geði við aðra og rEtifiijjjaínl h ’EHOni Eldri borgarar eru alltaf að verða yngri, þó viðmiðunar- mörkin séu hin sömu aldurslega séð. Nú trimma ömmurnar í jogging-galla, hjónin bæði ferða- vanir heimsborgarar, lífsreynt og oft hámenntað fólk. Við þyrftum að kunna frekar að meta og nýta þann mikla fjársjóð, sem eldra fólkið geymir í visku sinni og reynslu. Það er von mín að íbúar í nýju húsunum við Skúlagötu megi eiga þar góða og skemmtilega daga. Staðsetningin býður upp á stór- kostlegt útsýni yfir sundin, en skjólgóðan garð sunnan megin við húsið. Þægileg tenging er við þjónustumiðstöðina. Stuttar göngu- leiðir til Laugavegs og miðbæjar. Bílastæði eru á lóð með aðkomu frá Lindargötu, en einnig verða 26 bílastæði innandyra fyrir þá sem þess óska. Húsin eru 6-12 íbúðahæðir.; Allar íbúðirnar hafa innanhússtengingu að sameigin- egum . sal.“ O. Sv. B.

x

Listin að lifa

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.