Listin að lifa - 15.10.2001, Síða 31

Listin að lifa - 15.10.2001, Síða 31
Það var myndarlegt kaffiborðið hjá Ingibjörgu Jónsdóttur húsmóður. Allt heima- bakað og Ijúffengt. Hjalti og Ingibjörg voru útitekin og sælleg, enda nýkomin úr fimm landa Evrópuferð. hans voru þekktir. Hann smíðaði líka skónálar, vasahnífa og margt fleira.“ En tónlistin? „Hún bjó í mér strax sem krakka. Heima var oft sungið og spilað, fólkið mitt er mikið söngfólk. Orgel kom á heimilið þegar ég var átta ára. Ég var fljótur að ná að spila á það. Sautján ára var ég einn vetur í námi hjá Kristni Ingvarssyni dómkirkju- organista, en þá var ég búinn að spila svo lengi eftir eyranu að illa gekk að kenna mér nótumar. Ég var farinn að læra melódíuna og prjóna við hana - og geri það enn. Að spila af fingrum fram hentar mjög vel fyrir fjöldasöng. Allur kraftur dettur í söngnum, ef menn þurfa að fletta og leita í nótnablöðum. Ég kem oft heilmiklu fjöri í söng og nýt þess mjög sjálfur. Ég á margar stundir við píanóið, einkum á kvöldin, þetta hefst ekki nema með mikilli æfíngu. Núna er ég að spila á Örkinni á sparidögum aldraðra." sýsluna með sýningarvél og skellti upp kvikmyndasýningu í samkomu- húsum. Hann var lengi með þetta ferðabíó og spilaði á böllum.“ Hjalti var nýbúinn að fá nikkuna, Nikkari á dansleikjum Hjalti lærði á orgel. Síðan tók harmonikkan við. „Eiríkur á Bóli útvegaði mér hana. Merkilegur maður, Eiríkur. Alveg blindur, en ferðaðist um Koparborðplatan og borðfaetur úr litla borðinu. frá Túnis, en stjaki Hjalta. Jólablær yfir þegar hann settist á skólabekk á Laugarvatni í tvo vetur. „Enginn til að spila á skólaböllum nema ég. Það þjálfaði mig heilmikið að spila fyrir 170 nemendur. Laugarvatn var einn af sólskinsblettunum í mínu lífi. Svo byrjaði ég að spila á böllum átján ára og var alveg í þessu 1940-’50. Þá var ekki mikið um harmonikkuleikara, svo að ég var að- alspilarinn á dansleikjum í Arnes- og Rangárvallasýslu, ásamt Jonna Kjart- anssyni og Eiríki á Bóli. Þau voru fræg þessi böll, slagsmál og fyllirí, en það hefur breyst eins og annað.“ Hjalti talar ekki um erfiðið - að standa heilu kvöldin með nikkuna í fanginu oft fram á morgun, aðeins hve erfitt hafi verið að komast á staðinn, engir bílar nema mjólkurbíllinn. Eitt sinn fékk hann far með ást- föngnum manni sem vildi svo ekki fara til baka, af því að stúlkan hans hélt honum föngnum. í annað skipti var Hjalti örþreyttur eftir að hafa spil- að til klukkan sex að morgni. Hann náði sér í svefnpoka og steinsofnaði úti á túni. Vaknaði síðan við heitan andardrátt, forvitin kýr var að sleikja hann í framan. „Ég gleymi þessu aldrei,“ segir Hjalti og skellihlær. „Kýrin vakti mig svo að ég rétt náði í mjólkurbílinn!“ Selfoss þá og nú Hjalti byrjaði að læra járnsmíði hjá Kaupfélagi Árnesinga á Selfossi árið 1941. „Ég var fyrsti járnsmíðalærlingur austanfjalls. Kaupfélagið setti af stað verkstæði í járnsmíði, rafiðju, renni- smíði og bílaviðgerðum. Það var feiknakraftur í þessu. Egill Thoraren- sen í Sigtúnum, kaupfélagsstjóri, var engum líkur, enda landsfrægur. Það var líka hans verk að drífa Þorláks- höfn upp. Þá voru bara örfá hús á Sel- fossi og ekkert annað að gera en byrja að byggja. „Taktu bara út það sem þú þarft,“ sagði Egill. Kaupfélagið stóð á bak við allt. Svo borgaði maður bara vissa upphæð mánaðarlega. Verð- tryggingin kom seinna.“ Hjalti varð verkstjóri í smiðjunni, útskrifaði marga lærlinga og vann hjá Kaupfélaginu í 25 ár. „Svo var ég beð- inn um að smíða mjólkurtanka fyrir heimilin hjá Mjólkurbúi Flóamanna. Mikil bylting í hreinlæti, þegar brús-

x

Listin að lifa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.