Listin að lifa - 15.10.2001, Síða 50

Listin að lifa - 15.10.2001, Síða 50
Tengdadóttir mín hringdi frá Reykja- vík ii. september og tilkynnti að Auð- ur dóttir sín væri að fara inn á fæð- ingardeild. Hún átti von á sínu fyrsta barni, ég ætlaði að vera viðstödd og sem betur fór var flug ekki afstaðið héðan frá Bíldudal. Veður var eins og best verður á kosið, logn og sólskin, eins og oft er hér á Bíldudal. Flugvélin flaug sem leið lá upp úr suðurfjörðum Amarfjarðar og yfir Reykjafjörð - bæinn sem ég fyrir 50 árum fór til í mína fyrstu ljósmóð- urferð. Sú ferð rifjaðist upp á leiðinni suður. Ferðamátinn var að vísu annar þá, en eftirvæntingin sú sama. Skyldi allt ganga vel? Það vissi maður aldrei. Ég náði í tæka tíð upp á fæðingar- deild, þar sem ég lærði ljósmóður- fræði fyrir hálfri öld. Lítil stúlka fæddist kl. 14.00. Gleði og hamingja skein af nýbökuðum foreldrum og langamman fór ekki varhluta af því. Mig langar að segja frá tengslunum á milli okkar. Fyrir 40 árum tók ég á móti lítilli stúlku hjá Pálínu Bjarna- dóttur. Þessi stúlka varð síðar tengda- dóttir mín, og 19 árum seinna tók ég á móti Auði dóttur hennar, og núna þessari litlu stúlku. Þarna eru komnir fjórir ættliðir. Fyrstu ljósmóðurárin mín hér á Bíldudal voru barnsfæðingar margar miðað við mannfjölda eða 22-24 á ári, en svo fór þeim fækkandi. Þessi ár var ég sjálf að eignast mín börn. Stundum var hlaupið á milli húsa með tækin, þegar fleiri en ein kona veikist sama sólarhring, en það kom oftar en einu sinni fyrir. Síðar fóru konur að fara til Patreksfjarðar eða suður í borgina. Til gamans má geta þess að ég tók á móti tveimur systrum mínum. Lífsháski á jólanótt Fimmtíu ár eru góður spölur í lífi hvers manns, en þegar litið er til baka er eins og ýmsir atburðir liðinna ára hafi gerst í gær, svo ljóslifandi eru þeir. Ég, sem skrifa þessar línur, bið ykkur að koma með mér hálfa öld aftur í tímann eða til ársins 1951. Það er 4. októ- ber, Esjan er að leggjast að bryggju í Bíldudal. Nýja ljós- móðirin er með skipinu. Þessa nótt fædd- ist dreng- ur. Mik- ið var móðir- in fegin að vera búin áður en þessi nýja stelpa kæmi —tiL starfa, og engin furða. Aðeins nítján ára, útskrifuð 1. október, fyrir þremur dögum, reynslu- lítil ljósmóðir, en við urðum góðar vinkonur síðar. Nú líður fram til jóla að ekki bar neitt til tíðinda. En á jóladag, kl. fjög- ur síðdegis, er barið að dyrum. Fyrir utan stendur maður að nafni Asgeir Jónasson, mikið fannbarinn, en úti geisaði stórhríð. Hann kom með þau skilaboð til mín frá konu í Reykja- firði, um 20 km frá Bíldudal, að hún vænti minnar hjálpar sem fyrst. Eng- inn sími var þá í Reykjafirði svo að það þurfti að fara fótgangandi út að Fossi, um 6 km leið. Mér brá nú svolítið, vitandi um veðrið, en spurði hvernig ég kæmist þangað? „Með bát,“ sagði hann. Ég sagði ekkert en hugsaði því meira, veðrið var lítið spennandi til bátsferð- ar. Ásgeir sagðist ætla að fara og út- vega bát og skipshöfn. „Ég tala líka við lækninn,“ sagði hann. Eftir hálf- tíma kemur hann aftur og búinn að fá bát og skipshöfn. „Ég fer líka með,“ sagði hann. Mér var nú miklu rórra. Við fórurn til læknisins og biðum þar í smástund þar til allir voru tilbúnir í slaginn. 50

x

Listin að lifa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.