Listin að lifa - 15.10.2001, Side 28

Listin að lifa - 15.10.2001, Side 28
I brennidepl Mikilvægi félagsstarfs aldraðra og samstarfið við sveitarfélögin er nú í brennidepli. Skipulagt félagsstarf eldri borgara félaga í landinu hefur víða verið virkt í yfir tuttugu ár, en það er mjög breytilegt, hvernig sam- starfi hinna frjálsu félaga og sveitar- félaga er háttað. Starfið er blómlegast og jafnvel fjölþættast þar sem sveit- arfélögin hafa falið félögum eldri borgara að sjá um allt félagsstarf og stutt þau dyggilega fjárhagslega og aðstöðulega. Á þeim félagssvæðum eru sveitarfélögin sjálf aðeins með lögboðna félagsþjónustu, eins og húsnæðis- og heimilisaðstoð og stuðning á sviði framfærslu. Undirritaður hefur 20 ára reynslu af því hvernig gott samstarf sveitarfélags og hins frjálsa félagsstarfs getur blómstrað, báðum aðilum til hagsbóta. Það er með starfsemi eldri borgara sem annarra þjóðfélagshópa, að eng- inn er færari en við sjálf að ákveða með hvaða hætti og á hvaða sviðum félagsstarf okkar á að vera. Að standa fyrir slíku starfi og skipuleggja það skapar ómældum fjölda félagsmanna okkar áhugaverð verkefni, þótt við þurfum stundum að leita út fyrir okkar raðir eftir leiðbeinendum og aðstoðar- fólki, þá ákveðum við það sjálf. Vonandi heyrir það fortíðinni til, að sveitarfélög séu með launað starfsfólk til að sinna þessum verkefnum, jafnvel í samkeppni við áhugamanna- starfið. ar þörf á stofnanavist fyrir eldra fólk. Við í eldri borgara félögunum þurf- um að gera átak í að ná til sem flestra 60 ára og eldri og bjóða þeim samleið í okkar góða félagsskap. Leita þarf uppi þá sem einsemd hrjáir, því að dæmin sanna að þeir sem hafa leitað út í fé- lagsstarfið finna þar áhugaverð verkefni og félagsskap - og eru oftar en ekki komnir með verðugt hlutverk í lífinu og gleðja með því sjálfa sig og aðra. Ég vil hvetja sveitarfélögin til að skapa eldri borgara félögunuin þá að- stöðu sem þau þurfa til að vinna að þessum málum, án endurgjalds, eins og gert er í minni heimabyggð, Sel- fossi. Hver króna sem félögin fá skilar sér margfalt til baka í fjölþættu, virku félagsstarfi. Sveitarfélögin létta okkur ævi- kvöldið með margvíslegum hætti. Má þar nefna heimilisþjónustu og heima- mörg sveitarfélög mættu slá betur af fasteignagjöldum. Ég er fullviss um, að þar sem þetta samstarf sveitarfélaga og félaga eldri borgara er lengst komið, varðandi fé- lagsaðstöðu, beinar fjárveitingar og annan stuðning, telja sveitarstjórnar- menn og starfsfólk félagsþjónustunnar sig vera að vinna farsælt og árangurs- ríkt starf fyrir samfélagið. Við eigum að ræða saman reglulega og leita stöðugt eftir nýjum sameigin- legum verkefnum. Samræður og sam- vinna við sveitarstjórnir myndu auka trú okkar eldra fólksins á lífið og til- veruna eftir að hefðbundinni launa- Brosmildar og lífsglaðar konur í félagsstarfinu á Selfossi. Sveitarstjómarmenn hafa víðast átt- að sig á því, sem og samfélagsþjónust- an á viðkomandi stöðum, hvers virði þetta fjölþætta félagsstarf er. Það spar- ar sveitarfélögunum mikla fjármuni sem felst m.a. í því að fólk er lengur virkt í samfélaginu, dregur úr og frest- hjúkrun frá heilsugæslunni, heimsend- ingu á mat, auk þess stuðnings sem áður er getið og felst í félagsaðstöðu og beinum fjárstuðningi. Allt stuðlar þetta að því að við getum lengur búið í heimahúsum. Um leið og við þökk- um það sem vel er gert, má benda á að vinnu lýkur - um leið og við treystum innviði samfélagsins og samstarf allra aldurshópa. {fiaivaldssou, blaðstjóniarmaðiir, Selfossi

x

Listin að lifa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.