Listin að lifa - 15.10.2001, Page 30

Listin að lifa - 15.10.2001, Page 30
FRÁ SELFOSSI: Hjalti Þórðarson píanisti og eldsmiður Jólablær var yfir fallegu heimili Hjalta og Ingi- bjargar að Engjavegi 43 á Selfossi. Listmunir Hjalta úr smíðajárni, kertastjakar og kerta- krónur, báru logandi Ijós - vöktu hughrif komandi hátíðar. Hjalti er líka kirkjulistamaður. Sáluhlið Strandarkirkju ber handverk hans, og fleiri sáluhlið og kirkjukrónur. Hendur hans töfra fram fjöruga tóna, þegar hann sest við píanóið. „Hjalti er meistari að laða fram fjöldasöng," segja vinir hans og ferðafélagar. Hjalti er eftirsóttur gleðigjafi hjá eldri borgurum á Selfossi, ómissandi píanisti á Sælu- vikum á Örkinni. Hjalti frá Reykjum er hann kallaður, þótt hann hafi búið á Selfossi í rúma hálfa öld og byggt þar þrjú einbýlis- hús. „Eg á heima þar ennþá, heim að Reykjum fer ég mjög oft,“ segir þessi 81 árs unglegi maður, sá ellefti af þrettán systkinum. Reykja- ættin er fjölmenn, 700 manns komu á niðjamót fyr- ir nokkrum árum. „Bræður mínir þrír tóku við búinu af pabba, en nú eru börnin þeirra tekin við. Þorp er að myndast á Reykjum, bæirnir orðnir sex. Barnafjöldi var Fimir fingur leika við nótnaborð í stofunni heima. Hjalti kann að töfra fram fjörug lög fyrir gesti sína. alltaf mikill á Skeiðum, hjón áttu jafnvel 18-19 börn, voru að framleiða vinnuafl, þeir sem ekki áttu börn voru í vandræðum. Ég ætlaði alltaf að verða trésmiður, en afar erfitt að komast í læri, svo að ég tók próf í eldsmíði. Það var erf- ið iðn að teygja og toga hluti í eldinum, en það hef- ur breyst eins og annað. Eldsmíði er nú dauð iðn- grein. Ég vann vetrarlangt hjá Búrmeister og Wain í Danmörku og lærði mikið. Þá unnu þar um 10 þúsund manns við að smíða alls- konar hluti í skip. Þennan vetur voru tíu skip í smíð- um fyrir Kínverja. Ohemju stórt fyrirtæki þá. Nú er allt farið á hausinn.“ Já, Hjalti hefur lifað tímana tvenna og fæddist ekki með gullskeið í munni, einn af þrettán systkinum og þurfti að bjarga sér út í lífíð. Hvað skyldi hafa kveikt löngun hans til iðnnáms? „Afi minn, Þorsteinn Þorsteins- son á Reykjum, var góður járnsmiður. Gæruhnífarnir

x

Listin að lifa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.