Listin að lifa - 01.09.1996, Blaðsíða 25
Frábærar ferðir
Árlega eru farnar 10-12 ferðir á vegum FEB. Einkenni þessara ferða er létt
lund ferðalanganna, gleði og gamansemi, fróðleiksfýsn og feiknamikil
Ijóðagerð. Látum myndir og ljóð tala sínu máli.
Á útsýnisstað á leið upp í Lakagíga. Úr Austfjarðaferð í
ágúst 1989.
Útsýnin var ægifögur,
yfir dali, vötn og fjöll.
Ekki getur sögn, né sögur,
sagt frá þeirri dýrðarhöll.
í Eldgjá. Úr ferð um Fjallabaksleið nyrðri og syðri og
Lakagíga 1989.
Fósturjarðar fagra fold,
á föstum stendur grunni.
Þig ég elska fósturmold,
með fagurt fljóð í runni.
í Kverkfjöllum í dumbungsveðri fékk fararstjórinn
þessa vísu:
Ekki veðrið alveg stóðst,
elsku hjartans Pétur!
Því lofaðir okkur sumri og sól,
en sveikst það heldur betur!
Botni nú hver sem
betur getur
Að leika sér með hrynjanda íslenskrar tungu, stuðla
og höfuðstafi er ávallt hin besta skemmtun.
Hér birtast tveir fyrripartar. Sendið inn vísubotna.
Utanáskriftin er: Listin að lifa, Hverfisgötu 105,
101 Reykjavík.
Bestu botnarnir munu birtast í nóvemberblaðinu
eða jólablaðinu.
Húmar að og haustar senn,
hrímið fer að stráum.
Þó að færist yfir aldur
eiga gleði í hjarta skal.
SJOVADIirrAIMFNNAR
Vegna mistaka í prentvinnslu féll niður
símanúmer í auglýstri þjónustuíbúð á bls. 15.
Síminn er: 562 5045