Listin að lifa - 15.10.2001, Side 37

Listin að lifa - 15.10.2001, Side 37
úr frysti 3-4 klst. áður en hann er bor- inn fram og skreyttur með ferskum ávöxtum og/eða berjum. Tótuhlaup 1 dós sýrður rjómi 2 msk. majones 1/2 laukur 1/2 gúrka (skorin í smáa bita) 1 paprika (skorin í smáa bita) Rækjur eða annað sem andinn innblæs 1 pk. sítrónuhlaup 1 bolli sjóðandi vatn Hlaupið er leyst upp í vatninu, kælt dálítið. Majonesi, sýrðum rjóma og öllu hinu blandað saman við. Hellt í mót og látið kólna í um 2 klst. Gott t.d. með ostum og kexi. Með bestu kveðjum og jólaóskum cHÍitjtuli& SleinjuksdóUiv, liitsstjórnarkennari tf / wy Heytnar- og tafmeinastöðvar íslands Heyrnar- og talmeinastöð íslands HTÍ gegnir fjölbreyttu hlutverki, en fyrst og fremst þjónar hún heyrnar- skertum og fólki sem býr við talmein. Stöðin er til húsa á Háaleitisbraut I eða Valhallarhúsinu, á 3. og 4. hæð. Á árinu 2000 leituðu þangað yfir 5000 einstaklingar, sumir oftar en einu sinni, en 60% þeirra eru 67 ára og eldri. Boðið er upp á heyrnarmælingar, læknisskoðun, val heyrnartækja og úthlutun eða sölu heyrnartækja. Þarna er einnig margkonar kennsla, fræðsla og námskeið fyrir skjólstæðinga HTÍ. Starfsfólk heimsækir líka hávaðasama vinnustaði og heyrnarmælir starfsfólk, og fylgist með heyrn barna og unglinga í skólum. Starfsemin er bæði fróðleg og umfangsmikil, en jafnframt krefjandi. Því hef ég kynnst vel fyrstu fimm mánuði mína í nýju starfi sem framkvæmdastjóri stöðvarinnar. Talsverð vinna hefur verið lögð í að bæta alla aðstöðu til að geta tekið vel á móti skjólstæðingum og framundan eru lagfæringar á mót- töku og biðstofu. Lögð er áherslu á faglega framkomu starfsfólks og að allir fái góða þjónustu. Við keppum sífellt að því að bæta okkur, og fögnum að sjálfsögðu góðum at- hugasemdum. í sumar og haust hafa staðið yfir miklar umræður við heilbrigðisráð- herra og starfsfólk ráðuneytisins um fjármál og faglega þjónustu HTÍ, en góð samvinna er á milli okkar. Hlut- verk stöðvarinnar er stöðugt til um- ræðu, ekki síst vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar. Nú hefur nýtt frum- varp verið lagt fram á Alþingi sem fjallað verður um á næstu dögum. Þar má sjá ýmsar breytingar frá fyrri lögum um HTI, en tilgangur- inn er að skýra hvaða hlutverki stöðin á að gegna og auðvelda starfsfólki að sinna því. Ljóst er að heilbrigðisráðherra hefur mikinn á- huga á að bæta aðstöðu HTÍ og skjólstæðinga hennar. HTI hefur verið gagnrýnd með réttu fyrir langa biðlista eftir heym- artækjum. Nú em yfir þúsund manns á biðlistum og margir hafa mátt bíða í allt að eitt ár. Þetta er óviðunandi ástand fyrir heyrnarskerta, en áætl- un hefur verið lögð fram um hvern- ig stytta megi biðlistana á næstu mánuðum. Frá og með I. september 2001 var opnunartími heyrnar- tækna/fræðinga í ráðgjöf og sölu heyrnartækja lengdur á þriðjudög- um og fimmtudögum, auk þess sem boðið er upp á tíma á laugardögum. Fleira er í undirbúningi til að koma betur til móts við skjólstæð- inga HTÍ. en allar breytingar verða kynntar jafnóðum. Ljóst er að aukið fjármagn þarf að koma til svo að hægt sé að stytta biðlistana. Á næstu mánuðum er mjög mikilvægt að leggja drög að stefnumótun og framtíðarhlutverki HTÍ. Hvemig best er að skipta upp starfseminni, hverjar megináherslur eiga að vera og hvar brýnast er að efla og styrkja starfið. Af mörgu er að taka, verk- efnin eru óþrjótandi. En með sam- stilltu átaki starfsfólks HTÍ og heil- brigðisráðuneytis, annarra sérfræð- inga og hagsmunaaðila, tel ég að stöðin eigi mikla möguleika á að geta mætt væntingum og þörfum þeirra sem til hennar leita. Jafn- framt á hún að geta tekið við nýjum verkefnuin til heilla fyrir skjólstæð- inga sína í framtíðinni. SirjwÁm SrueAjö’tnsdátU'v, framkvœmdastjóri HTÍ

x

Listin að lifa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.