Listin að lifa - 15.10.2001, Qupperneq 10

Listin að lifa - 15.10.2001, Qupperneq 10
Mynd af torfbæ úr fórum Minjasafnsins á Akureyri. allt út í slaga. Aldrei var hægt að opna glugga, nema þegar skjánum var kippt úr til þess að hrinda út snjó. Oft var reynt að hafa strompinn opinn nyrðra og gerði hann oft talsvert gagn, en nokkuð títt var að stinga upp í hann til þess að missa ekki út hitann. Þvottar og böð: Fjöldinn allur af bað- stofunum var þannig að engin fjöl var í þeim nema rúmstokkarnir og stund- um ein fjöl ofan við rúmfötin. Þvottur á þeim gat því ekki komið til greina, enda lítið að því gert. í pallbaðstofum var pallurinn aldrei þveginn nema á sérstökum þrifaheimilum. Stundum þegar best gerði bleytt í gólfskáninni einu sinni á ári og hún mokuð burt með reku. Eftir 1850 fór það að tíðkast að þvo þilgólf. Þar sem stofur voru alþiljaðar í hólf og gólf var gólfið oft þvegið, en það var aðeins á betri bæjum. Ekki var heldur til siðs að þvo fatnað oftar en hjá varð komist. Skyrtur voru þvegnar á hálfsmánaðar- til mánaðarfresti, en nærbuxur miklu sjaldnar. Rúmföt t.d. rekkjuvoðir voru þvegin í hæsta lagi einu sinni eða tvisvar á ári. Allt var þvegið úr stækri keytu. Segja má að ó- hreinindi hafi gengið vel úr, en rúmföt og nærföt lyktuðu lengi á eftir. Til voru menn sem voru í sömu nærfötun- um árið um kring. Sápa þekktist ekki meðal almenn- ings fyrr en eftir 1750. Sjaldan kom vatn á líkama manna að sjálfráðu. Flestir þvoðu sér þó að nafninu til í framan þegar þeir fóru til kirkju, en ekki um hendur nema stundum. Menn þvoðu sér á ullarlepp eða strigatusku og þurrkuðu sér á sama. Hárið var og sjaldan greitt, enda meira en lítið kvalræði eins og menn báru það sítt. Sápa til andlits- og handaþvottar þekktist ekki fyrr en á síðari hluta 18. aldar með höfðingjum og varð ekki al- menn fyrr en á síðara hluta 19. aldar. Óþrifnaður innan baðstofu var mis- mikill. Sumir reyndu að halda eins þrifalegu inni og hægt var, en sums- staðar þar sem óþrifnaður var meiri voru næturgögn ekki borin fram eða tæmd fyrr en á kvöldin. Allskonar óþverri safnaðist fyrir í þessum vondu baðstofum. Þær voru fullar af maurum og mauravefum, hégóma og allskonar pöddum. Mikil óhreinindi söfnuðust í hrísið og heyruddann sem var undir í rúmunum, óhreyft ár eftir ár. Hundar lágu inni í baðstofum og uppi í rúm- um og voru oft við höndina til að þrífa aska og flát. Flær og lýs voru algengir gestir á flestum bæjum. Fæðuval, mataræði: Mest var bjarg- ast við matbjörg úr innlendum efnum. Sparnaður allur var á hafður og vinnu- fólk og böm, ég tala nú ekki um sveit- arlimi, var haft á svo skornum skammti sem framast var unnt. Þar sem nokkur efni voru héldu hjónin sig samt oftast bærilega þó að hitt fólkið væri svangt. Og þá má geta nærri þeirri æfi sem fátæklingarnir áttu, þegar ekkert fékkst í kaupstaðnum og fénaður horféll ár eftir ár og þeir nærri skepnulausir. Málamatur á 18. öld var venjulega hræringur úr grasagraut og súru skyri með mjólk út á. I sjávarsveitum var oft fiskæti í allar máltíðir. Þegar kom fram á 19. öldina varð alsiða að hafa mjólkurgraut á morgnana, fyrst með grjónamélsákasti en síðan með hálf- grjónum. Til miðdegismatar var haft fiskur og smér, spaðsúpa, mjólkur- grautur og grjónamjólk, baunir og ket. Við sjóinn oftast blautur fiskur eða siginn. Brauð var ekki haft með, nema þegar heldur meira var haft við eða á efnaheimilum. (Hér má vitna í vísuna: „Það á að gefa börnum brauð að bíta í á jólunum,“ HH). Yfir höfuð var fisk- urinn, harðfiskurinn, aðalfæðan og fá- dæmis ósköp sem af honum eyddust á stórum heimilum, en smér mikið etið með. Súrt slátur var og mikið til matar haft með þunnum mjólkurgrautum þar sem fjárríkt var. Ket var mikið haft til matar þar sem fé var margt og ekki voru fellisár, bæði hangið og vind- þurrkað og saltað, þegar hægt var. En þegar lítið var um skipakomur, eins og vildi verða þegar harðindi voru mikil, fékkst ekkert saltið. Almennt var sultur og seyra með almúganum og ekki að undra því að fellisárin dundu á hvað eftir annað og svo önnur harðindi, eldgos, fiskileysi og margt fleira. Þegar í harðbakkann sló með fæði var farið að nota flest, eins og fjallagrös, hreindýramosa, geitaskóf, skarfakál, njóla, smeðjukál, súrur, fíflarætur, holtarætur, smára- leggi og rætur, hvannarætur og leggi, kornsúrukorn, mel, fjöruþara, bæði söl, maríukjarna, beltisþara og fjöru- grös, sveppi og ber. Kálgarðar voru lítið eða ekkert ræktaðir á fyrri helmingi 18. aldar. Kartöflurækt hófst 1758. Þá voru aðalafnotin af búunum. Kjöt hirtu menn eftir föngum. Reynt var að verja mjólkinni til matarnota á sem flestan hátt. Það var eins og fiskurinn og mjólkin væru aðalfæðutegundirnar. Kaffi kom til landsins rétt eftir 1760, en brúkun ekki almenn fyrr en eftir 1850. Tóbak var almennt síðan á 17. öld og mikið notað, bæði tuggið, reykt og tekið í nefið. 10

x

Listin að lifa

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.