Listin að lifa - 01.09.1996, Qupperneq 30
— Af hverju eru eldri karlmenn
svona tregir til að dansaÍ
„Það er fyrst og fremst feimni.
Kannski líka stirðleiki. Finnst þeir
ekki geta tjáð sig í dansinum eins
og þeir gerðu á yngri árum.
Stelpurnar eru svo helvíti duglegar
að mæta. Eg er alltaf að segja við
þá: - Farðu nú og bjóddu stelp-
unni upp! Miklu betra að dansa
hálfan dans en dansa alls ekki.“
mraviii
Pútt-golf
- ný íþróttfyrir aldraða
Vilhjálmur Halldórsson er
frumkvöðull pútt-golfsins á Is-
landi. Hann stofnaði Púttklúbb
Suðurnesja í Leirunni 1985 og
Púttklúbb Ness árið 1989.
„Vilhjálmur óskaði eftir því við
Tómstunda- og íþróttaráð Reykja-
víkur, að púttvöllum yrði komið
upp á Reykjavíkursvæðinu. Ég átti
mest samstarf við hann, þegar
byrjað var að leggja púttvelli á
höfuðborgarsvæðinu,“ segir Jó-
hannes Óli Garðarsson, vallar-
stjóri á íþróttavöllum Reykjavíkur.
Vilhjálmur segir að hugmyndin
að íslenskum púttklúbbum hafi
vaknað úti á Spáni. „Þar rákumst
við félagarnir á mini-golfvöll og
höfðum svo gaman af að spila þar,
að við fórum að líta í kringum
okkur heima. Þá fengum við
Hólsvöll við Leiruna til afnota og
stofnuðum Púttklúbb Suður-
nesja.“
Vilhjálmur segir að feikilega
margir noti völlinn — um 200
— Pétur lifir og andar fyrir félags-
starf eldri borgara. — Hver skyldi
vera stærsta hugsjón hans?
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmassim
„Að félagið geti orðið sterk,
félagsleg heild, þannig að við
gætum haft virkilega OPIÐ HÚS
fyrir öll okkar hugðarefni á einum
stað. Við þyrftum að hafa til
umráða tveggja hæða hús sem
rúmar dansleiki, kaffistofu og
föndurherbergi sem dregur fólkið
til sín allan daginn.“
Fyrsta stjórnin í púttklúbbi aldraðra í
golfkúbbi Ness: Bergþór Jónsson,
Hulda Valdimarsdóttir og Vilhjálmur
Halldórsson.
Verðlaunahafar í 80 ára flokki og
eldri. Vilhjálmur stendur í miðjum
hópnum.
manns. „Nú er líka kominn
púttvöllur við Sjúkrahúsið í Keflavík
í miðjum bænum. Þar púttar nú
fólk, sem aldrei hefur spilað áður.
Þetta er til góðs fyrir alla!“
Pétur lætur sig dreyma um
söngleik í vetur. „Kórinn og
Snúður og Snælda gætu slegið
saman. Ef ég gæti fengið eldri
hljómlistarmenn til að taka þátt í
að uppfæra söngleik fyrir eldri
borgara. Eg veit að Garðar Cortes,
Raggi Bjarna og fleiri eru tilbúnir.
En það gerist ekkert, nema fólk
verði virkt - taki sjálft þátt í
baráttumálunum!“
O. Sv. B.
Púttvellir á vegum ÍTR
m^^^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmi':,.: .
Tveir púttvellir eru norðan við
gervigrasvöllinn í Laugardal með-
fram Þvottalaugavegi. Einnig er
völlur við Kjarvalsstaði og annar í
Ártúnsbrekku í hvamminum neð-
an við skíðabrekkuna. Allir eru
18 holu vellir.
„Púttvellirnir eru fyrst og fremst
fyrir eldri borgara,“ segir Jóhannes
vallarstjóri. „Það er mjög gaman
að þjóna þessu fólki sem er þakk-
látt og gengur vel um, sem sést
best á því að við getum lánað því
lykla að húsinu í Ártúnsbrekku.“
I Ártúnsbrekku er besta að-
staðan. Þar geta pútt-golfarar hit-
að sér kaffi og haft bækistöð bæði
fyrir golfmót og golfbúnað.
Púttvellirnir eru opnaðir á vorin
og haldið opnum eins lengi og
veður leyfir. „Því miður höfum við
oft þurft að taka niður stengurnar
á kvöldin og stundum yfir helgar
vegna skemmdarstarfsemi. Ann-
ars getur fólk komið með sinn
„púttara" og kúlur, hvenær sem
er,“ segir Jóhannes.
Sigurður Hafsteinsson golfari
sér um hirðingu vallanna. Að-
gangur að púttinu er ókeypis.
O. Sv. B.