Listin að lifa - 15.10.2001, Side 42
Sameiginlegur
kjarafundur
Félög eldri borgara í Hafnarfirði, Kópavogi, Carða-
bæ og Bessastaðahreppi héldu sameiginlegan fund
í safnaðarheimilinu Kirkjulundi í Carðabæ, laugar-
daginn 3. nóvember s.l., um kjaramál eldri borg-
ara. Fundurinn stóð í rúma þrjá tíma og var fjöl-
mennur. Reynir lónasson lék á píanó meðan fund-
argestir komu sér fyrir.
Óskað liafði verið eftir því að allir
þingmenn kjördæmisins kæmu á fund-
inn, svo og fulltrúar Frjálslynda
flokksins og Vinstri hreyfingarinnar
græns framboðs, og gerðu þar grein
fyrir sínum stefnumálum og svöruðu
fyrirspurnum. Á fundinn mættu ráð-
herrarnir Árni M. Mathiesen og Siv
Friðleifsdóttir, og þingmennirnir Guð-
mundur Árni Stefánsson, Gunnar I.
Birgisson og Þórunn Sveinbjarnardótt-
ir. Svanhildur Kaaber, varaformaður
Vinstri hreyfingarinnar, var líka fund-
argestur. Þau fluttu öll kveðjur frá
þingmönnum sem ekki gátu komið
vegna starfa annars staðar.
Hjalti Einarsson, formaður félags
eldri borgara í Garðabæ, setti fundinn
og bauð ráðherra, þingmenn og aðra
gesti velkomna. Hann skipaði Helga K.
Hjálmsson, varaformann LEB, fundar-
stjóra. Benedikt Davíðsson, formaður
LEB, flutti ávarp, en framsögumenn
voru: Þórir Daníelsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Verkamannasam-
bandsins, Rannveig Sigurðardóttir,
hagfræðingur hjá Alþýðusambandi ís-
lands, og Karl Gústaf Ásgrímsson, for-
maður Félags eldri borgara í Kópavogi.
Þórir Daníelsson gerði grein fyrir
greiðslum til ellilífeyrisþega úr al-
menna tryggingakerfinu og bar saman
við aðrar lífeyrisgreiðslur og almenna
launaþróun. Rannveig Sigurðardóttir
skýrði frá athyglisverðum niðurstöðum
sem fram komu á ráðstefnu ASÍ, Hvert
viljum við stefna, sem haldin var í
mars s.l. Þar kom margt áhugavert
fram, t.d. skýringar Joakims Palme,
prófessors við Stokkhólmsháskóla, og
samstarfsmanna hans, á fímm mis-
munandi velferðarkerfum sem sýndu
fram á að jafnar greiðslur til allra
frá almannatryggingum, án skerð-
ingar, leiða til bestu og jöfnustu lífs-
kjara eftirlaunaþega. Rannveig
ræddi um nauðsyn þess að einfalda ís-
lenska kerfið,
sem væri of
þungt í vöf-
um.
Karl Gúst-
af Ásgríms-
son talaði um
launaþróun
síðustu 20
mánaða og
fór yfir hvað
gerst hefði í
málum ellilíf-
eyrisþega frá
fundinum í fyrra. Hann nefndi mörg
dæmi um að eftirlaunafólk hefði verið
afskipt í launahækkunum undanfarið og
beindi ákveðnum spumingum til þeirra
stjómmálamanna sem mættir voru.
Þingmenn, ráðherrar og fulltrúi
Vinstri hreyfingarinnar tóku allir til
máls og lýstu kostum stefnu flokka
sinna í málum aldraðra, en svör þeirra
við spurningum Karls Gústafs voru
heldur fátækleg. Athygli vakti þó þeg-
ar Árni M. Mathiesen ráðherra sagði
að niðurstaða rannsóknanna,^ sem
fjallað var um á ráðstefnu ASÍ, gæfi
sér nýja sýn á þessi mál, sér þætti
ánægjulegt að niðurstöðurnar væru í
anda þess sem kæmi fram í ályktun
landsfundar Sjálfstæðismanna um
málefni aldraðra. Þannig kom hann
sér hjá því að svara spurningu Karls
um hvort þingmenn Sjálfstæðisflokks-
ins myndu á þessu þingi bera fram
frumvarp í samræmi við samþykkt
landsfundarins um málefni aldraðra.
Fleiri spurningum var beint til þing-
manna, sem þeir svöruðu mjög mis-
jafnlega. Fram kom hjá fyrirspyrjend-
um úr sal, að áhugi virðist vera á fram-
boði eldri borgara í næstu kosningum.
Þegar Karl Gústaf Ásgrímsson
hafði tekið við fundarstjórn, kvaddi
Helgi K. Hjálmsson sér hljóðs, ávarp-
aði þingmenn og flutti nokkur hvatn-
Helgi K. Hjálmsson og
Benedikt Davíðsson,
formenn LEB, við
ræðupúltið andspænis
fundargestum.
ingarorð til þeirra. Hann benti þeim á,
að þeir sem lagasmiðir skapi það um-
hverfi að bæði ungir sem aldnir geti
lifað bæði við fjárhagslegt og umönn-
unarlegt öryggi, og geti átt ljúft og
gott ævikvöld, lausir við fjárhags- og
afkomuáhyggjur. Það helsta sem
þyrfti að lagfæra strax, svo sem að
hækka skattleysismörk, fjölga skatt-
þrepum, hækka og lagfæra greiðslur
úr almannatryggingum, lífeyrisþegar
greiði aðeins fjármagnstekjuskatt af
þeim hluta lífeyrisgreiðslna sem
myndaðar eru af fjármagnstekjum, en
umfram allt að „Með lögum skal land
byggja". Helgi átti þar greinilega við
það sem hann taldi lögbrot stjórnvalda
í garð eldri borgara.
Karl Gústaf Ásgrímsson þakkaði
ráðherrum, þingmönnum og öðrum
fundargestum fyrir frábæran fund og
sagði að áætlað væri að slíkir fundir
yrðu ár hvert fyrsta laugardag í nóv-
ember. Næsti fundur yrði því 3. nóv.
2002. Hann sagði síðan fundi slitið.
9(álm(u'Su* ctftuíimmdsdáUii/,
ritari FEB í Garðabœ
42