Listin að lifa - 15.10.2001, Síða 48

Listin að lifa - 15.10.2001, Síða 48
uðurinn varð bara meiri. Þegar þeir komu að kirkjunni, sneru þeir við, horfðu niður aðalgötuna og til sjávar, stefndu svo til skips. Allt í einu heyrðu þeir rödd sem sagði: „Góða kvöldið, piltar mínir! Eruð þið að leita að einhverjum?“ Þarna stóð prúðbúin kona með svuntu, komin yfir miðjan aldur. „Nei, nei, við vorum bara að fá okkur frískt loft eftir matinn,“ sögðu ungu mennirnir. „Komið aðeins inn og fáið ykkur kókósopa hjá mér.“ „Það er alveg óþarfi, við eru búnir að borða.“ „Nú, ekki getur bolli af kókói gert ykkur illt.“ Ungu mennirnir litu hvor á annan og gengu síðan upp tröppurnar. Þeir tóku í hönd konunnar, sögðu til nafns og niundu að segja: „Gleðileg jól.“ Hún bauð þeim að ganga í bæinn. Þeir voru nú hálfkjánalegir í sjóstígvélun- um, sem þeir skildu eftir í anddyrinu, en fylgdu svo konunni til stofu. Þar var fleira fólk sem hún kynnti: „Sonur minn, dóttir mín, tengdasonur, tengda- dóttir og þetta eru englabörnin fimm hennar ömmu sinnar.“ Börnin voru sennilega á aldrinum þriggja ára til tólf ára. Öll tóku þau hönd piltanna og sögðu: „Gleðileg jól.“ „Verið vel- komnir, fáið ykkur sæti,“ sagði konan. Stofan var ekki stór en falleg. I her- bergi við hliðina stóð ljósum tendrað jólatré. Ungu mennirnir settust og voru lít- illega spurðir um hagi sína. Þeir svör- uðu skilmerkilega og kurteislega, en yfirheyrslan varði ekki lengi, „Gjörið svo vel að fá ykkur kökubita og kókó. Við ætluðum að fara að byrja.“ Þarna var mikil veisla. Jólakaka með rúsín- um og súkkati. Fimmlaga vínarterta með sultu. Brún fjögra laga súkkulaði- terta með hvítu kremi. Og minnst fimmtán smákökutegundir. Andrúms- loftið var afslappað og ungu mennirn- ir losnuðu við feimnina og nutu góð- gerðanna af hjartans lyst. Þegar allir höfðu fengið nægju sína af því sem fram var borið, sagði kon- an: „Við vorum nú búin að ganga kringum jólatréð, en ég finn að litlu skinnin mín myndu gjarnan vilja fara einn hring í viðbót, þið ættuð að vera með.“ Allir tókust í hendur og börnin vildu fá að leiða gestina. Síðan var byrjað að syngja jólalög, fyrst „Heims um ból“ og síðan kunn lög eins og „Gekk ég yfir sjó og land.“ Núna fannst piltunum kominn tími til að þakka fyrir sig og kveðja. Þeir tóku í hönd allra og þökkuðu fyrir samveruna. Konan fylgdi þeim til dyra. Þeir fóru í sjóstígvélin sín og á tröppunum rétti konan þeim sinn hvorn pappírspokann og sagði: „Við áttum ekki von á gestum svo að það eru engar jólagjafir, en hérna eru nokkrar smákökur og súkkulaðibiti, svona til þess að maula á leiðinni.“ Pokunum var lokað með gylltu bandi og í bandinu hékk lítil, gyllt pappa- stjarna. Síðan kyssti hún þá á kinnina og sagði: „Guð veri með ykkur og skilið kveðju héðan að vestan til ykkar nánustu.“ Ungu mennirnir tóku þétt í hönd konunnar, kvöddu og þökkuðu inni- lega fyrir sig. Á leiðinni til skips varð þeim litið til baka. Konan stóð enn á tröppunum og horfði á eftir þeim. Hún veifaði í kveðjuskyni, hvarf svo inn í húsið og dyrnar lokuðust. Þeir gengu hægt niður götuna. Frá neðsta íbúðar- húsinu heyrðist hljóma út um opinn glugga: Bjart er yfir Betlehem, blikar jólastjarna, stjarnan mín og stjarnan þín, stjarnan allra barna... Tunglið óð í óveðursskýjunum yfir fjallinu og þeir sáu glitta í skæra stjörnu hátt á himni. Hún blikaði eins og hún væri bara að sýna sig fyrir þá. Þeir litu hvor á annan og hvor hugsaði sitt. í skipinu lögðust þeir til hvíldar. Merkilegur og góður dagur var að baki. í hjörtum þeirra ríkti hinn sanni jólafriður og þannig liðu þeir inn í svefninn. Klukkan sex á jóladagsmorgni var kallað „ræs!“ Landfestar voru leystar og haldið út fjörðinn. Athygli vakti að hinir togararnir sýndu ekkert fararsnið svo reynt var að leita frétta. Jú, ákvörðun hafði verið tekin um að hætta veiðiferðinni og halda heim. Veðurspáin gerði ráð fyrir áframhald- andi stormi. Veðurbitnir karlarnir litu hver á annan og sögðu á fagmáli sjómanns- ins: „Helvítis útgerðin!“ Ungu menn- irnir fylltust tilhlökkun. Kannski næðu þeir öðrum jóladegi heima með sínum kærustu. En þrátt fyrir allt höfðu þeir upplifað nokkuð sem myndi fylgja þeim alla tíð - hinn sanna jólaanda. Ef til vill tækist þeim að skapa hann heima hjá sér. Það yrði framtíðin að leiða í ljós. Minningar margar sækja á, hver um sig mynda sitt gildi. En aðrar er sköpum skiptu, þær ná síður fram þó feginn ég vildi. Skrifað 12.10. 2000 sdtli éAqií&ts&oii Píparar, píparar... í kólnandi tíð eru píparar eftir- " sóttasta stéttin. Ofnar hitna ekki, vaskar og kranar stríða fólki og fleira. Neyðarkallið er frá Silfurlín- ^ unni vegna skorts á pípurum til að halda hlýju á fólki í vetrarkuldanum. Píparar hafið endilega samband! Silfurlínan svarar í síma: 588-21 I I mánudaga og miðvikudaga kl. 10-12 fyrir hádegi. Vinur og ferðafélagi I vinadálkinn eru þegar komin nokkur nöfn áhugaverðra kvenna sem sitja einmana heima, en langar til að eignast vin og félaga. Dans, ferðalög, tónlist og leikhúsferðir eru ofarlega á óskalistan- um. Einmana karlar! Verið nú herralegir við dömurnar og sendið inn nöfn ykkar. 48

x

Listin að lifa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.