Listin að lifa - 01.09.1996, Page 27
verði ekki leyst úr læðingi, því að hún
er verst þeim sem minnst mega sín.
Hlutverk lífeyristrygginga
Auk aðgangs að ýmiss konar fél-
agslegri þjónustu, sjúkra- og slysa-
tryggingu gegna lífeyrisgreiðslur
almannatryggingakerfisins mikilvægu
hlutverki í íslenska velferðarkerfinu.
Greiðslur úr lífeyrissjóðum, sem að
stærstum hluta eru starfræktir á
ábyrgð aðila vinnumarkaðarins, hafa
hins vegar stöðugt meiri þýðingu.
Ég er þeirrar skoðunar að lífeyris-
tryggingar hins opinbera eigi að fela í
sér öfluga vernd, en jafnframt eigi
þær að vera eins konar öryggisnet
fyrir þá sem af einhverjum ástæðum
missa fótanna og fá ekki úrlausn
annars staðar. Það á ekki að vera
eftirsóknarvert að allir fái bætur frá
ríkinu óháð greiðslum úr
lífeyrissjóðum. Oflugri lífeyrissjóðir
eiga að gefa kost á sparnaði og
breyttum áherslum í almanna-
tryggingakerfinu.
Skattmeðferð lífeyristekna
Að undanförnu hefur mikið verið
fjallað um skattalega meðferð
lífeyristekna og Landssamband
aldraðra hefur meðal annars mótmælt
þeirri ráðstöfun stjórnvalda að hverfa
frá þeirri leið að veita 15%
skattaafslátt vegna ellilífeyrisgreiðslna
úr lífeyrissjóðum. Inn í umræðuna
hafa einnig blandast fullyrðingar um
tvísköttun og hvort og þá hvernig
ætti að bregðast við henni. I skriflegu
svari við fyrirspurn á Alþingi vorið
1995 gerði ég ítarlega grein fyrir
útreikningum í því sambandi.
Sú leið að undanþiggja iðgjöld til
lífeyrissjóða skatti í stað þess að veita
15% skattaafslátt var fyrst og fremst
farin að ósk aðila vinnumarkaðarins
við gerð febrúarsamninganna 1995.
Þá eins og nú viðurkenndu flestir að
þessar tvær leiðir gátu ekki farið
saman. Þrátt fyrir samþykkt 15%-
reglunnar á Alþingi var því horfið frá
henni samhliða því að iðgjöld
launamanna voru gerð frádráttarbær.
Við þá niðurstöðu þurfa menn að
sætta sig.
Lokaorð
mmmmmmammmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmnmtmc.
Skattfrelsi lífeyrisiðgjalda er til þess
fallið að efla sparnað og auðvelda
komandi kynslóðum að takast á við
þau vandamál sem fyrirsjáanleg eru í
kjölfar breytinga á aldurssamsetningu
þjóðarinnar. Stjórnvöldum ber
skylda til að ýta undir ráðdeild og
styðja ráðstafanir sem koma í veg
fyrir að við veltum vandamálum
líðandi stundar yfir á komandi
kynslóðir.
Hlutverk hins opinbera er að
tryggja öryggi og ákveðna lágmarks-
þjónustu, en ekki að vera allt í öllu.
Þannig getum við m.a. stuðlað að
virkri þátttöku aldraðra á hinum
ýmsu sviðum þjóðfélagsins. Þannig
getum við treyst velferðarþjóðfélagið í
sessi og tryggt viðunandi afkomu
komandi kynslóða.
Friðrik Sophusson, fármálaráðherra
FEB
FELAG
ELDRI
BORGARA
Ég undirritaður(uð) skrái mig hér með í félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni
Nafn Kennitala
Heimilisfang Póstnúmer
Sími Stéttarfélag
Greiðist með:
□ Visa/Euro
□ Gíró
Undirskrift