Listin að lifa - 01.09.1996, Side 23

Listin að lifa - 01.09.1996, Side 23
Slysavarnadagskrá fyrir eldri borgara í vetur býður Vátryggingafélag Islands eldri borgurum upp á dagskrá um öryggismál og for- varnir í samstarfi við Félag eldri borgara og Landssamband slökkvi- liðsmanna. A einni klukkustund verður farið yfir helstu þætti í slysavörnum - bæði utanhúss og innan. Slökkviliðsmenn tala um brunavarnir og kynna brunavarna- tæki. Ragnheiður Davíðsdóttir, forvarnafulltrúi VÍS, heldur íyrir- lestur um slysavarnir og Gunnar Hjaltested, fulltrúi hjá VÍS, fjallar um vátryggingar og nauðsynlegar tryggingar íyrir eldri borgara. Framsetning er létt og að- gengileg, m.a. sýndar myndir af glærum. Dagskrárgestir fá sérstakt blað „Tvennir tímar“ sem geymir frásagnir og viðtöl við eldri borg- ara, ásamt fræðslu um forvarnir. í dagskrárlok býður VIS upp á kaffiveitingar og fyrirspurnum er svarað. Dagskráin verður í þjónustu- miðstöðvum aldraðra í Reykjavík og nágrenni og á stærri stöðum úti á landi, auk þess verður dagskráin Félags eldri borgara að Hverfisgötu 105, Reykjavík. Forvarnadagskrá VÍS hefst í október og eru for- stöðumenn og formenn hús- stjórna, bæði aðilar sveitarfélaga og einstaklinga, hvattir til að nýta sér þessa þjónustu. Upplýsingar eru veittar hjá VÍS, Armúla 3, Reykjavík, sími 5600- 5060. Aprílgabbið lifir enn. Frh. af síðu 3 við sig hjartalyf, hætti á lyfjum við blóðþrýstingi og höfuðverk, og hægðirnar komast í lag,“ segir Erna sannfærandi. „Jón Eyjólfur Jónsson öldrunarlæknir sagði eitt sinn, að ég héldi a.m.k. 20 sjúkra- rúmum auðum, ef nóg sjúkrarými væri til.“ Samspil líkama og sálar: mmmmmammmmmmmmmmmmmmmmmmmatmt&t^x...... . „Gangan hressir svo mikið, gefur svo sterkan félagsanda, að flestir Hrólfarnir eru fastir gestir á söngvöku, spilakvöldum og dans- leikjum,“ segir Erna. „Eldra fólki hættir til að einangrast í faðmi fjölskyldunnar. Gamlir vinir týna tölunni. Hrólfarnir skapa sín á milli ný og sterk vináttubönd. Aður urðu konur að halda sig heima og bjóða hvor annarri í kaffi. Nú hittast margar Hrólfa- konur í kaffihúsum á Lauga- veginum.“ Dagskrá Göngu-Hrólfanna: a^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm^.^.::.-.:. „Gangan byrjar kl. 10. A hverjum laugardagsmorgni koma Hrólfarnir saman í Risinu. Þeir fyrstu mæta kl. rúmlega níu til að ná góðu spjalli og fá sér kaffisopa. Ef ég mæti svo rúmlega hálf tíu, þá mætir mér mikið fuglabjarg! Yfirleitt mæta um 50 manns á veturna, 40 manns yfir sumar- tímann, en yfir 60 manns þegar stefnt er í rútu út úr bænum,“ segir Erna. Staðaval: wmmmmammmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmL:.......... „Eg stunda mikið að fara á staði, sem fólk heldur sig þekkja vel — en þekkir svo alls ekki. Reykvíkingar eru mjög ókunnugir á Suðurströndinni — í kringum Eyrarbakka og nágrenni. I lengri ferðum er alltaf boðið upp á hlaðborð, á hagstæðu verði. Ferð- Notalegt að hvílast á göngunni, njóta fegurðar í umhverfi og góðs félagsskapar. irnar eru yfirleitt mjög ódýrar. Við eigum líka marga hauka í horni, höfum verið boðin í sumarbústaði í kaffi. „Allir eru velkomnir í Hrólf- ana,“ segir Erna, „ég ofgeri engum. Við göngum mjög rólega í einn og hálfan til tvo tíma. Ef fólk treystir sér ekki til að ganga lengur, sendi ég það heim með næsta strætó.“ O. Sv. B.

x

Listin að lifa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.