Listin að lifa - 15.10.2001, Síða 12
Kórinn Hljómur á Akranesi hefur starf-
að í ellefu ár. Síðastliðin fjögur ár
hefur Lárus Sighvatsson, skólastjóri
Tónlistarskóla Akraness, stjórnað
kórnum, en Ásdís Ríkarðsdóttir hefur
verið undirleikari frá upphafi. Hljóm-
ur hefur haldið sjálfstæða vortónleika
og sungið með öðrum kórum, t.d. á
aðventuhátíð. Hann hefur sungið í
Akraneskirkju á aðventunni og á upp-
stigningardag.
Skipst hefur verið á heimsóknum við
Gaflara í Hafnarfirði og tónleikar
haldnir með þeim. Síðasta vetur var
sungið með þeim í Víðistaðakirkju og
setin veisla í boði þeirra um kvöldið.
Hljómur hefur einnig tekið þátt í kóra-
mótum eldri borgara. Undanfarin ár
hafa fimm kórar tekið þátt í mótunum,
Hörpukórinn Selfossi, Vorboðinn í
Mosfellsbæ, Eldey á Suðurnesjum,
Gaflarar í Hafnarfirði og Hljómur.
Síðasta kóramót var í Fjölbrauta-
skóla Akraness 26. maí í vor. Hver
kór söng fjögur lög. Síðan allir saman.
Söngskemmtunin tókst með ágætum,
var vel sótt og öllum vel tekið. Um
kvöldið var svo veisla, hver kór sá um
skemmtiatriði, síðan var dansað fram
á nótt. Um 250 manns sátu veisluna.
Olýsanlegt er hve mikla gleði og
lífsfyllingu kórstarfið gefur. Hver kór
æfir allan veturinn. Við hér á Akranesi
æfum tvisvar í viku, annan tímann er
raddæfing, hinn samæfing. Undan-
tekningarlítið mæta allir. Síðan koma
kórarnir saman á sameiginlegum tón-
12